Laugardagur 19.02.2011 - 09:20 - FB ummæli ()

Hver ertu duldi djöfull?

Við búum í landi öfga, elds og ísa. Sannkölluðum hulduheim og margir eins og undir álögum. Ég er enda aðeins hjátrúarfullur, hvernig ætti annað að vera. Vísindin ráða auðvitað miklu um hvernig ég vinn dags daglega sem heimilislæknir, en ekki sem maður. Þar kemur reynslan oft að meira gagni. Og vísindin vita því miður oft svo mikið um lítið. Lífið sjálft er oft stærsti skólinn til að takast á við hið óþekkta, ekkert síður en hið þekkta.

Meirihluti þekkingar minnar á manneskjunni er líklega gegnum vinnuna og það eru því forréttindi að fá að vinna sem læknir, ekki síst sem heimilislæknir. Þessi reynsla gefur mér líka forskot á greiningu og meðferð á algengustu meinunum hjá okkur mönnunum og sem kemur til okkar kasta í heilsugæslunni, m.a. vöðvagigtinni. Hinum dulda djöfli og þeim fjanda sem er undir húði og hári. Gigtin köld og heit til skiptis sem leggst mest á ungar konur í blóma lífins.

En hver er þessi duldi faraldur sem svo lítið er vitað um og hefur hvorki sporð né hala? Vöðvagigtin/vefjagigtin (fibromyalgia) og vöðvaslénsfárið/síþreytan (chronic fatigue syndrome) sem oft er erfitt að greina á milli. Sjúkdómur sem hefur margar ólíkar myndir, þótt ákveðin einkenni séu samnefnarar í heilkennum (syndromi). Sjúkdómur sem er margfallt algengari hjá konum en körlum og allt að þriðjungur kvenna berst við á lífsleiðinni. Sjúkdómur sem læðist aftan að konum í þjóðfélaginu og getur lagt líf þeirra í rúst, jafnvel á nokkrum árum. Endalausir verkir og þrekleysi sem truflar vinnuna, frístundirnar og nætursvefninn góða. Svefninn sem er svo nauðsynlegur til að getað vaknað frískur og endurnærður á morgnana. Sjúkdómur sem endar oft með langvarandi þunglyndi. Þegar spurt er um orsök eða afleiðingu, hænuna eða eggið.

Vefjagigt og síþreyta er ein af algengustu ástæðum fyrir örorku kvenna í dag. Sjúkdómur sem mælist ekki í neinum blóðprufum og erfitt er að rannsaka með öllum þeim tækjum og tólum sem vísindin hafa yfir að ráða. Einkennum sem að lokum tengjast saman og eru samansafn verstu einkenna daglegs lífs, svefnleysis, spennu, þreytu, logandi vöðvaverkir, kaldir liðverkir á kvöldin, höfuðverks og þunglyndis. Getur verið að nútímaþjóðfélagið og stressið fari svona illa með konurnar okkar eða spilar eitthvað annað inn í eins og hormónaójafnvægi, D-vítamínskortur, ónógar omega 3 fiskifitusýrur og fiskneysla eða samblanda af þessu öllu. Spyr sá sem ekki veit og reyndar enginn veit.

Álag á nútíma húsmóður er mjög  mikið og skyldi því engan furða að eitthvað gefi sig að lokum. Oft full vinna utan heimilis, máttarstólpi fjölskyldunnar þegar mest á reynir, samviska hennar og ábyrgðamaður. Kynvera sem síðan þarf alltaf að líta svo vel út. Ekki svo að skilja að sumir karlar geti ekki staðið konum sínum jafnfætis í öllu nema útlitinu, en þeir eru því miður í miklum minnihluta.

Kúgun hverskonar og vaxandi ofbeldi er versta myndin sem við sjáum, en miklu meira liggur undir steini sem við sjáum ekki og vitum ekkert um. Eins og t.d. erfið æska og ofbeldi á heimilum sem allt að 2000 börn verða vitni af á hverju ári hér á landi og við erum reglulega minnt á. Slæm reynsla sem markar lífið fyrir lífstíð. Sjúkdómsmyndin verður síðan oft flóknari eftir því sem aldurinn færist yfir. Með minnkaðri getu til að hreyfa sig og aukinn þyngd vandast  málin enn frekar og lífsstílssjúkdómarnir, offita, háar blóðfitur og æðakölkun bætist við heildarmyndina. Smá saman gefur líkaminn sig almennt séð, eins og á reyndar á við alla öldrun. Á þetta er rækilega minnt þegar konur rugla saman vöðvabólgueinkennum í brjósti og brjóstverk vegna kransæðasjúkdóms. Hver er annars þessi djöfull sem leggur lífið svona gjörsamlega í rúst? Hvar eru vísindin sem hjálpa okkur svo oft, en ekki þegar við eldumst fyrir aldur fram?

Meðferðin byggist mest á að minnka álag í daglega lífinu, minnka stress en auka líkamsþjálfun. Bæta þarf oft svefninn, stundum með lyfjameðferð tímabundið, sérstaklega til að tryggja meiri djúpsvefn, sjálfan hvíldarsvefninn. Að getað vaknað vel hvíldur og endurnærður eru töfraorðin sem allir þrá að upplifa. Sumir vilja jafnvel meina að rót vandans liggi í svefntruflununum fyrst og fremst. Aftur spurningin um hænuna eða eggið.

Oft þarf allsherjar lífsstílsbreytingu með breyttu mataræði til að öðlast bata. Stundum endurhæfingu með sjúkraþjálfun og sérhæfðri göngudeildarþjonustu.  Starfsendurhæfingarsjóðurinn VIRK býður oft upp á ýmiss úrræði fyrir þá sem eru við það að detta út af vinnumarkaðinum vegna sjúkdómsins. En ekki má gleyma heita vatninu okkar sem bætir alla líðan. Sundlaugar sem fínustu endurhæfingar- og orkustofnanir úti í heimi öfunda okkur svo mikið af. Eins útivistarmöguleikunum sem eru óendanlegir hér á landi og takmarkið er alltaf það sama, að ná fullri orku aftur.

Mikilvægt er að allir geri sér fljótt grein fyrir þeim fjanda sem vefjagigtin í raun er og leiti fljótt hjálpar. Lausnirnar eru fyrir hendi, ekki síst hér á landi í hulduheimum, það þarf aðeins að finna þær. Sem betur fer er sjúkdómurinn í byrjun ekki vefrænn heldur sállíkamlegur sem manngerist með tímanum. Félagslegt öryggi og sálræn vellíðan er forsenda fyrir batanum, eins og vöntunin var orsökin í upphafinu, ásamt góðri næringu og hreyfingu. Með því einu verður álögunum létt. Ekkert er ómögulegt í mannheimum og við vitum að það er hægt að reka hinu illu djöfla langt á haf út.

Tenglar: Fibromyalgia pain takes toll on everyday life.

http://www.visir.is/vefjagigt-i-20-ar–vitundarvakningar-er-thorf/article/2013705109991

 

Flokkar: Óflokkað · Bloggar · Dægurmál · heilbrigðismál · Lífstíll · Stjórnmál og samfélag

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn