Það er allt að verða vitlaust út af „litlum“ 400-800 milljónum sem bráðvantar upp á rekstur LSH. Lagðar eru til 30 milljónir til að greina vandann, meðal annars í vanáætlun fjárlaganna sjálfra vegna kjarasamninga á árinu. Svo stefna megi að aukinni hagræðingu eins og það heitir og þegar raunverulega vantar tæpa 3 milljarða í reksturinn! […]
Nú eftir helgina hefst heimsráðstefna í París um loftlagsmál framtíðarinnar, mengunina í lofthjúpnum og vaxandi hlýnun jarðar. Stærsta ráðstefna sinnar tegundar sem haldin hefur verið og ekki að tilefnislausu. Lagt er á ráðin með spár um gróðurhúsaáhrif og minnkun súrefnismettun jarðar, bráðnun jökla meðal annars á Íslandi og hættu á hamfaraflóðum í framtíðinni. Hvenær skildi […]
Í Læknablaðinu fyrir ári er rakin saga eins af hápunktum heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi með byggingu Sjúkrahús Reykjavíkur (Borgarspítalans), 1968 og nútímalega þjónustu sárvantaði. Enn í dag má sjá og skynja andann sem ríkti á fyrstu árum spítalans í gamla anddyrinu. Marmarastyttur sem minna á sögu læknisfræðinnar til áminningar fyrir gesti og gangandi. Meðal annars af sjálfum […]
Gríðarleg aukning hefur orðið í að ungt fólk fái sér húðflúr hér á landi eins og annars staðar í hinum vestræna heimi og sem nálgast að fjórði hver fullorðinn einstaklingur sé með húðfúr ef marka má erlendar kannanir. Ætla má að tíðnin sé allt að 80% meðal ungs fólks auk þess sem húðflúrin ná yfir […]
Allt snýst um peninga er einhvers staðar sagt og vissulega á það aldrei betur við en þegar reynt er að snúa tölum á haus til að fá sitt fram gegn betri vitund og sem nú á sér stað með dýrustu ríkisframkvæmd sögunnar, Nýjan Landspítala við Hringbraut og ég hef oft skrifað um áður. Þegar beita […]
Fyrir helgina átti ég leið framhjá Grábrók í Norðurárdal á leið minni norður á Strandir og ákvað þá að stoppa við og teygja aðeins úr mér enda gott veður. Norðan Stórubrókar blasti við mér í lok gönguferðarinnar forn fjárrétt. Rétt sem er friðlýst eins og allt Grábrókarsvæðið. Sannkölluð náttúruperla fyrir okkur og börn framtíðarinnar að njóta […]
Í tilefni frétta dagsins um endurteknar lokanir í Landeyjarhöfn og umræðu um misheppnaðar ríkisframkvæmdir, er gott að rifja upp 5 ára gamlan pistil á Eyjunni um þann atburð sem valdið hefur mér og mörgum öðrum miklum heilabrotum síðan. Í gamla daga kunnu menn að lýsa því sem fyrir augu bar í þessum efnum og þegar framkvæmdir […]
Heilbrigðisástand þjóðar hlýtur alltaf að vera afstætt hugtak og þar sem við sjáum t.d. í dag víða hörmulegt ástand erlendis og sem stendur fortíðinni hér heima miklu nær en nútíðinni. Af sögunni má best sjá hvað hefur áunnist á síðustu öldum, og vissulega eru sumar heilsuhagtölur í dag góðar miðað við önnur lönd, eins og […]
Nú er verslunarmannahelgin framundan, ein mesta ferðamannahelgi ársins. Þegar oft skín í hárfína hvíta línu milli lífs og dauða ef óvarlega er farið. Framúrakstur er hættulegasti hluti í akstri úti á vegunum, á oft þröngum íslenskum þjóðvegum og aðstæður ekki góðar. Stundum fram úr þungaflutningabílum, jafnvel með jafnlangan aftanívagn, í brekkum og beygjum. Þar sem […]
Á sama tíma og ný blóðsuga, lúsmý, gerir mönnum og dýrum lífið leitt á Íslandi rifjast upp saga sem tengist annarri blóðsugu, moskítóflugunni, en sem hefur ekki enn tekið sér bólfestu hér á landi, einhverja hluta vegna. Lítil fluga sem náði að smita unga stúlku á Haítí upphaflega af fílaveiki fyrir rúmum þremur áratugum, en […]