Föstudagur 13.03.2009 - 23:12 - FB ummæli ()

Græðgi, siðleysi og spilling – ennþá!

Það fauk hressilega í mig þegar ég horfði á fréttir Stöðvar 2 í kvöld. Þetta getur ekki verið annað en svik og brot á samningum sem gerðir voru í febrúar um að bíða með launahækkanir til handa launþegum. Hér ætla eigendur fyrirtækis að greiða sjálfum sér arð sem myndi nægja í áður umsamda launahækkun starfsmanna í átta ár! Samið var um frestun – væntanlega vegna þess hve fyrirtækin eru blönk… eða hvað? Varla HB Grandi fyrst þeir hyggjast ausa fé í vasa eigenda á meðan starfsfólkið má lepja dauðann úr skel og fær ekki umsamda launahækkun.

Hafa þessir menn ekkert lært? Ætlar verkalýðshreyfingin að láta þetta óátalið? En ríkisstjórnin? Einn þessara manna skuldar þjóðinni stórfé! Ætti arðgreiðslan hans ekki að renna óskipt í ríkiskassann? Það verður að stöðva svona siðlausa græðgi.

Flokkar: Eldra

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Ummæli

  • Óskráður

    154.500 sérhæfur starfsmaður eftir 7ár hjá GRANDA

  • Ólína Þorvarðardóttir

    Gott og vel Svanur

  • Svanur Gísli Þorkelsson

    Gott og vel Ólína. Ég sé að þér er fyrirmunað að sjá samhengið milli spillingu og valdasækni og hugmyndastefna. Ég er þeirrar skoðunar og mörg hugmyndakerfi, þ.á.m. frjálshyggjan sé ekkert annað en tjáning þessara neikvæðu kennda.

  • Óskráður

    „FRELSIÐ er YNDISLEGT ég geri það sem ég vil….“

  • Ólína Þorvarðardóttir

    Sæll Svanur.

    Ég vil ekki orðlengja þetta mikið – en ég sé ekki alveg samhengið í því sem þú ert að segja.

  • Hermann Bjarnason

    Má ég benda á að íslensk verkalýðshreyfing hefur verið þæg miðað við sbrl. á norðurlöndum og víðar. Í raun ótrúlega þæg miðað við að lágmarkslaun hér á landi hafa aldrei nægt til að sjá neinum farborða. 40 stunda vinnuvika, hvað…? Það var helst að kennarar héldu uppi baráttunni síðustu tuttugu ára. Við hin verið dregin á asnaeyrunum.

  • Svanur Gísli Þorkelsson

    Sæl Ólína.

    Þér finnst það já. Með Flokkspólitík er m.a átt við stefnu einstakara flokka og áhrif

  • Ólína Þorvarðardóttir

    Svanur – mér finnst þú seilast ansi langt í að setja þetta mál í flokkspólitísk ljós. En þú mátt hafa þína skoðun að sjálfsögðu.

    H.Pétur – ég hef aldrei setið á þingi.

    Lára Hanna – þú ættir að fá borgað fyrir að blogga.

  • Arinbjörn Kúld

    Í sjálfur sér eru það góðar fréttir að fyrirtæki skili arði. En ákvörðun stjórnar HB-Granda er sem köld vatnsgusa framan í íslenska þjóð og sérstaklega starfsmenn HB-Granda. Siðlaust.

  • Svanur Gísli Þorkelsson

    Anna; Auðvitað er það óraunhæft að minna en 50% kjósi, álíka óraunhæft og að einverjar breytingar verði

  • Lára Hanna Einarsdóttir

    Ég myndi aldrei mæla með því að kjósendur skiluðu auðu í stórum stíl eða mættu ekki á kjörstað. Það væri beinlínis ávísun á stjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks því hinir hörðu kjarnar í þeim flokkum kjósa sína flokka hvað sem tautar og raular og hver sem þar er á lista. Auð, ógild eða engin atkvæði myndu því koma þeim best.

    Ólína… nei, ég vissi ekki að Egill fengi borgað fyrir að blogga og aldrei pælt í því, en mér finnst það bara fínt. Hann hefur haft mikil áhrif með blogginu sínu, rétt eins og Silfrinu, og gert marga góða hluti. Ég held áfram að vísa í þættina hans og bloggið á meðan mér finnst það þess virði og vera upplýsandi.

    Ég vildi óska þess að einhver vildi borga mér fyrir að blogga áður en ég fer endanlega á hausinn.

  • Óskráður

    Egill sagði einmitt frá sínum launum á bloggsinu sínu um daginn.

  • Anna Einarsdóttir

    En varðandi fréttina;

  • Anna Einarsdóttir

    Ég er alveg sammála Einari, fólki ber siðferðisleg skylda til að nýta kosningarétt sinn.

  • Svanur Gísli Þorkelsson

    Einar reit; „það skiptir ekki máli þó að það yrðu 200.000 auð atkvæði, ef restin kýs ruglið yfir.“

    Spurningin er hver mundi vera svo djarfur að reyna að mynda stjórn ef minna en 50% þjóðarinnar

  • Óskráður

    Þetta kemur mér ekki á óvart,þessir menn eru og hafa verið veruleikafyrtir,þeir hafa ekkert breyst,við þurfum að fylgja þessum fréttum eftir skrifa og tala um það og vera stöðugt á vaktinni.

    Hvernig væri að skoða laun og hlunnindi spilltra forstjóra lífeyrissjóðanna og formanna veraklíðsfélagana sem gjamma í öllu fjölmiðlum um að

  • Einar Indriðason

    Það má EKKI sitja heima og hundsa kosningarnar!

  • Svanur Gísli Þorkelsson

    Ég sé reyndar að Herbert í færslu 4 minnist á þá líka.

  • Svanur Gísli Þorkelsson

    Þorbergur og Ólína.

    Ykkur virðist annt um að drepa þessari umræðu á dreif með því að reyna frýja einhverja stjórnmálaflokka ábyrgð.

    Ég er er sá fyrsti og eini sem minnist á „fjórflokkana“ í athugasemdum hér og það er gert í því samhengi að samkvæmt skoðanakönnunum hafi fylgi þeirra ekkert breyst þrátt fyrir undangengið róstur og mótmæli. Að sama skapi virðist viljinn til að skakka leikinn og koma á réttlátari samfélagi með því t.d. að leggjast gegn

  • Ásgeir Kristinn Lárusson

    Ég bíð spenntur þess dags er Íslendingar taka atvinnutækin í SÍNAR hendur. Því fyrr því betra…

  • Ólína Þorvarðardóttir

    Ég er sammála þér Lára Hanna – það er óásættanlegt að eigendur HB-Granda

  • Húnbogi Valsson

    Sammála Þórbergi. Stuðningsmenn spillingarflokksins (X-D) og Framsóknar (sem er líka næstum jafn spilltur) Reyna að festa þetta hugtak (Fjórflokkurinn) í umræðunni. Til að láta fólk halda að hinir séu líka sekir og þess vegna sé ekkert betra að kjósa þá. Ég hvet fólk til að kynna sér málin og reyna að finna einhver spillingamál sem VG hefur staðið fyrir. Samfylking er ekki beinlínis spillt en hefur verið meðvirk í ruglinu. Hættið að tala um þennan „Fjórflokk“. Hann er ekki til!

    Þessi gerningur hjá stjórn HB Granda, núna og miðað við aðstæður í þjóðfélaginu, lýsir ekki öðru en heimsku. Fjöldagjaldþrot hjá almenningi er kannski sú mesta hætta sem steðjar að íslensku efnahagslífi núna. Svo að fresta launahækkun og stinga peningunum í eigin vasa er beinlínis til að auka hættuna á gjldþrotum starfsmanna. Vægast sagt fáranleg aðgerð.

  • Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

    Ótrúlegt sukk og siðblinda

  • alveg sammála Þórbergi hér,enda hver á að skilja svona einsog t.d.Jón Magnússon sem komst á þing fyrir frjálslynda og bíður nú fram fyrir sjálfstæðisflokkinn og verður sennilega kosinn fyrir hljómlistarflokkinn í kulusukk…

  • Þórbergur Torfason

    Alveg hreint ótrúlegar upphrópanir hér.

    Hvað er átt við með fjórflokkum? Er það Íhald, Framsókn, Frjálslyndir, Samfylking, Vinstri Grænir

  • Rakel Sigurgeirsdóttir

    Guð minn góður!!! Maður fær bara tár í augun Hvað er að fólki sem leyfir sér að haga sér svona!? Annaðhvort er samasemmerki milli græðgi og heimsku eða heimska er bein afleiðing græðgi!!!

  • Hólmdís Hjartardóttir

    fullkomlega siðlaust

  • Guðmundur St Ragnarsson

    Þetta er allavega ekki þetta NÝJA ÍSLAND sem allir tala um á hátíðarstundum!

    Kveðja,

    Muggi.

  • Óskráður

    Ekki kenna bara fátækum fyrirtækjarekendum hvernig komið er í þessu máli !

    Það eru hámenntaðir verkalýðsrekendur , sem eru ekki til viðtals við félaga sína nema með hótunum, sem reka ASÍ

  • Svanur Gísli Þorkelsson

    Það er greinilegt á öllu að þeir sem þrá

  • þú ert bara ekki að skilja þetta Lára Hanna,í þessu fyrirtæki eru illa staddir hlutafar einsog Ólafur Ólafsson sem tapað miklu á kerfishruni Hannesar Hólmsteins

  • Óskráður

    Ekkert mun breytast ef við kjósum fjórflokkinn. Nákvæmlega ekkert!

  • Óskráður

    Hjartanlega sammála þér varðandi þetta. En því miður það fólk sem heldur að eitthvað muni breytast hér er annaðhvort kjósendur Siðblinda Flokksins (Sjálfstæðisflokkur), í algjörri afneitun eða bara með greind á við brauðrist.

    Hér mun EKKERT breytast fyrr en fólk snýr algjörlega baki við öllum flökkum hér og tekur málin í sínar hendur. Vera búinn að segja þetta og vita hvernig landsmenn eru þá er niðurstaðan einföld; Ekkert mun breytast.

    Kveðja, Karl

  • Óskráður

    Hvar er nú ÖLL samstaðan ? Hvar eru allir ASI forkólfarnir ? Þetta er ekki BARA algjörlega siðlaust, Þetta er SJÚKLEGT !

    ÞÁ VITUM VIÐ HVAÐ KOMA SKAL

  • Rut Sumarliðadóttir

    Ógeðslegt. Ósiðlaust. En dæmigert, greinilega ekkert breyst. Verkalýðsforystan steindauð og hefur verið lengi. Launin þar allt of há og sætin allt of mjúk. Það er ekki nokkur leið fyrir fólk í þeirri stöðu að setja sig í spor þeirra sem þau vinna fyrir.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sex og átta? Svar:

Höfundur



Eldri færslur

Dagatal

mars 2009
S M Þ M F F L
« feb   apr »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031