Þriðjudagur 21.04.2009 - 01:27 - FB ummæli ()

Sjálfstæðisflokkurinn og skattarnir

SjáLfstæðisFLokkurinnSjálfstæðisflokkurinn er í tómu tjóni þessa dagana og skyldi engan furða eftir þann gríðarlega skaða sem hann hefur valdið þjóðinni. FLokkurinn veit ekki sitt rjúkandi ráð og skilur ekkert í af hverju kjósendur trúa ekki bullinu og mótsögnunum sem vellur upp úr frambjóðendum og klappliði flokksins. Þeim hefur hingað til tekist að ljúga fólk fullt en nú virðast mun færri trúa þeim en áður. Það er jafnvel gripið til ótrúlegustu uppátækja eins og hér má sjá.  Kannski þurfti hrunið til að fólk áttaði sig á blekkingum FLokksins, en það var æði dýrkeypt lexía.

FLokkurinn hamast nú við að auglýsa – og ekki bara sjálfan sig og huggulega fólkið sitt heldur eyða einhver dularfull öfl, væntanlega á hans vegum, miklum peningum í upplognar auglýsingar um skelfilegar skattahækkanir ef „vinstri stjórn“ kemst til valda eftir kosningar. Samkvæmt þessu eru þar bæði lygar og villandi upplýsingar og passar engan veginn við það sem sagt hefur verið. Þetta er þekkt taktík í stjórnmálum og víðar og gjarnan nefnd „Látum þá neita því“ aðferðin. Hún felst í því að ljúga einhverju upp á andstæðinginn sem hann síðan ber til baka. En fræi efans er sáð, sá er tilgangurinn. Þetta er ein sóðalegasta og óheiðarlegasta baráttuaðferð sem fyrirfinnst í stjórnmálum.

En það er þetta með skattana… Sjálfstæðiflokkurinn reynir nú hvað hann getur að telja kjósendum trú um að hann geti veifað töfrasprota og þurfi ekki að hækka álögur á almenning í landinu. Slíkt sé algjör vinstrivilla sem ekki sé hlustandi á. Þetta er auðvitað fáránlegt. Sjálfstæðismenn með eignarrétt yfir þótt ekki sé nema nokkrum heilasellum sjá að slíkar fullyrðingar eru þvættingur í ljósi þeirra aðstæðna sem einmitt FLokkurinn sjálfur hefur komið þjóðinni í. Ég hef enga trú á að nokkur kjósandi með viti falli fyrir svona málflutningi.

Sjálfstæðismönnum eru þó skattar mjög hugleiknir og hafa verið manna duglegastir við að hækka skattbyrði almennings í landinu í stjórnartíð sinni. Man einhver eftir skýrslum Stefáns Ólafssonar frá vorinu 2006 þar sem Stefán sýndi með ótvíræðum hætti fram á að skattbyrði þeirra sem minna mega sín hefði hækkað mjög á Íslandi frá 1995 til 2005? Ég man vel eftir þessu og hve harkalega sjálfstæðismenn reyndu að neita því. En ári síðar, í mars 2008, komu niðurstöður úr rannsókn OECD sem staðfestu allt sem Stefán hafði haldið fram = Skattbyrði einstaklinga og fjölskyldna hafði aukist verulega á Íslandi 1995-2005, mun meira en í öðrum OECD-ríkjum. Þetta er einfaldlega staðreynd sem ekki verður horft fram hjá. Rifjum þetta aðeins upp.

Fréttir Stöðvar 2 – 12. – 16. mars 2008

Fréttir RÚV 12. mars 2008

Það sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gerði aftur á móti var að breyta Íslandi í skattaparadís fyrir fyrirtækjaeigendur og fjárfesta. Það er líka staðreynd.

Stefán Ólafsson, prófessor

Viðfest neðst í færslunni er nýtt skjal frá Stefáni Ólafssyni með myndrænum skýringum á skattamálum og þróun þeirra undanfarinn hálfan annan áratug. Ég hvet alla til að skoða skjalið vel og vandlega og senda þessar upplýsingar áfram til sem flestra. Ef skjalið opnast ekki hjá einhverjum útbjó ég albúm með skýringarmyndunum hér þar sem hægt er að fara i gegnum þær. Hér er líka Spegilsviðtal við Stefán Ólafsson frá 12. mars 2008.

„Í dag segja þeir sem hækkuðu skattbyrði 90% almennings í góðærinu (Sfl. og Ffl.) að þeir ætli ekki að hækka neina skatta nú, þrátt fyrir geigvænlegan halla á ríkisbúskapnum (um 170 milljarðar). Þeir sögðu ósatt um skattastefnu sina 1995 til 2005. Er þeim treystandi þegar þeir segjast ekki ætla að hækka nú? Eða vilja þeir frekar leggja íslenskt samfélag í rúst? Samanlögð útgjöld félags- og tryggingamálaráðuneytisins og menntamálaráðuneytisins eru um 172 milljarðar. Það þyrfti að loka menntakerfinu og velferðarkerfinu (almannatryggingum o.fl.) alveg, ef niðurskurðurinn væri allur tekinn þar. Heilbrigðiskerfið kostar 115 milljarða á árinu og dugir því ekki að loka því alveg einu og sér. Menntakerfið (58 milljarðar) þyrfti t.d. að fara líka! Heildarkostnaður ríkisins er um 555 milljarðar árið 2009. Ef allur hallinn er tekinn með niðurskurði þarf að stórskaða alla grunngerð samfélagsins. Eða er markmiðið að einkavæða i staðinn og bjóða upp á menntun og heilsugæslu eingöngu fyrir þá sem hafa greiðslugetu fyrir slíkuÞá væri Ísland orðið mun „amerískara“ en Bandaríkin.

.

Halldór Baldursson - Vondi prófessorinn

Flokkar: Eldra

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Ummæli

  • Óskráður

    Það þarf alltaf að taka útreikningum Stefáns Ólafssonar með fyrirvara. Hér miðar hann við verga landsframleiðslu og túlkar það sem skattbyrði án þess að sýna aðrar stærðir.Hann minnist auðvitað aldrei á kaupmátt enda hentar það ekki hans markmiðum (eða skilur hann ekki hugtakið?)

  • Hörður B Hjartarson

  • Húnbogi Valsson

    Fnykur frá kaldastríðsárunum hjá Halldóri Jónssyni. Að kalla gagnrýnisraddir „kommana“. Þannig var, á kaldastríðstímanum, að allir sem spurðu spurninga sem ekki féllu í kramið hjá Flokknum, Heimdalli eða Varðberg voru úthrópaðir „Kommúnistar“. Mér finnst, að vera kallaður „Kommúnisti“ af þessu liði, vera hrós: Það þýðir: að vera opinn fyrir upplýsingum (frekar en áróðri), gagnrýninn og sjálfstætt hugsandi. Mikið sé ég eftir að hafa aldrei komist í Keflavíkurgöngu.

  • Óskráður

    Húrra fyrir þér Lára Hanna….orð í tíma töluð og við skulum hafa það sem sannara reynist….hér sést hver hinn raunverulegi Skattmann er á hinn venjulega borgara þessa lands!!

  • Óskráður

    Þeir ætla ekki að hækka skatta. Alls ekki. Þeir ætlar að nýta „tekjutengingar“ sagði konan á Selfossi í gær. Tekjutengingar? Jamm og já!

  • Harpa Björnsdóttir

    Halldór, er sem sagt allt hitt ósatt? Eða geta Sjálfstæðismenn viðurkennt að skattar á lágtekjufólk

  • Hildigunnur Rúnarsdóttir

    Halldór, kemur enn ein lygin. VG hefur reifað að leggja eignaskatt á stóreignamenn, eftir því sem ég best veit kemur ekki til greina að leggja eignaskatt á íbúðir og hús sem fólk býr sjálft í.

  • Halldór Jónsson

    Það er hressandi að koma inn á

  • Óskráður

    Staðreyndir og einfaldleiki.
    Fullyrðing að heimili og atvinnulíf geta ekki borgað þessa háu vexti.

    Vextir lækka, og þá á að setja hærri skatta , getur sá er ekki getur borgað vexti getur hann borgað hærri skatta.

    Hærri fjármagnstekjuskattur (sem ég væri undir venjulegum kringumstæðum hlyntur) þýðir einfaldlega hærri vexti.

    Getur heimili sem hefur farið varlega og á sína húseign skuldlitla en báðar fyrirvinnur atvinnulausar borgað hærri skatta hvort sem er tekjuskatta eða eignaskatta. Og til að bæta gráu ofan á svart borga eignaskatt af fasteignaverðmati sem er úti í hött. Því samkvæmt lögum verður því ekki breytt til lækkunar á næstunni.

    Evra eða EU tekur 1-3 ár að komast í gegn og breytir engu um ástandið næstu mánuði, trúverðuleiki eykst smá saman en hefur trúlega ekki áhrif að ráði fyrr en á næsta ári. Sjálfsagt að skoða þetta og fá að vita hvað ætlum við að kaupa af EU og hvað ætlum við að selja == og þá hvað kostar þetta og hvað fáum við í staðin. EU skapar ekki stöðugleika án Evru – spurning sem verður að svara hvenær fáum við Evru.

    Ef Evra kemur eftir þátttöku í EMR í fimm ár þá skipti EU ekki máli við verðum hvort sem er komin á hausin.

    Ef fólk kýs ekki eða skilar auðu þá er það ekki að taka afstöðu til þessara mála.

  • Hólmdís Hjartardóttir

    Að fólk skuli gleypa við þessu…..sanntrúaðir munu kjósa Flokkinn áfram því miður.
    30BEDA55-B2D0-6370-817A-081F7BF5D664

  • Óskráður

    Ég elska að fólk sé farið að rita FLokkurinn! held að þetta deyji seint eða aldrei! og verður þá vonandi minnisvarði Péturs Blöndal um skítleg vinnubrögð og siðspillu FLokksins. Hann vildi nú láta tónlistarhúsið standa sem minnisvarði um eyðslu og geðveikina, en nú hefur FLokkurinn búið til FLottari minnisvarða alveg sjálfir 😀

  • Sigrún Jónsdóttir

    Frábær samantekt hjá þér Lára Hanna.

  • Óskráður

    Sæl Lára Hanna.

    Þú átt þakkir skyldar fyrir að halda utanum ýmis gögn, dusta af þeim rykið og birta á ný. Við þurfum upplýsingar svo við getum farið að segja satt og rétt frá staðreyndum. Pínlegt hvað stjórnmálamenn eru fljótir að gleyma og fljótir að afneita fyrri gjörðum. Það á við um marga þeirra og verst að kjósendur eru sama marki brenndir. Margir virðast líta á stjórnmál eins og íþróttakappleikog fylgja sínu liði gegn um þykkt og þunnt.

    Ég er ekki búinn að gleyma því að helstu viðbrögð síðustu ríkisstjórnar við kreppunni var að auka opinberar álögur á brennivín og endsneyti. Hvað jukust skuldir heimilanna við það, vegna vísitöluvitleysunnar? Gáfulegt kerfi???

  • Húnbogi Valsson

    Sjálfstæðisflokkurinn kemur núna með sama áróðurinn og hefur verið áberandi hjá honum fyrir allar kosningar sem ég man eftir. Það er: að skapa þá ímynd að aðeins aldraðir eigi eignir! Afskaplega lúalegt.

    Svo hafa þeir verið að bera út þá lygasögu að Steingrímur J. Hafi grætt 16 milljónir á eftirlaunalögunum. Finnst fólki trúlegt að maður sem hefur alltaf verið í fullu starfi, hafi fengið eftirlaun?

  • Sigurveig Eysteinsdóttir

    Það verður bara að sýna þessa fréttatíma aftur í sjónvarpi fyrir kosningar.

  • Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

    SjálftökuFLokkurinn er mesti óvinur okkar lýðsins.

  • Alma Jenny Guðmundsdóttir

    Og ekki gleyma að telja upp skýrslu fjármálaráðuneytisins frá síðustu dögum Árna Mathiesen m.a.s. – að þar kom fram að skattbyrði hafði aukist umtalsvert síðustu árin og hlutfallslega lang mest á þá lægst launuðu.

    Þessu bombaði ég á BB á opinberum fundi en hann sagði nei – þvættingur

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og fjórum? Svar:

Höfundur



Eldri færslur

Dagatal

apríl 2009
S M Þ M F F L
« mar   maí »
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930