Fimmtudagur 13.09.2018 - 10:07 - Rita ummæli

Blóðnasir úr leiðindum

Hugsa að það hefði verið heldur skárra að sitja í gæsluvarðhaldi í einangrun en að afplána ræður stjórnarandstæðinga í þinginu í gærkvöldi um stefnuræðu forsætisráðherra. Efast um að nokkur hafi skilið ræður Píratanna, ekki einu sinni þau sjálf. Ræðumenn Samfylkingarinnar slógu eigið Íslandsmet í lýðskrumi, tvískinnungi og útúrsnúningi. Eins mikið og mér finnst vænt um Flokk fólksins hefði verið gaman að heyra eitthvað nýtt þar. En auðvitað er góð vísa aldrei of oft kveðin.

Þeir sem hyggjast hlusta á ræðurnar á netinu ættu að hafa þurrku við hendina. Þekkt er að menn geti fengið blóðnasir úr leiðindum.

Flokkar: Blogg

«
»

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af einum og fimm? Svar:

Höfundur

Brynjar Níelsson
Hæstaréttarlögmaður. Alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
RSS straumur: RSS straumur

Nýlegar athugasemdir

    Flokkar