Mánudagur 10.01.2011 - 08:05 - 24 ummæli

XD – hláturinn lengir lífið…

Alveg frá því að fréttin um stofnun nýs flokks vakti nokkra athygli um jólin, höfum við sem stöndum að þessa nýja framboði beðið eftir viðbrögðum sjálfstæðismanna. Í gær komu síðan viðbrögð í Silfri Egils, en úr óvæntri átt. Ólafur Stephensen, sjálfstæðismaður og ritstjóri Fréttablaðsins, notaði hina alræmdu smjörklípuaðferð til að gera lítið úr tilburðum okkar til að skapa nýjan flokk á hægri væng stjórnmálanna. Kemur þetta mér á óvart? Nei, allsendis ekki! Auðvitað hefur Valhöll brugðist við og mátti glöggt sjá hvaða nálgun átti að nota til gera þetta nýja framboð ótrúverðugt, t.d. á vefnum amx. Fyrir meirihluta landsmanna, sem ekki þekkja þann vef, þá er þetta vefur Óla Björns Kárasonar, varaþingmanns úr teboðshreyfingu Sjálfstæðisflokksins og stórskuldara, sem er helst frægur fyrir að hafa verið óstýrilátur mótmælandi og vel við skál fyrir utan Alþingi á liðnu hausti. Að Ólafur og aðrir félagar í órólegu deild Sjálfstæðisflokksins ætli að gera lítið úr okkur félögum kemur heldur ekki á óvart. Sumir ESB sjálfstæðismanna vilja í raun halda í gamla Sjálfstæðisflokkinn, kvótakerfið og klíkurnar, þótt sama fólk vilji síðan ganga í ESB. Ég hef alltaf verið gamansamur maður og hef getað hlegið að sjálfum mér í gegnum tíðina. Því hlæ ég dátt með sjálfstæðismönnum að stofnun nýs flokks, sem ég og aðrir standa að, en minni um leið á þekktan málshátt um hlátur þeirra sem síðast hlæja.

Hversvegna stöndum við uppi með þetta lélega lið á Alþingi? Jú, að mínu mati er ástæðan að enginn nennir eða þorir að takast á við skítkast af þessu tagi. Að auki má búast við hefnd Fjórflokksins og þó alveg sérstaklega Sjálfstæðisflokksins. Þetta hefur verið staðfest við mig í ótal samtölum við hægri- og miðjumenn á undanförnum mánuðum. Þetta var og er ástæðan að fáir „þungavigtarmenn“ þora að bjóða fram á móti Sjálfstæðisflokknum eða gagnrýna opinbera stefnu hans. Í Sjálfstæðisflokknum ríkir sá flokksagi og flokksrefsingar, sem Steingrím J. Sigfússon dreymir um að hafa. Við í þessum nýja framboði höfum beðið óánægð í nokkur ár eftir að „einhver annar“ stofnaði nýjan stjórnmálaflokk. Við íhuguðum fyrst virka þátttöku í stjórnmálum þegar við sáum okkur tilknúin til þess, þ.e. þegar okkar gömlu flokkar höfðu ekki aðeins sett landið á hausinn, heldur gert lítið úr lífsskoðun okkar allra. Augu okkar opnuðust og okkur varð ljóst, að það var aldrei ætlunin að losa Ísland úr fjötrum þeirrar fákeppni og einokunar, sem hér hafði ríkt frá alda öðli. Það var aldrei hugmyndin að koma hér á blönduðu markaðshagkerfi, þar sem frelsi eistaklingsins og viðskiptafrelsi er virt með þeim hætti, sem gerist á Norðulöndunum eða í Evrópu. Þannig var helsta auðlind þjóðarinnar – fiskurinn í sjónum – afhentur stuðningsmönnum ríkisstjórnarflokkanna. Úr einkavæðingu varð einkavinavæðing og að lokum var bönkunum skipt skv. helmingaskiptareglu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Allt var þetta síðan tryggt með því að halda eftirlitsstofnunum vanmáttugum og hafa þar við stjórn dygga og hlýðna stuðningsmenn fyrrnefndra flokka. Í raun átti það sama stað hér og í Sovétríkjunum, þegar kommúnistarnir féllu og olígarkarnir hirtu það sem þeir vildu.

Það er vissulega göfugt að Ólafur Stephensen og fleiri góðviljaðir menn vilji á einhvern hátt reyna að endurhæfa Sjálfstæðisflokkinn og leiða hann til betri vegar. Það er hins vegar jafn líklegt að það takist og ef einhverjum tækist að gera Mafíuna að Fjölskylduhjálp Ítalíu. Það sem er verst af öllu er að innan Sjálfstæðisflokksins eru þúsundir góðra manna og kvenna blekkt til að vinna gífurlegt ólaunað starf fyrir litla mafíu útgerðarmanna og nokkrar fjölskyldur, sem hafa haldið um völdin hér á landi í 100 ár. Við sem stöndum að þessu nýja framboði höfum hreina samvisku og erum til í að leggja á okkur ómælda vinnu til að hér komist á nýtt Ísland, sem byggir á frjálslyndum gildum um blandað markaðshagkerfi að fyrirmynd norrænna miðju- og hægriflokka. Og ef það er eitthvað sem við ætlum að taka alvarlega, þá er boðskapur Rannsóknarskýrslu Alþingis. Þar kemur skýrt fram að það var skortur á heiðarleika, virðingu, réttlætiskennd, gagnsæi og góðu siðferði, sem olli hruninu. Ísland er því miður skrumskæling af markaðshagkerfi. Hér ríkir á mörgum sviðum aðeins að nafninu til samkeppni og viðskiptafrelsi og það var aldrei hugmyndin að það yrði öðruvísi.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (24)

  • Sigurður Gunnarsson

    Ég sé ekki betur en að það sé þegar til flokkur fyrir þig. Samfylkingin!

  • Steinarr Kr.

    Ekki er ég nú viss um að við Sjálfstæðismenn teljum Ólaf Baugsmann í okkar röðum.

    Varðandi Óla Björn, þá á það við hérna að „hafa skal það sem betur hljómar“. Kynntu þér þau mál betur áður en þú slettir svona fullyrðingum fram.

    Held líka að það sé til flokkur fyrir þig: Samfylkingin.

  • Sig. Karl

    Góður pistill.

  • Sigurjón

    Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið hagsmuna- og klíkubandalag. Kjarnastarfsemin hefur verið að nota ríkisvaldið til að verja fyrirtæki flokksmanna fyrir samkeppni og tryggja þeim sérréttindi. (sbr. Eimskip og Aðalverktaka.)

    Núna græðir engin klíka á yfirgefa Valhöll. Flokkurinn er í stjórnarandstöðu. Hagsmunabaráttan hefst þegar og ef flokkurinn kemst í stjórn og fær aftur yfirráð yfir ríkisvaldinu. Allar klíkurnar bíða átekta – líka Baugspennarnir.

    Meðan þessi staða er uppi á flokkur þinn enga möguleika. Það er bara hlegið að hugmyndum um hófsama íhaldsmennsku að fyrirmynd norrænna hægriflokka. Saga Sjálfstæðislfokksins snýst um peninga og ekki hugsjónir.

  • Biturt og ómerkilegt innlegg frá þér. Er það svona sem þú ætlar að afla atkvæða og er þetta pólitíkin sem á að stunda? Þá ertu betur kominn í Samfylkingunni, enda pólitíska sýnin hin sama og þar áttu jafnoka í skítkastinu.

  • Thrainn Kristinsson

    Heyr heyr!

  • Þorsteinn Úlfar Björnsson

    Fyrst vorum við þrælar. Þegar það mátti ekki lengur kom vistarbandið og þegar það mátti ekki urðum við að skuldaþrælum. Ergo: við erum þrælar.

    Hefur eitthvað breyst? Mun eitthvað breytast?

  • Óli björn skrifar á t24.is, löngu hættur á amx.is. Gott hjá þér að sýna þitt innra eðli með ógeðslegu skítkasti samt. Kannski þessvegna sem það var hlegið að þér í silfrinu. Þú ert líka með skemmtilegar samsæriskenningar. Allt í hausnum á þér samt.

  • „Fyrir meirihluta landsmanna, sem ekki þekkja þann vef, þá er þetta vefur Óla Björns Kárasonar, varaþingmanns úr teboðshreyfingu Sjálfstæðisflokksins og stórskuldara, sem er helst frægur fyrir að hafa verið óstýrilátur mótmælendi og vel við skál fyrir utan Alþingi á liðnu hausti. “

    Er þetta nýja pólitíkin?

  • Iceviking

    Fínn pistill Guðbjörn. Fjöldi manna ætti að kjósa ykkur.

    Tekj undir gagnrýni þína á Ólaf Stef. Maðurinn er steingeldur hugsuður enda tröllheimskur , allt nema uppskrúfaður hroki fyrir ESB inngöngu kemur frá þessum manni. Ólafur er verri en enginn þarna á ritstjórastólnum !

  • Óðinn Þórisson

    Guðbjörn

    Samlíkingar þínar eru ekki merki um að að þau nýju stjórnmál sem þú boðar séu til þess fallnar að auka virðingu við þetta nýja framboð

    Sjálfstæðisflokkurinn
    stétt með stétt

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Steinarr og Sigurður:

    Hádegismatur og loksins tími til að líta á ummæli við bloggið í morgun.

    Ég sé að margir sjálfstæðismenn eru hræddir við nýtt framboð og vilja senda alla hægri menn, sem ekki nenna að láta troða á sér í Sjálfstæðisflokknum, í opna arma Samfylkingarinnar. Ég segi nú bara að enginn er ég „sósíaldemókratinn“ þótt ég vilji klára aðildarviðræðurnar við ESB. Ég sé nú ekki að þetta blogg sé á vinstri nótunum. Menn eru ekki endilega vinstri menn, þótt þeir séu andsnúnir sukki og svínaríi, sérhagsmunagæslu og klíkuráðningum. Ekki að vinstri flokkar séu ekki við sama heygarðshornið og sjálfstæðismenn í þeim efnum.

    Ófeigur, mar og Birgir:

    Ég er ekki bitur, heldur afskaplega ánægður að hafa yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn. Ég sakna margra félaga minna í flokknum, sem eru heiðarlegt og gott fólk og ég skil bara ekki hvað það er að gera í þessum flokki.

    Skítkastið byrjaði á amx og síðan voru menn við það sama í Silfrinu í gær. Ég kann á dráttarvél og drulludreifara enda rak fjölskyldan þokkalega stórt hænsnabú í 15 ár! Ég þori að verja mig – ef þörf er á með drullu – og læt ekki Valhöll valta yfir mig.

    Óðinn:

    Á maður kannski að leyfa þessu fólki að fara sínu fram og bjóða hinn vangann?

    Ég held að heiðarlegir sjálfstæðismenn ættu að hafa áhyggjur af því að 75% þjóðarinnar ber alls enga virðingu fyrir Sjálfstæðisflokknum!

    Látið okkur í þessa nýja framboði síðan um að hafa áhyggjur af því hvort fólk ber virðingu fyrir okkur!

  • Hvernig gastu verið í Sjálfstæðisflokknum í öll þessi ár, ef þér er svona illa við hann? Ertu svona seinn til, að það tók þig langan tíma að átta þig á hvaða skoðun þú hefur á flokknum, eða ertu bara sár út í flokkinn fyrir að hafa alfarið hafnað þessum ESB málum þínum?

    Ég myndi síðan ekki halda því fram að Ólafur Stephensen væri einhver mógúll þeirra uppi í Valhöll. Hann er ritstjóri á Fréttablaðinu, sem stór hluti Sjálfstæðismanna hefur ímugust á.

    Mér sýnist þetta kalda mat þitt á stöðunni ekki vera rétt.

    Þessi flokkur sem þú ert að vinna í að koma á laggirnar á hins vegar rétt á sér eins og aðrir flokkar sem vinna skv. þeim lögum og reglum sem settar eru í kringum stjórnmálaflokka.

  • Elías Péturson

    að hluta ágætur pistill, margt af því sem þú segir um flokkinn er verðugt umhugsunarefni og sumt vel réttmætt, verst að þú skulir falla í persónulegt yfirdrull á köflum….en er ekki þín „agenda“ er svolítið lituð af því „himnaríki“ sem sumir telja búa í ESB aðild?
    Hef grun um að þú ágæti Guðbjörn værir enn í þessum flokki ef ESB aðild væri á stefnuskrá hans 🙂

    En Sjálfstæðisflokkurinn þarf svo sannarlega að hysja upp um sig brækurnar ef hann vill vera afl áfram, það þarf engann utanflokksmann til að sjá það.
    Slælegur árangur flokksins við þá uppgirðingu er ekki almennum flokksmönnum að kenna, þar hefur hluti forystunnar um vélað og getur sjálfri sér þakkað árangurinn.

  • Trausti Þórðarson

    Þér finnst ólíklegt að hægt sé að breyta mafíunni í fjölskylduhjálp.
    Mér finnst ólíklegt að þér takist að virkja fyrrverandi og núverandi liðsmenn sjálfstæðisflokksins til góðra verka.
    Samt get ég ekki annað en óskað flokki þínum góðs gengis ef það gæti orðið til þess að að hefja okkur upp úr þeim leðjuslag sem einkennt hefur stjórnmálaumræðuna.Flokkurinn þinn er óspilltur ennþá en það mun breytast þegar/ef hann kemst til áhrifa.
    Hið gríðar mikla vald sjálfstæðisflokksins hlaut að leiða af sér spillingu.
    Vonandi nær enginn flokkur til hægri eða vinstri þeirri stöðu sem sjálfstæðisflokkurinn hafði.
    Á málefnalistanum hér til hægri er fátt sem ekki er hægt að samþykkja en eitt veldur mér samt heilabrotum.
    Þú segir:afskifti ríkisins af atvinnulífinu skulu vera eins lítil og mögulegt er.
    Og síðan:Stjórnvöld beiti sér ekki aðeins fyrir mannfrekri atvinnuuppbyggingu á borð við orkufrekan iðnað heldur einnig uppbyggingu einkasjúkrahúsa,kísilverksmiðja,gagnavera og styðji við bakið á sprotastarfsemi.Hvernig fer þetta saman?

  • Góður pistill og þú talar á beittan en þó hógværann hátt um ormagryfjur klíkiveldanna.
    Í athugasemdum falla sumið í þá gryfju að nýða einstaklinga sem ekki eru sammála þeim.

    Það er mjög lítilmannlegt og verður seint til bóta á málstað viðkomandi. Sú uppskrift er auðvitað beint úr Valhöll og hefur verið notuð af framámönnum Íhaldsins um árabil og er enn, samanber Ólaf Steffensen og fleiri.

    Ég fæ nokkuð oft slíkar athugasemdir við mín skrif og tek þeim í dag sem besta hrósi.

    Mikið er gott að vel gengur með undirbúningsvinnu að stofnun nýja flokksins og fagna ég henni. Það breytir því þó ekki að ég held mig áfram við mitt sósíaldemókrata viðhorf.

    Ykkar nýji flokkur mun trúlega hafa töluvert vægi í stjórnmálunum hjá okkur, ólíkt við smáflokka eins og Hreyfinguna og fleiri sem sprottið hafa upp á undanförnum áratugum.

    Tel að hann muni verða farvegur fyrir heiðarlegt fólk sem vill út hjá Sjálfstæðisflokknum og og jafnvel víðar (Framsókn sem dæmi), sem nú fær tækifæri til að vinna að sínum lífshugsjónum, án þess að klíkuklærnar haldi þeim föstum.

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Ég færði lygaþvælu eftir einhvern, sem kallar sig Berg og er með netfangið:

    spilla@internet.is – (212.30.214.87)

    Það fyndna er að þessi ip tala tengist mbl.is á einhvern hátt, en athugasemdin var merkt þeirri síðu – hugsanlega einn af starfsmönnum blaðsins?

    Bergur:

    Góð saga en ekki sönn, því ég var settur af Halldóri Ásgrímssyni (Framsóknarflokkur) og skipaður af Davíð Oddssyni! Við Davíð Oddsson hef ég aldrei talað á minni ævi og aðeins einu sinni við Halldór Ásgrímsson. Það var yfirmaður minn á þessum tíma, Jóhann R. Benediktsson, sem hvatti mig til að sækja um stöðuna og ég get ímyndað mér að hann hafi mælt með mér við ráðherra.

    Og eitthvað hefur þú gleymt af því sögunni, sem ég á að hafa sagt þér, því ég sótti um eina stöðu sem Geir Hilmar Haarde skipaði í. Ég fékk hana sem betur fer ekki, heldur stöðuna á Keflavíkurflugvelli þar sem ég vildi vera. Kollegi minni, sem var betur að stöðunni kominn en ég, situr enn öruggur á sínum stað á Selfossi! Þetta vita allir í tollinum, enda yfirmannastöðurnar ekki margar.

    Og drulludreifari Valhallar heldur áfram á fullri ferð…

    Það er af þessum sökum að ekki fleiri fást í framboð!

  • Jóhann Grétar Kröyer Gizurarson

    Þetta er flott framtak hjá þér Guðbjörn. Þú átt heiður skilið. Loksins komin álitlegur valkostur í næstu alþingiskosningum fyrir frjálslyndan miðjumann, þótt fyrr hefði mátt vera.
    Á sínum tíma gagnrýndi Gunnar Thoroddsen fyrrv. varaformaður sjálfsstæðisflokksins og fyrrv. forsætisráðherra framsóknarmanninn Jónas frá Hriflu fyrir einræðistilburði. Einnig rann æskudraumur hans um prófessorstöðu við Háskólann í sandinn, stuttu eftir að hann kom úr námi frá Berlín árið 1936, vegna skoðanna sinna, Haraldur Guðmundsson ráðherra sem hann hitti í London stuttu fyrir heimkomuna gat ekki séð sig fært að ráða hann í þessa stöðu, jafnvel þótt hann stæði faglega jafnfætis öðrum umsækjendum, eingöngu vegna pólítískra skoðanna sinna. Þetta sat svo í Gunnari heitnum alla ævi. Ætli Gunnar hafi órað fyrir því að nokkrum árum eftir andlát sitt myndi koma fram formaður sem fyllti allar ríkisstofnarnir af sérvöldum flokksgæðingum og sýndi oflæti og einræðistilburði?

  • Bara okkur til fróðleiks …
    Hvað á þinn flokkur svo að heita Guðbjörn minn?
    Er komið eitthvað nafn?

  • Bragi Páls

    Mér finnst ekki gott hjá þér að hrauna yfir Sjálfstæðisflokkinn á þennan hátt og þar með þína gömlu félaga sem þú hefur deilt trúnaði með.

    Hér fellurðu í sama fúla pitt líkt og margir vinstrimenn sem hafa hraunað yfir Sjálfstæðisflokkinn undanfarin ár og ert í raun búinn að skipa þér á bekk með þeim.

    Er viss um að þeim sem finnst þessi færsla frábær hjá þér, séu margir hvejir vinstrimenn sem sjá í þér bandamann hvað þetta snertir út frá möntru vinstrimanna sem hljómar; „óvinur óvinar minns, er minn vinur“.

    Þetta er ekki góð byrjun hjá þér, Guðbjörn, sem forysturmaður hjá nýjum flokki sem vill láta taka sig alvarlegan.

    Ég er ansi hræddur um að margir Sjálfstæðismanna sem hefðu etv. ætlað að kjósa þinn nýja flokk, muni snúast gegna þér eftir háð þitt og spott í garð Sjálfstæðisflokksinns, sem er til þess eins að skemmta vinstrimönnum.

  • Guðbjörn hún Hólmfríður Bjarnadóttir er aldeilis fegin að fá þig í sinn flokk Samfylkinguna það er alveg ljóst að hún fer ekki úr honum til að kjósa þinn flokk, það býr eitthvað annað undir að hún skuli fagna nýjum flokki enda er Samfylkingin þekkt fyrir að koma með nýja flokka svona á bak við tjöldin, síðasta var það Besti flokkurinn.Guðbjörn þau takka örugglega vel á móti þér.

  • Bragi Páls

    Góð athugasemd hjá Sigurbjörgu.

    Er nýi flokkurinn þinn, Guðbjörn, dótturfyrirtæki hjá Samfylkingunni? Eins konar óskilgetið afkvæmi Samfylkingarinnar?

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Sigurbjörg & Bragi:

    Þær eru ótrúlegar samsæriskenningarnar.

    Um jólin voru þær helst að við værum „óskilgetið afkvæmi“ Sjálfstæðisflokksins og nú þegar ég læt Sjálfstæðisflokkinn aðeins heyra það, þá tala menn um að við séum „dótturfyrirtæki“ Samfylkingarinnar.

    Hólmfríður og félagar hennar í Samfylkingunni fagna að sjálfsögðu mögulegum samstarfsaðila í Evrópumálum.

    Ég sé hins vegar alveg eins fyrir mér samstarf við Sjálfstæðisflokkinn, þ.e.a.s. ef þeir gætu a.m.k. samþykkt að ljúka ESB aðildarviðræðum.

    Þessi nýi flokkur mun – líkt og aðrir flokkar – ganga óbundinn til kosninga, þótt afar ólíklegt sé að við – frekar en nokkur annar flokkur – getið ímyndað sér samstarf með VG eftir það sem gengið hefur á undanfarin 2 ár í stjórnarsamstarfinu!

  • Adalsteinn

    Guðbjörn, komdu með frjálsar handfæra eða smábátaveiðar,
    þá leysir þú byggða, fátæktar og atvinnuvanda Íslendinga !

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og fimm? Svar:

Höfundur