Föstudagur 09.10.2015 - 21:54 - 3 ummæli

Krabbamein karla

Ég fór í það sem ég kalla krabbameinsskoðun karla í þessari viku. Þetta þýðir heimsókn til þvagfæralæknis vegna blöðruhálskirtils, sem kostaði mig 6.080 kr. Því næst lá leiðin í ristil- og magaspeglun.  Hreinsiduftið eitt og sér kostaði 4.241 kr. en heimsóknin í Meltingarsetrið hvorki meira né minna en 35.900 kr. Allt í allt kostaði þessi forvarnaraðgerð mín því 46.221 kr. Ég veit að ég fæ einhverja smá endurgreiðslu, m.a. skattskyldan styrk frá stéttarfélagi, en er þetta ekki ansi vel í lagt?

Maður hlýtur að spyrja sig að því hvort karlmenn á lágum tekjum eða millitekjum hafi efni á þessu? Konur hafa hins vegar klárlega efni á því að skoða sig, því ef ég færi í skoðun sem kona hjá Krabbameinsfélaginu og fengi þar tékk á algengustu krabbameinum kvenna, þ.e. legháls- og brjóstakrabbamein, þá myndi ég aðeins greiða 6.300 kr. fyrir báðar skoðanir. Eina sem ég fann um krabbamein karla á vef félagsins var auglýsing um gólfmót karla með krabbamein.

Eru karlar 2. flokks þjóðfélagsþegnar þegar kemur að forvarnaraðgerðum? Maður hlýtur að spyrja sig þeirrar spurningar, hvort núverandi heilbrigðiskerfi sé það besta  (allavega fyrir okkur karlmenn) og þó sérstaklega í ljósi þess að skattgreiðslur hjá mér þennan mánuð mánuð eru um 350.000 kr. fyrir utan óbeina skatta? Ég minnist betri og ódýrara kerfis í Þýskalandi, þar sem ég bjó í 12 ár.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (3)

  • Feðraveldið lætur ekki að sér hæða. Ævinlega skulu karlar ota sínum tota. Þungur er sá kross að vera kvenkyns í slíku samfélagi.

  • Orri Ólafur Magnússon

    Þetta er vel sloppið, Guðbjörn. Fyrir u. þ. b. átta árum þurfti ég að fara í rannsókn & viðtal hjá sérfræðingi í húðsjúkdómum í háskólasjúkrahúsinu ( Uni – Kliniken ) Duesseldorf – hafði fengið óvænt andstyggileg útbrot og fleiður hingað og þangað um líkamann. Þetta reyndist sem betur fer einungis vera viðráðanlegt ( krem & cortison ) ófnæmi. Hvað um það ; 5 mínutna viðtal við den Herrn Professor Chefarzt NN, all-rækileg skoðun frmkvæmd af Frau Assistenz-Aerztin
    ( aðstoðarlæknir á sultarlaunum ) + lyfseðillinn = talsvert > € 2.500, – ef mig misminnir ekki .

  • sæmundur

    Var út í Torrevieja um daginn . einn í hópnum fékk miklar blöðrur á öðrum fæti og þurftum við því á Heilsugæsluna á sunnudegi
    það tók 20 mín að hreinsa sárin og gefa honum lyfseðil sem við innleystum í apótekinu þar ásamt grisjum
    Kostnaður við heilsugæsluna var 0 evrur en það sem var í apótekinu kostaði rétt tæpar 19 evrur
    Hann var reyndar með evróska sjúkratryggingarkortið

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og átta? Svar:

Höfundur