Færslur fyrir flokkinn ‘Óflokkað’

Laugardagur 09.11 2013 - 00:44

Trompspil Framsóknar?

I. Þann 23. október sl. setti Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, eftirfarandi status inn á Facebook-síðu sína: Sendi þennan póst núna á DV v/ umfjöllunar þeirra um skuldaleiðréttinguna. Við hljótum að vera gera eitthvað rétt núna. Fáum heilsíðu eftir heilsíðu „Sælir, af gefnu tilefni v/ umfjöllunar DV um skuldaleiðréttinguna. Áfram er unnið að skuldaleiðréttingunni og […]

Laugardagur 02.11 2013 - 21:51

Skuldaáform XB óframkvæmanleg

Ríkisstjórn XB og XD ætlar að lækka verðtryggðar húsnæðisskuldir heimilanna um X milljarða ÁN þess að fjárhagslegum stöðugleika sé ógnað. Sérfræðinganefnd um skuldaleiðréttingu á að segja til um valkosti við framvæmd þessara áforma en ekki hvort þau séu framkvæmanleg. Í bloggfærslu  21. október  (Endemis rugl í öndvegi – stöðugleika ógnað) hafði ég eftirfarandi formála að […]

Þriðjudagur 29.10 2013 - 01:28

Niðurfærsla skulda og fjárhagslegt jafnvægi

Afskriftir á skuldum eru hlutlausar gagnvart fjárhagslegu jafnvægi ef hrein eignastaða lántakanda  batnar og hrein eignastaða lánveitanda rýrnar um sömu upphæð. Þetta er grundvallarforsenda slíks hlutleysis skuldaleiðréttinga stjórnvalda á komandi tíð. Þannig myndi 200 milljarða afskrift á húsnæðisskuldum heimila við Íbúðalánasjóð ekki hafa bein áhrif á  fjárhagslegt jafnvægi ef eignastaða Íbúðalánasjóðs og/eða lífeyrissjóðanna sem fjármagna […]

Föstudagur 25.10 2013 - 03:54

Skilningsskortur og skuldaskil

Frosti Sigurjónsson, alþingismaður XB, skrifaði nýlega grein um peningamál. Þar segir m.a.: „Við peningafölsun liggur þung refsing. Góð og gild ástæða er fyrir því. Sá sem falsar seðla rænir hluta af kaupmætti peningastofnsins fyrir sjálfan sig. En ef bankin býr til innstæðu og lánar hana út þá telst það ekki lögbrot. Þó hefur peningaaukning af […]

Mánudagur 21.10 2013 - 21:53

Endemis rugl í öndvegi – Stöðugleika ógnað

I. Sérfræðingahópur ríkisstjórnarinnar um skuldaleiðréttingar lýkur senn störfum. II. Af umsögn forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, í útvarpsviðtali í dag má ráða að þar verði ekki hvikað frá þeirri stefnu í málinu sem Framsóknarflokkurinn boðaði fyrir alþingiskosningarnar 27. apríl sl. III. Umsögn mín um þá stefnu kom til umræðu þegar leiðtogar stjórnmálaflokka sátu fyrir svörum í […]

Mánudagur 07.10 2013 - 00:08

Erlendir og innlendir stórkrónueigendur – Jón og séra Jón

Já, hrunið er enn að gerast – hagkerfið er í grundvallaratriðum óbreytt frá því sem var fyrir 6. október 2008. Núna má segja að erlendir kröfuhafar og innlendir stórkrónueigendur séu í sama báti með kröfur á innstæðulausan bankareikning þjóðarbúsins. Og stjórnvöld gera kröfu til þess að þeir erlendu sýni skilning á málum og afskrifi hundruði […]

Sunnudagur 29.09 2013 - 22:37

Hvað er innlent fjármagn?

Í umræðu um innlent fjármagn/peninga er allt sett undir einn hatt: 1. Peningar sem virkja mannauð, auðlindir og innflutt aðföng til framleiðslu og auka þarmeð verðmætasköpun. 2. Peningar sem lífeyrissjóðir taka af atvinnutekjum í mynd iðgjalda sem minnka kaupmátt almennings/hvata til verðmætasköpunar. 3. Peningar í mynd „ávöxtunar“ lífeyrissjóða í gegnum verðtryggð lán á kostnað kaupmáttar […]

Föstudagur 20.09 2013 - 22:12

Pólitískt hugrekki – ekki

Íbúðalánasjóður er afgreiðslustofnun fyrir lífeyrissjóðina sem fjármagna að miklu leyti húsnæðislán ÍLS. Lífeyrissjóðirnir eru því óbeinir eigendur að stórum hluta verðtryggðra húsnæðislána Íbúðalánasjóðs. Og hafa því um árabil notið hvalreka fjármagnaðan af tekjum og eignum heimila landsins. Eðli málsins samkvæmt ættu lífeyrissjóðirnir að bæta heimilunum forsendubrestinn. En það er ekki til umræðu. Hitt er til […]

Sunnudagur 15.09 2013 - 20:46

Leiðrétting húsnæðisskulda – hafa stjórnvöld farið að lögum?

Washington D.C. 15. september 2013. Til:      Efnahags- og viðskiptanefndar Frá:     Gunnari Tómassyni, hagfræðingi Efni:    Leiðrétting húsnæðisskulda 1.         Í athugasemdum við frumvarp til laga nr. 63/1985 um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga segir m.a. Frumvarpið nær einungis beint til lána byggingarsjóða ríkisins, en gert er ráð fyrir að sama tilhögun geti gilt um húsnæðislán annarra sjóða og […]

Miðvikudagur 24.07 2013 - 14:19

Einbeittur brotavilji í „góðri trú“ – réttvísi byggð á „rökleysu“

Það er ótrúverðugt: 1. Að samtök fjármálastofnana mótmæli fyrirhuguðu banni við gengistryggingu krónulána í umsögn til Alþingis 24. apríl 2001 – en hafi síðan fyllst óvissu um ólögmæti gengistryggingar krónulána eftir samþykkt laga nr. 38/2001 þann 26. maí 2001. 2. Að Seðlabanki Íslands taki þátt í gerð frumvarps sem varð að lögum nr. 38/2001 – en […]

Höfundur

Gunnar Tómasson
Ég er fæddur (1940) og uppalinn á Melunum í Reykjavík. Stúdent úr Verzlunarskóla Íslands 1960 og með hagfræðigráður frá Manchester University (1963) og Harvard University (1965). Starfaði sem hagfræðingur við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn frá 1966 til 1989. Var m.a. aðstoðar-landstjóri AGS í Indónesíu 1968-1969, og landstjóri í Kambódíu (1971-1972) og Suður Víet-Nam (1973-1975). Hef starfað sjálfstætt að rannsóknarverkefnum á ýmsum sviðum frá 1989, þ.m.t. peningahagfræði. Var einn af þremur stofnendum hagfræðingahóps (Gang8) 1989. Frá upphafi var markmið okkar að hafa hugsað málin í gegn þegar - ekki ef - allt færi á annan endann í alþjóðapeningakerfinu. Í október 2008 kom sú staða upp í íslenzka peninga- og fjármálakerfinu. Alla tíð síðan hef ég látið peninga- og efnahagsmál á Íslandi meira til mín taka en áður. Ég ákvað að gerast bloggari á pressan.is til að geta komið skoðunum mínum í þeim efnum á framfæri.
RSS straumur: RSS straumur

Tenglar