Baráttan fyrir frelsi einstaklingsins til að bera ábyrgð á sjálfum sér hefur löngum verið á brattann á Íslandi. Ekki síst vegna þess að sumir Íslendingar hafa talið sér trú um að þeir viti best hvað öðrum fullorðnum einstaklingum er fyrir bestu (þótt þeir kunni vart sínum eigin fótum forráð).
Þessi frétt í DV 30. janúar 1980 var lítill bautasteinn í baráttunni. Fyrir utan að vera góður drykkur þeim sem kunna með áfengi að fara er bjórinn fyrirtaks dæmi um við hvað er að etja þegar kemur að ófrelsi á Íslandi í gegnum tíðina.