Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, Ísafold, félag ungs fólks gegn ESB-aðild og Herjan, félag stúdenta gegn ESB-aðild, ganga saman 1. maí undir merkjum Nei við ESB.
Mæting er í gönguna við Hlemm kl. 13:00. Að göngu lokinni eru allir hjartanlega velkomnir í kaffi kl. 15:00-17:00 á skrifstofu Nei við ESB að Lækjartorgi 5. Gengið er inn frá Lækjartorgi og er skrifsofan á annarri hæð í lyftuhúsi.
Samtökin leggja áherslu á eftirfarandi:
- Við óskum launafólki til hamingju með hátíðisdag verkafólks.
- Á Íslandi teljum við það sjálfsagt að hafa vinnu.
- Í Evrópusambandinu eru yfir 27 milljónir manna án atvinnu.
- Við teljum hagsmunum verkafólks á Íslandi betur borgið utan Evrópusambandsins.