Einn helsti styrkur rentukóngsins er að hann kemur festu á hlutina. Innanlandsflugið fyrir 1952 er gott dæmi. Þar sem áður var opinn, ógnvænlegur, spennandi og krefjandi markaður var nú komin ein föst stærð með einum sællegum rentukóngi. Sama á við um mjólkurvörumarkaðinn. Þar er svo mikil festa á hlutunum að næstum hver einasta vara í mjólkurkælinum […]
Búvörusamningarnir sem undirritaðir voru í vetur sýna að vöxtur og viðgangur rentukóngsins er í góðu meðallagi á Íslandi. Það er einkar ánægjulegt vegna þess að rentukóngurinn er eins og lúpínan og framræsluskurðirnir, ómissandi hluti af landslaginu. Rentukóngurinn á það sameiginlegt með beitukónginum að beygjast eins. Að öðru leyti eru þeir býsna ólíkir. En þótt rentukónginn sé […]