Í dag var málefnum eftir töluverða yfirlegu skipt á milli verkefnanefnda í stjórnlagaráði; þær eru þrjár og fjalla um eftirfarandi – undir stjórn eftirfarandi formanna sem einnig voru kjörnir í dag og sitja í stjórn ásamt formanni og varaformanni.
Gaman er að sjá að konur mynda meirihluta stjórnar.
Verkefnanefnd A
- Grunngildi, ríkisborgararéttur og þjóðtunga
- Uppbygging og kaflaskipan stjórnarskrárinnar
- Náttúruauðlindir og umhverfismál
- Mannréttindi (þ.á m. þjóðkirkjan)
Formaður var kjörin Silja Bára Ómarsdóttir.
Verkefnanefnd B
- Undirstöður íslenskrar stjórnskipunar
- Hlutverk og staða forseta Íslands
- Hlutverk og störf Alþingis (hlutverk, skipulag og starfshættir; seta ráðherra á þingi; fjárstjórnarvald; eftirlit með framkvæmdarvaldinu)
- Ríkisstjórn, störf forseta og ráðherra og verkefni framkvæmdarvalds
- Staða sveitarfélaga
Formaður var kjörin Katrín Fjeldsted.
Verkefnanefnd C
- Stjórnlagaráð
- Lýðræðisleg þátttaka almennings (þ.á m. stjórnarskrárbreytingar)
- Sjálfstæði dómstóla og eftirlit þeirra með öðrum handhöfum ríkisvalds
- Alþingiskosningar, kjördæmaskipan og alþingismenn
- Samningar við önnur ríki og utanríkismál
Formaður var kjörinn Pawel Bartoszek.
Sjálfur vil ég sitja í verkefnanefnd B enda er þar fjallað um þau málefni sem mér eru hugleiknust af mörgum mikilvægum málum og áhugaverðum en meðal þess er aukin valddreifing – m.a. með því að draga úr miðstjórnarvaldi ríkisins með því að flytja hluta fjárstjórnarvalds til sterkari og stærri sveitarfélaga eins og ég hef skrifað um áður.