Ákvæði nýja stjórnarskrárfrumvarpsins um friðhelgi einkalífs markar ekki nýmæli – eins og sumir gagnrýnendur, sem virðast ekki hafa kynnt sér ákvæði gildandi stjórnarskrár, gætu haldið – en auðvitað er hægt að hafa þá skoðun að gildandi ákvæðum eigi að breyta – sem við í stjórnlagaráði gerum sem sagt ekki tillögu um.
Óbreytt er, efnislega, að friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu skuli tryggð – en þó að orðalagi sé breytt í 1. mgr. er efni friðhelgisákvæðisins óbreytt að þessu leyti.
Aukin vernd gegn kynferðis- og heimilisofbeldi eina efnisbreytingin
Hins vegar kann af 10. gr., sem ég skrifaði um í gær, að leiða minni formlega vernd gagnvart friðhelgi heimilis – í þeim tilgangi að veita mannhelgi meiri efnislega vernd, svo sem gegn kynferðisofbeldi innan heimilis. Efast ég um að margir andmæli þeirri tillögu stjórnlagaráðs.
Virðum lagahefð – sem gefist hefur vel
Orðalag 2. og 3. mgr. er nákvæmlega hið sama í 11. gr. stjórnarskrárfrumvarpsins og í 71. gr. stjórnarskrárinnar; umræðan ætti því e.t.v. að þessu leyti að snúast um það hvort friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu sé ofvernduð eða ekki nægilega vernduð – frekar en að gefið sé til kynna að stjórnlagaráð sé að leggja til stórkostlegar takmarkanir á þeirri friðhelgi enda virtum við í stjórnlagaráði gjarnan norræna, evrópska og íslenska lagahefð, svo fremi að hún hefði gefist vel að okkar mati.
Ákvæðin orðrétt
Ákvæði 11. gr. er svohljóðandi:
Friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu skal tryggð.
Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns.
Þrátt fyrir ákvæði fyrstu málsgreinar má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra.
Til samanburðar hljóðar 71. gr. gildandi stjórnarskrár svo nú:
Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu.
Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimijld. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra.