Laugardagur 04.04.2015 - 09:40 - FB ummæli ()

Af aprílgabbi…

Sumir héldu að það væri aprílgabb þegar spurðist að hugmyndir væru uppi um að byggja nýtt hús fyrir Alþingi,  eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar. Að hér væri komið enn eitt dæmið um það bruðl sem einkenndi þingið og stjórnkerfið í heild sinni.

Nú er það svo að Alþingi borgar hundruð milljóna króna á ári hverju í leigu á húsnæði á dýrasta stað í bænum, miðborginni. Fulltrúar þingsins hafa farið yfir þetta með okkur sem sitjum í fjárlaganefnd þingisns.  Stór hluti þessa húsnæðis er vegna skrfstofa alþingismanna.  Það má því færa nokkur rök fyrir því að þeir fjármunir, sem færu í nýtt húsnæði, myndu skila sér fljótt til baka. Þetta gleymist í umræðunni.

Mikið af þeim samningum sem eru í gildi eru hins vegar langtímaleigusamningar. Það er ekki sjálfgefið að hægt sé að rifta þeim með skömmum fyrirvara. Svo má auðvitað spyrja hvort  þörf sé á öllum þessum skrifstofum. Sjálfur afsalaði ég mér minni í upphafi árs. Aðrir þingmenn, í flestum eða öllum flokkum,  telja sig hafa mikla þörf fyrir slíka aðstöðu. Og auðvitað má segja að varla sé til það þing í heiminum sem er svo aumt að það bjóði ekki þingmönnum upp á  sómasamlega starfsaðstöðu. Þannig er það bara.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Karl Garðarsson
Höfundur er fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins á Alþingi
RSS straumur: RSS straumur