Nú þegar heimsendaspám bókstaflega rignir yfir okkur er ekki úr vegi að skoða heimsendaspár fortíðar. Því eins og máltækið segir: Endirinn skyldi í upphafi skoða.
Spámaður er nefndur Paul Ehrlich. Hann er prófessor við Stanford-háskóla.
Paul var ómyrkur í máli þegar hann rýndi í framtíðina í kringum 1970:
„Fólksfjölgun mun óhjákvæmilega éta upp alla aukningu í matvælaframleiðslu á næstu árum. 100 til 200 milljónir manna að lágmarki munu svelta í hel á hverju ári næstu tíu árin,“ sagði hann. Ennfremur taldi hann að frá 1980 til 1989 myndu fjórir milljarðar manna deyja úr hungri, þar á meðal 65 milljónir landa hans í Bandaríkjunum.
Spurningaleikur spekinganna (merkið x á viðeigandi línu).
___ Paul hafði rétt fyrir sér.
___ Paul hafði rangt fyrir sér.