Magnús Geir Þórðarson kemur sterkur inn í embætti útvarpsstjóra á RÚV.
Hann virðist hafa heilbrigð sjónarmið og mikinn metnað fyrir hönd Ríkisútvarpsins.
Það hefur vakið athygli hversu rösklega hann gengur til verks og skiptir að mestu um framkvæmdastjórn miðilsins á einu bretti, yngir upp og fjölgar konum í æðstu embættum.
Ekki síður hefur það vakið athygli að honum virðist takast að framkvæma breytingarnar á farsælan hátt. Varla er hægt að segja að hann sé að ráða stórpólitískt fólk í lykilstöður, eins og stöðu fréttastjóra. Margir óttuðust slíkt, en þar tekur við ung kona sem virðist hafa ágætt faglegt tilkall til embættisins. Kröftugur menningarmaður verður dagskrárstjóri á Rás 1.
Það er að heyra að starfsfólk sé almennt ánægt með umskiptin og fyrri stjórnendur, eins og fyrrverandi fréttastjóri, munu í einhverjum tilvikum gegna öðrum verkefnum á vegum RÚV.
Vonandi boðar þetta góðan og þróttmikinn rekstur á Ríkisútvarpinu öllu. Það er stofnun sem þjóðin metur mikils og sem skiptir miklu máli. Keppinautarnir skipta auðvitað líka miklu máli og vonandi búa stjórnvöld þeim viðunandi samkeppnisstöðu til framtíðar.
Í lokin langar mig að koma á framfæri einni tillögu til nýrra tæknistjórnenda á RÚV, frá dyggum áhorfanda. Í útsendingum sjónvarpsins er full mikill munur á styrkleika hljóðs, milli talmáls og hljóðstefa. Þannig eru t.d. hljóðstef í fréttum of hátt stillt miðað við talmálið á milli. Væri ekki hægt að jafna þetta svolítið?
Einnig er hljóðið á auglýsingatímum of hátt stillt miðað við almennan útsendingarstyrk. Miklar sveiflur í hljóðstyrk í útsendingunni eru svolítið amatöralegar – a.m.k. í samanburði við erlendar stöðvar…
Fyrri pistlar