Hér er ný myndasería sem ég tók í París í síðasta mánuði. Fókusinn er á módernískar byggingar og speglanir. Flestar eru myndirnar teknar í hinu nýja viðskiptahverfi La Défence. Það er skemmtilegt svæði sem sameinar mikið af athyglisverðri módernískri hönnun og forvitnilegu umhverfi – ekki síst er það góður vettvangur fyrir óvenjulegar myndatökur.
Smellið á myndina hér að neðan til að sjá seríuna.
Síðan má skoða myndirnar í „Slide-show“ (í horninu efst til hægri þegar inn í seríuna er komið) eða smella á hverja og eina til að fá stærri útgáfu.
Þetta er ágætt efni til að skoða í rigningartíðinni – það sést stundum í bláan himinn þarna…
Hér er svo tengill á myndagalleríið í heild sinni:
Gallerí
Fyrri pistlar