Það verður fróðlegt að sjá hverjar verða niðurstöður samninga milli VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.
Ekki síst vegna þess að samningsstaða Sjálfstæðisflokksins er veik.
Helsti möguleiki Sjálfstæðismanna á annarri stjórnarmyndun er með Framsókn, Miðflokki og Flokki fólksins. En Sigurður Ingi hefur þegar hafnað þeim kosti.
Án Framsóknar getur ekki orðið af honum. Og raunar yrði það veikur kostur af ýmsum ástæðum.
Á meðan VG og Framsókn makka saman, eins og þau hafa gert til þessa, þá hafa þau öll trompin á hendi.
Ef þau ná ekki nógu miklu af sínum málum fram gegn Sjálfstæðisflokknum þá eiga þau enn þann ágæta valkost að fara í 4-5 flokka mið-vinstri stjórn.
VG og Framsókn geta því farið fram af mikilli ákveðni í samningaviðræðum við Sjálfstæðismenn.
Ef menn ætla að fara vel út úr stjórnarsamstarfi með Sjálfstæðismönnum þurfa þeir að koma sínum málum fram af krafti – svo eftir verði tekið.
Annars bíður þeirra “svört framtíð”…
Fyrri pistlar