Í nýjasta hefti fræðitímaritsins Stjórnmál og stjórnsýsla er birt grein eftir mig, þar sem hrunið á Íslandi er skýrt með klassískum kenningum um fjármálakreppur. Eftirfarandi er útdráttur um efni greinarinnar, sem var ritrýnd af fagfólki á sviðinu áður en til útgáfu kom. Útdráttur Hér er leitast við að skýra íslenska bóluhagkerfið og fjármálahrunið 2008 með lærdómi af […]
Árlegt uppgjör ríkisskattstjóra, þegar álagningu er lokið, gefur oft góða mynd af framvindu skattgreiðslna og velferðarbóta á síðastliðnu ári. Um daginn birti fjármálaráðuneytið yfirlit um þróun helstu liða skatta og bóta frá 2014 til 2015 (sjá hér). Niðurstöðurnar eru í megindráttum þessar: Velferðarbætur til heimila (vaxta- og barnabætur, sem einkum fara til barnafjölskyldna) rýrna verulega. Skattbyrði […]
Hvað getur maður sagt um árangur strákanna í Nice?! Þeir voru frábærir, einfaldlega betri en Englendingar. Það er ótrúlegt að verða vitni að þessum góðu sigrum okkar manna á EM. Stórkostleg skemmtun. Samstaða og fagmennska eru trúlega lyklarnir að þessum árangri. Bretar segja að þjálfari þeirra sé með nærri 700 milljónir króna í laun – en […]
Guðni Th. Jóhannesson er eini frambjóðandinn sem er með góðan stuðning í öllum þjóðfélagshópum. Hann hefur því bestu forsendurnar til að verða forseti allra. Sameiningartákn, eins og Kristján Eldjárn og Vigdís Finnbogadóttir. Óhætt er að óska Guðna til hamingju með prúðmannlega framkomu hans í kosningabaráttunni, þrátt fyrir að hart hafi verið sótt að honum, oft með ósanngjörnum og jafnvel […]
Það er áberandi hversu mikið Halla Tómasdóttir og Davíð Oddsson auglýsa í baráttunni um forsetaembættið. Bæði eru mjög mikið með keyptar auglýsingar: á prenti, í sjónvarpi, á strætóskýlum og á netinu. Auk þess hefur Morgunblaðinu verið beitt í ríkum mæli til að styðja framboð Davíðs, með miklum tilkostnaði. Kosningabaráttan er því væntanlega langdýrust hjá Höllu og […]
Það er bjart yfir Íslandi núna. Sumarið komið og flest gengur vel. Landsliðið í fótbolta stendur sig vel og yljar öllum um hjartarætur. Forsetakosningarnar á laugardaginn eru síðan frábært tækifæri til að hleypa framtíðinni að og setja fortíðina aftur fyrir okkur. Allir ættu því að taka þátt í kosningunni. Setja mark sitt á framtíðina. Síðasti pistill: […]
Kristinn H. Gunnarsson, sá reyndi og heilsteypti stjórnmálamaður, skrifaði mjög athyglisverða grein á þjóðhátíðardaginn um forsetaframboð Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins (sjá hér). Kristinn setur framboðið í samhengi við hagsmuni útvegsmanna og eignarhald þeirra á Morgunblaðinu. Hann vekur sérstaka athygli á hvernig blaðinu hefur markvisst verið beitt í þágu framboðsins. Í ljósi umræðu í samfélaginu um […]
Það sýnir sig ítrekað í könnunum að Guðni Th. Jóhannesson er sá forsetaframbjóðandi sem líklegastur er til að sameina þjóðina. Tvennt kemur þar til. Í fyrsta lagi er hann með yfirburðafylgi í nær öllum þjóðfélagshópum. Í reynd er fylgi hans óvenju vel jafnað milli ólíkra hópa samfélagsins. Guðni getur því verið fulltrúi allra. Í öðru […]
Ég held að það hafi verið sterkur leikur hjá Samfylkingunni að kjósa Oddnýju Harðardóttur sem nýjan formann. Oddný er enginn spjaldagosi, sem er bólginn af innistæðulausu sjálftrausti og yfirborðsmennsku. Nei, hún virðist frekar vera traustvekjandi og málefnalegur vinnuþjarkur. Og hún er alvöru jafnaðarmaður. Það hefur hún sýnt. Á okkar tíma ríkir mikið vantraust á stjórnmálum […]
Þau tíðindi urðu á Alþingi í gær að þrjú frumvörp Eyglóar Harðardóttur um nýskipan húsnæðismála voru samþykkt. Áður hafði þingið samþykkt fjórða frumvarpið sem fjallar um húsnæðisamvinnufélög. Þarna er um að ræða lög um almennar íbúðir sem fela í sér nýja umgjörð um fjármögnun, rekstur og úthlutun íbúða til leigu sem eiga að tryggja að […]
Fyrri pistlar