Colosseum í Róm, sem með réttu heitir Flavíska hringleikahúsið, er eitt mikilvægasta tákn borgarinnar fyrr og síðar. Það er í senn tákn um mikilfengleika rómverskrar byggingarlistar og grimmd menningarinnar sem ríkti á gullöld Rómar. Á sviði hringleikahússins voru settar upp stórfenglegar sýningar, en frægast er það líklega fyrir hina blóðugu leika þar sem skylmingarþrælum og […]
Styrmir Gunnarsson skrifar að mörgu leyti athyglisvera grein um tilvistarkreppu hefðbundnu stjórnmálaflokkanna í Morgunblaðið í dag. Meginboðskapur Styrmis er sá, að hefðbundnu flokkarnir séu allir í sömu tilvistarkreppunni og hafi misst tengslin við grasrótina. Það er rétt að hluta, eins og ég benti einnig á í viðtali við Egil Helgason á RÁS 1 um daginn. […]
Írar eru nú að rannsaka orsakir fjármálahrunsins sem varð 2008. Í Irish Times í gær var frétt um vitnisburð tveggja prófessor fyrir rannsóknarnefnd þingsins. Báðir fjölluðu um að reglun og eftirlit í fjármálageiranum hefði verið mjög veikburða á Írlandi og gríðarleg mistök hefðu því verið gerð, einkum í seðlabankanum og fjármálaeftirlitinu. Gregory Connor, prófessor í fjármálahagfræði […]
Sá óvenjulegi og stóri viðburður að Seðlabankinn skyldi ákveða að lána Kaupþing banka nær allan gjaldeyrisvarasjóð Íslands þann 6. október 2008 er enn að mestu óskýrður. Ákvörðunin var tekin á hrundaginn mikla. Síðar sama dag flutti Geir Haarde “Guð blessi Ísland” ræðuna. Um kvöldið setti Alþingi svo neyðarlögin og morguninn eftir var Landsbankinn fallinn. Glitnir […]
Brynjar Níelsson, lögfræðingur og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur skilað skýrslu til Alþingis um trúverðugleika ásakana Víglundar Þorsteinssonar í garð fyrri stjórnvalda, opinberu stjórnsýslunnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Víglundur fullyrti að leiðtogar fyrri ríkisstjórnar, Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir, hefðu ásamt öðrum framið það sem er ígildi landráðs – hvorki meira né minna (þó hann hafi ekki notað það orð). […]
Viðskiptaráð Íslands var með árlega revíu sína í gær. Þetta eru skrautlegar samkomur þar sem forystumenn Viðskiptaráðs koma fram í röndóttum jakkafötum og segja þjóðinni og stjórnmálamönnum hvernig stjórna eigi landinu. Fyrir hrun voru þessar samkomur vinsælar. Menn töldu að spekingar Viðskiptaráðs hefðu höndlað sannleikann og mændu upp í nasir þeirra. Sannleikur þeirra reyndist vera […]
Ég skrifaði fræðilega grein í Íslenska þjóðfélagið, tímarit Félagsfræðingafélagsins, í desember sl. Þar fjalla ég ítarlega um áhrif hrunsins á lífskjör þjóðarinnar og árangurinn við endurreisn samfélagsins (greinina í heild má sjá hér). Í útdrætti er efni og niðurstöðum úttektarinnar lýst svona: “Hér er fjallað um einkenni íslensku fjármálakreppunnar og spurt hvernig hún hafði áhrif á […]
Skipting auðsins á Íslandi hefur verið til umræðu að undanförnu. Það er gagnlegt, því eignaskiptingin er hér, eins og annars staðar, mun ójafnari en tekjuskiptingin. Fjármálaráðuneytið birti í gær tölur úr skattframtölum um eignaskiptinguna á Íslandi (sjá hér og hér). Hagstofan er með talsvert af upplýsingum um þetta á vef sínum (sjá hér). Ég hef birt […]
Velferðarvaktin, sem nú starfar samkvæmt nýrri forskrift undir forystu Sivjar Friðleifsdóttur fyrrverandi ráðherra, sendi frá sér nýja og metnaðarfulla skýrslu í síðustu viku. Þar eru útfærðar tillögur í 6 liðum til að vinna bug á sárri fátækt á Íslandi, ekki síst fátækt barnafjölskyldna. Skýrsluna má sjá hér. Þarna eru tímabærar og ágætlega útfærðar tillögur um […]
Um daginn fór ég á fyrirlestur sem Hannes Hólmsteinn hélt um “ný gögn um hrunið”. Þar kom að vísu fátt nýtt fram um orsakir hrunsins, en þetta var hins vegar skemmtilegt tækifæri til að sjá hvernig Hannes er að þróa skáldskap sinn um meintar erlendar orsakir hrunsins, sem hann segist vinna að. Hannes segir sjálfur […]
Fyrri pistlar