Vill fólk búa hér í Reykjavík? – já
– vill það búa í miðbæ Reykjavík? – já
Getur fólk búið hér í Reykjavík? – einhverjir já, ekki allir.
– getur ungt fólk búið í miðbæ Reykjavíkur? – nei, sárafáir.
Það að vilja gera eitthvað er ekki það sama og raunverulega að gera eitthvað. Unga fólkið í borginni hefur því miður ekki launin eða eigið féið til þess. Meirihlutinn í borgarstjórn verður að skilja að þetta er vandamálið. Stúdentaíbúðir er nú verið að byggja, en þegar að námi lýkur þá hefur það ekki efni á að búa í miðbænum, því húsnæði er of dýrt. Fermetraverðið í miðbænum hefur aldrei verið hærra. Í dag eru 23 2ja herbergja íbúðir í póstnúmeri 101 skráðar á vefinn fasteignir.is og er verðið á þeim frá 29,9 milljónir upp í 76,5 milljónir. Til að standast greiðslumat fyrir íbúðum á þessu verði dugast sjaldan laun nýútskrifaðs eða ungs fólks.
Þannig að unga fólkið fær ekki tækifæri til að búa í borginni, nema það endi í bakgarðinum heima hjá pabba og mömmu…..sem að öllu líkindum eru löngu flutt úr miðbænum hvort eð er eða íbúðin komin í Airbnb leigu.
Þetta er því miður staðreyndin í dag.
Rita ummæli