Ég er stolt af því að tilheyra einum elsta stjórnmálaflokki Íslands, að vinna með fólki sem er málsvari allskonar radda í öllu þjóðfélaginu, í öllum landshlutum. Fólki sem er víðsýnt og leggur áherslu á blandað hagkerfi einkareksturs, samvinnureksturs og opinbers reksturs á sem skynsamlegstan máta, því það trúir því að slík hugsun tryggi hagsæld í […]
Í borgarstjórn gleðst formaður borgarráðs, S. Björn Blöndal, yfir hækkandi fasteignaverði í Reykjavík og segir að kaup og sala fasteigna sé snúinn bransi. Einhverjir kunna að taka undir með honum. Mér hefur reyndar fundist formaður borgarráðs hafa átt frekar auðvelt með að átta sig á hlutunum og því er miður að þessi tegund viðskipta vefjist […]
Nú hefur verið samþykkt af borgarráði að setja í auglýsingu deiliskipulag fyrir nýjan hluta af Bryggjuhverfinu. http://reykjavik.is/frettir/annar-afangi-bryggjuhverfis-ad-fara-i-gang Þar eiga að rísa 185 íbúðir. Byggingarverktakinn er sá sami og í Stakkholti. http://stakkholt.is. Þar eru 80 fm íbúðir á yfir 32 milljónir. Ekki beint ódýrustu íbúðirnar í bænum enda sagði aðeins í stefnuyfirlýsingu Samfylkingarinnar fyrir kosningar: „Við ætlum […]
Ég man vel þegar ég vandi komur mínar í Miðtúnið hér í borg á árum áður og húsráðandi sagði mér í hvert skipti frá fyrirhugðum breytingum á byggðinni í kring og þá sérstaklega Borgartúninu. Ekki náði ímyndunarafl mitt að mynda í huganum þá ásýnd sem nú er á þessu svæði. Byggingar í Borgartúni, Sóltúni og […]
Meirihlutanum í Reykjavík finnst nákvæmlega ekkert athugavert við að samþykkja kauptilboð í fasteignir á eftirsóttasta stað borgarinnar og taka ákvörðun um „ásættanlegt“ verð á grundvelli 15 mánaða gamalla verðmata. Borgarstjórinn kom kokhraustur í viðtal í kvöldfréttum RÚV 2. september síðast liðinn og sagði að það hafi verið leitað eftir mati tveggja reyndra fasteignasala um hvað […]
Við í Framsóknarflokknum erum stolt af því öfluga starfi sem við höfum unnið síðastliðin misseri við að móta stefnu flokksins okkar sem byggð hefur verið á mikilli greiningarvinnu og aðkomu fjölda fólks og sérfræðinga til að leita leiða til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag. Við höfum sett okkur skýrar siðareglur og tekist á við þann fortíðarvanda […]