Færslur fyrir febrúar, 2014

Sunnudagur 16.02 2014 - 20:13

Er bannað að gagnrýna Viðskiptaráð?

Menn fara mikinn í umfjöllun um kaffispjall Gísla Marteins við forsætisráðherra, Sigmund Davíð Gunnlaugsson, í morgun. Spjallstjórinn var óvenju hvass og þrasgjarn – ólíkt því sem var er hann ræddi við Bjarna Benediktsson um síðustu helgi. Mér fannst ámælisvert við upplegg Gísla Marteins að hann virtist gefa sér að eitthvað væri athugavert við það, að forsætisráðherra […]

Laugardagur 15.02 2014 - 13:06

Braskarar klófesta orkuveitu

Reykjavík Vikublað, sem er í ritstjórn Ingimars Karls Helgasonar,  er með athyglisverða umfjöllun í dag um innreið fjármálabraskara í grunnþjónustu samfélagsins á Suðurnesjum. Með því færist grunnþjónustan og arðurinn af henni frá samfélaginu til einkaaðila. Þar er sagt frá kaupum Ursus I á stórum hlut í HS Veitum. Ursus er stýrt af Heiðari Má Guðjónssyni, […]

Fimmtudagur 13.02 2014 - 18:18

Seðlabankinn: Allar kjarabætur bannaðar!

Mér hefur fundist Seðlabankinn gera margt ágætlega á síðustu árum. Skýrsla bankans um valkosti Íslands í gjaldmiðilsmálum var t.d. vandað plagg og reglubundnar skýrslur hans um peningamál og fjármálastöðugleika hafa mikið upplýsingagildi. Ég hef hins vegar meiri efasemdir um inngrip bankans í stefnumótun, bæði á sviði skuldalækkunar og kauphækkana. Seðlabankinn hefur tekið að sér að […]

Miðvikudagur 12.02 2014 - 14:39

Vantar unga fólkið enn meiri skuldir?

Á árunum fyrir hrun voru Viðskiptaráð og frjálshyggjufólkið í Sjálfstæðisflokknum eins og samhljóða kór. Boðuðu bandaríska öfgafrjálshyggju og höfðu mikil áhrif á ríkisstjórnir Davíðs og Halldórs. Hældu sér svo af því að hafa fengið um 93% af stefnumálum sínum framkvæmd af ríkisstjórnum bóluáranna! Stefnan leiddi hins vegar til hrunsins og kreppunnar í kjölfarið. Lagði skuldabagga […]

Þriðjudagur 11.02 2014 - 16:50

Sjálfstæðismenn eiga Ísland

Bjarni Benediktsson segir eftirfarandi í viðtali við blaðið Austurfréttir: “Það var eitthvað rangt þegar við vorum ekki í ríkisstjórn. Eitthvað öfugt við það sem ætti að vera.” Einmitt! Við sáum þetta á síðasta kjörtímabili. Sjálfstæðismönnum var gróflega misboðið að vera ekki í stjórn. Þeir litu á vinstri stjórnina sem eins konar “valdarán”! Kosningar eru líka […]

Mánudagur 10.02 2014 - 22:28

Auður heimsins vex – en hvað með þinn auð?

Alþjóðleg kýrsla um skiptingu auðsins í heiminum (Global Wealth Report) fyrir árið 2012 var fyrir skömmu birt. Þar má fá mynd af því hvernig auður heimsins skiptist og hvernig auðurinn hefur verið að þróast á síðustu árum. Auður heimsins hefur vaxið í kreppunni, en flestir íbúar vestrænna þjóða hafa upplifað minnkandi eignir á sama tíma. […]

Sunnudagur 09.02 2014 - 10:16

Ör hnignun millistéttarinnar í USA

Aukinn ójöfnuður í Bandaríkjunum felur í sér að yfirstéttin verður sífellt ríkari, en millistéttin dregst afturúr og lágstéttin sígur enn neðar. Þetta hefur gerst á síðustu tveimur til þremur áratugum og enn frekar nú í kreppunni. Kannanir á tekjuskiptingu og eignum sýna þetta (sjá t.d. hér og hér). Viðhorfakannanir sýna þetta líka. Þannig telja sífellt færri Bandaríkjamenn […]

Föstudagur 07.02 2014 - 17:56

Vilja Píratar siðleysi og þjófnað?

Ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á fyrir hvað Píratar vilja standa. Í málflutningi þeirra hefur verið áberandi áhersla á frelsi á netinu og barátta fyrir mannréttindum. Á heimasíðu þeirra kemur fram að Píratar leggja áherslu á gagnrýni, upplýsingu, borgararéttindi, friðhelgi einkalífs, gegnsæi og ábyrgð, auk mikillar áherslu á beint lýðræði […]

Fimmtudagur 06.02 2014 - 23:37

Hanna Birna vill einkavæða einokun í KEF

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra Sjálfstæðismanna, segist vilja skoða aðkomu einkaaðila að rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Þetta er það sem áður var kallað “einkavæðing” – eða “einkavinavæðing” (þegar svo bar undir). Innanríkisráðherra segir að þetta sé ekki einkavæðing – heldur eitthvað annað! Jónas Kristjánsson segir að ráðherrann tali “Newspeak” – í anda Orwells. Hún segir svart vera […]

Miðvikudagur 05.02 2014 - 13:42

Sjóðasósíalismi Svía ríkir nú á Íslandi

Margir muna eftir hugmynd sósíalistanna í sænsku verkalýðshreyfingunni frá sjöunda áratugnum, um að lífeyrissjóðir almennings myndu smám sama kaupa upp öll hlutabréf á markaði í Svíþjóð. Þetta þótti snjöll hugmynd hjá þeim sem voru lengst til vinstri í pólitíkinni. Þar eð sjóðirnir væru í eigu launafólks, mætti með þessum hætti smygla sósíalísmanum inn um bakdyrnar. […]

Höfundur

Stefán Ólafsson
Ég er prófessor við Háskóla Íslands. Blogga hér til að miðla upplýsingum og taka afstöðu til málefna. Er óflokksbundinn og óháður öllum samtökum.

Helsta áhugamál utan vinnu er listræn
ljósmyndun. Hér er gallerí mitt á netinu:

Nýrra ljósmyndagallerí á 500px

Reykvískar impressjónir – Ljósmyndagallerí

Rökræður við Milton Friedman

Samræður við Egil um ójöfnuð og þjóðmál

Nýrri samræður við Egil Helgason um Ójöfnuð á Íslandi

Ný bók: Ójöfnuður á Íslandi
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

Fyrri pistlar