Þriðjudagur 08.01.2013 - 02:16 - FB ummæli ()

Nokkur dæmi um ofstæki feminista

Hatrið í garð feminista hefur ekki farið fram hjá neinum sem fylgist með umræðunni. Fúkyrðaflaumur og ofbeldisórar virka að vísu ekki vel til þess að breyta skoðunum neins en þetta virkar hinsvegar prýðisvel til þess að draga athyglina frá því sem þessar konur segja og að því hatursfulla skítkasti sem þær sitja undir. Sem er nú varla markmið þeirra viskubrunna sem beita fyrst og fremst persónuníði í málflutningi sínum.

En hver er ástæðan fyrir þessari óbeit? Oft hafa feministar skýrt þetta með því að körlum, einkum valdakörlum, standi ógn af kvenhyggjukonum af því að þær séu að breyta samfélaginu. Þetta stenst ekki skoðun. Í fyrsta lagi eru kvenhyggjusinnar ekki að breyta neinu sem skiptir máli. Feministar eru ekki að brjóta upp valdakerfið (ranglega kallað „feðraveldið“) heldur að reyna að yfirtaka það. Fleiri konur í valdastétt gætu vissulega ógnað völdum nokkurra karla, en það eru ekki valdakarlar sem lýsa órum sínum um að missa hnefann í andlit Hildar Lilliendahl eða nauðga Sóleyju Tómasdóttur, heldur valdalausir vesalingar. Auk þess stafar valdakörlum meiri ógn af öðrum valdakörlum en af kvenhyggjukonum en þeir gera samt ekki út fávita til að senda körlum hótunarbréf. Eða ef svo er þá halda hatursþolar úr hópi valdakarla þeim bréfum leyndum.

Vissulega er til fólk sem óttast feminista. Ég er t.d. dauðhrædd við þetta fólk. Ekki sem persónur, heldur hef ég áhyggjur af áhrifum hreyfingarinnar innan réttarkerfisins og því að við fáum þennan ófögnuð inn í grunnskólana í formi kynjafræðslu.  Mér finnst þó fáránlegt að reyna að díla við þetta vandamál með því að beina andúð á vondri hugmyndafræði að einstaklingum eða reyna að þagga niður í kvenhyggjufólki, þvert á móti vil ég að þau opinberi skoðanir sínar sem víðast svo almenningur átti sig á því hvað er að gerast.

Það er tilgangslaust að spyrja þolandann hversvegna aðrir leggi fæð á hann. Það er hinsvegar reynandi að spyrja hatursmennina sjálfa. Þegar búið er að skafa burt skítkastið og ofbeldisórana standa skýringarnar eftir. Skýringar sem réttlæta ekki með neinu móti þessa framkomu en varpa kannski ljósi á það hversvegna feministar eru hataðir. Flestir gefa þær skýringar að feministar séu öfgafullir, óbærilega leiðinlegir og hati karla.

Sóley Tómasdóttir auglýsti hvað eftir annað eftir dæmum um öfgar feminista á umræðukerfi DV um helgina.  Nú tel ég öfgar ekki vera vandamál í sjálfu sér. Öfgar eru bara það sem víkur frá norminu og það getur vel verið jákvætt. Öll mannréttindamál hafa í fyrstu verið talin til öfga. Ég kýs fremur að tala um ofstæki. Í almennri umræði hefur það sömu merkingu og öfgar svo ég býst við að hatursmennirnir myndu fallast á að nota það.

Ofstæki feminsta felst fyrst og fremst í því að ganga út frá hugmyndum sem ekki eru í neinu samræmi við þann veruleika sem flestir lifa í en þar er miðlæg sú hugmynd að karlar reyni alltaf að kúga konur. Ég hef margsinnis bent á dæmi um ofstopafulla nálgun, (auk dæma um tvískinnung, ýkjur og rangfærslur) en þau virðast gleymast jafnóðum. Því er upprifjunar þörf. Hér eru nokkur dæmi um ofstæki feminista:

Orð fólks sem ekki gengst inn á hugmyndafræði kvenhyggjunnar lögð út á versta hugsanlega veg

Þráinn Bertelson flokkaður sem kvenhatari fyrir að flokka dónabréfaskrif JBH sem dómgreindarbrest fremur en kynferðisglæp.
Jakob Bjarnar flokkaður sem kvenhatari fyrir að segja að kvennakjaftæði og kynjakvótarugl sé úldið.
Theodór Gunnarsson flokkaður sem kvenhatari fyrir að mælast til þess að menn stilltu sig um að taka Egil Einarsson af lífi í fjölmiðlum áður en dómur væri fallinn í máli hans.
Ofangreindir menn flokkaðir þannig með mönnum sem lýsa yfir vilja sínum til að drepa konur og ánægju sinni með hópnauðganir og önnur ofbeldisverk, í þessu albúmi.

Heimir Már Pétursson flokkaður sem nauðgaravinur fyrir að komast svo bjánalega að orði að Dominique Strauss Kahn hefði „áður lent í vandræðum vegna samskipta sinna við konur“ þegar hann var kærður fyrir nauðgun.
Davíð Þór Jónsson sagður hafa „brenglað viðhorf til kynlífs og kvenna“ af því að hann var ekki sammála feministum um aðferðir til að takast á við hörmungar tengdar kynlífsiðnaði.
Guðrúnu Bergmann gerð upp sú skoðun að konur eigi að hafa kynmök gegn vilja sínum, af því að hún gaf þetta ráð til að halda neistanum í sambandinu; „segðu frekar já en nei þegar þú ert ekki alveg viss um hvort þú sért tilbúin/n til að bregðast við löngun hins aðilans í kynmök – og beindu huganum að því að kveikja eldinn.“
Fullyrðingar um að ég sé í herferð gegn þolendum kynferðisofbeldis með því að benda á það geti leitt til dómsmorða að slaka á sönnunarkröfum og skilgreina nauðgun á upplifunarforsendum.

Mannorðsmorð þykja sjálfsögð ef þau þjóna málstaðnum  

Borgarfulltrúi krossar fingur í von um að gefin verði út nauðgunarákæra á hendur þekktum manni áður en rannsókn málsins er lokið.
Þekktur kvenhyggjusinni og áhrifamanneskja sem nú er framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins skrifar pistil þar sem hún krefst opinberrar ákæru í hinu sama máli um það leyti sem rannsókn var rétt að hefjast. (Hún breytti titlinum síðar en fyrsta fyrirsögnin sést enn í vefslóðarglugganum)
Mikil hneykslun og mótmæli gegn því að tímarit setji á forsíðu sína mynd af manni sem hefur verið kærður fyrir nauðgun en kærunni vísað frá.

Kvenhyggjufólk sér klámdjöfulinn í hverju horni

Fullyrðingar um orsakasamband milli klámneyslu og kynferðisofbeldis. Þetta er bara einn tengill en af nógu er að taka.
Gefinn út klámvæðingarbæklingur til þess að sporna gegn kynferðislegri áreitni á vinnustöðum Reykjavíkurborgar enda þótt kynferðisleg áreitni sé nánast óþekkt þar.

Kynjafræðikennari í framhaldsskóla talar um það í útvarpi að það að fjarlægja kynhár „narti í hælana á barnagirnd.“
Fjallað um lególeikföng sem markaðssett eru með það fyrir augum að höfða til telpna sem „klámvædd leikföng.“
Öskudagsbúningar barna, jafnvel englabúningur og blómálfabúningur sagðir eftirlíking af klæðnaði gleðikvenna.
Áform um að bjóða telpum upp á „prinsessuskóla“ flokkuð sem „klámvæðing barna“ með þeim afleiðingum að konan þurfti að hætta við að halda námskeiðin.

Hugtök á borð við „nauðgun“, „mansal“ og „kynbundið ofbeldi“ gerð merkingarlaus 

Kynlífsþjónusta skilgreind sem „greidd nauðgun.“ (Sjá t.d. ummælaþráðinn hér)
Öll kynlífsþjónusta lögð að jöfnu við mansal. Þetta opinberast m.a. í því að „human trafficking“ er þýtt sem „mansal“.
Klám skilgreint sem „kynbundið ofbeldi“ og sett í flokk með líkamsársum, nauðgunum og kynlífsþrælkun. Hér sést t.d. hvernig þetta sjúka viðhorf er farið að síast inn í orðræðu alþjóðlegra mannréttindastofnana.
Talað um nauðgun „sem eitt skýrasta birtingarform karllægra yfirráða í samfélaginu almennt.“ Þetta kemur t.d. fram í MA ritgerð Guðrúnar Margrétar Guðmundsdóttur „Af hverju nauðga karlar“ en þar kemst hún að þeirri niðurstöðu að karlar nauðgi af því að það sé svo karlmannlegt.

Hugmyndir um umfang kvenhaturs bera keim af vænissýki

Ranghugmyndir um „nauðgunarmenningu“; þ.e. sú skoðun að kynferðisofbeldi sé viðurkennd hegðun í vestrænu samfélagi. Hér er dæmi um það hvernig kvenhyggjufólk telur rétt að bregðast við hættunni á nauðgun en í sumum löndum hefur þessum lista verið dreift til karlkyns vegfarenda þar sem það eru jú karlar sem nauðga.
Hryllingsglæpur í Delhi og staðalmyndir kynjanna taldar eiga sér sömu skýringu; þ.e. almennt kvenhatur.

Karlhatur skín í gegnum umræðuna

Málefnaleg gagnrýni karla á feminisma flokkuð sem hrútskýringar. Þetta er t.d. vinsæl afgreiðsla á knuz.is ef karl vogar sér að vera ósammála.
Áherslan í umfjöllun um kynferðisofbeldi er sú að „venjulegir menn“ nauðgi.
Stígamót skilgreina drengi niður fyrir 10 ára sem kynferðisofbeldismenn.

Fórnarlambsvæðing kvenna 

Mildari meðferð réttarkerfisins á konum en körlum snúið upp í óréttlæti gegn konum því með því að stöðva þær ekki valdi réttarkerfið þeim tjóni.
Fullyrðingar (á skjön við staðreyndir) um að allar konur í klám- og kynlífsgeiranum séu viljalaus fórnarlömb.
Aðeins sagður bitamunur en ekki fjár á kvennakúgun á Íslandi og í Íran.
Talið ægilegt vandamál að atvinnuleysi kvenna minnkaði hægar en atvinnuleysi karla eftir kreppu enda þótt mun fleiri karlar en konur misstu vinnuna við hrunið. Þetta viðhorf kom víða fram á netinu, hér er bent á eitt dæmi.

Forréttinda krafist handa konum

Aðstoðarmaður innanríkisráðherra berst markvisst gegn foreldrajafnrétti.
Það að konur fái minni framlög úr Tæknisjóði talið kynjamisrétti sem þurfi að breyta enda þótt árangurhlutfall kvenna sé mun hærra en karla. Um þetta er fjallað hér.

Virðingarleysi gegn konum sem hafa önnur lífsviðhorf en kvenhyggjusinnar

Haldnar ráðstefnur um kynlífsiðnaðinn án þess að neinum fulltrúa þess iðnaðar sé boðið til umræðunnar.
Sérstök bloggsíða stofnuð í þeim eina tilgangi að hæðast að stúlkum og ungum konum sem hafa áhuga á tísku.

Litið á hefðbundnar kynjaímyndir sem kúgunartæki

Viðbrögðin við nýju barnaefni sem elur á hefðbundnum kynhlutverkum voru nánast eins og um hatursáróður hefði verið að ræða.
Talað um það sem ægilegt vandamál að stúlkur sæki ekki í spurningakeppni framhaldsskólanna (rétt eins og hún sé merkilegri en stelpnamenning.) Á umræðuþræði hér stingur einn feministinn t.d. upp á því að sækja stúlkur inn í kennslustofuna eins og þær séu smákrakkar sem þurfi að skikka til einhvers sem talið er gjörsamlega nauðsynlegt að láta þær gera.

Yfirvaldstilburðir og ritskoðunarórar

Gjörningur með fasísku táknmáli og vísunum í frægt bókmenntaverk um eftirlitssamfélag til höfuðs viðskiptavinum kynlífsþjóna.
Vangaveltur um að leyfa eingöngu klám sem kynjafræðingar samþykki og hafi eftirlit með.
Húmor tekinn bókstaflega, t.d. var einn af söngtextum Baggalúts sagður hvetja til nauðgana.

Búin til fölsk mynd af vandamálum þar sem engin vandamál eru

Rannsókn sem sýnir örlítið minni aðsókn kvenna en karla að sundstöðum leiðir til þeirrar niðurstöðu að nauðsynlegt sé að grípa til aðgerða.

Þarf fleiri samantektir?

Þetta eru bara nokkur dæmi en engan veginn tæmandi listi. Ég tók þetta saman bara svo þetta sé til á einum stað næst þegar einhver feministinn skilur ekkert hvað átt er við með öfgum og ofstæki. Ef lesendur vilja bæta einhverju við má gera það á umræðukerfinu eða senda mér tölvupóst og ég bæti þá inn í færsluna ef mér þykja ábendingarnar eiga heima hér. Einnig þætti mér gott að fá svör við því hvort lesendur telja svona samantekt gagnlega og hvort þeir telja þörf á að svipaðri samantekt um tvískinnung feminista.

Að lokum skal tekið fram að ég nenni ekki að svara neinum skætingi um að með því að viðurkenna að ofstæki þrífist í kvenhyggjuhreyfingunni sé ég að styðja viðbjóðslegar hótanir eða ofbeldishúmor.

 

Flokkar: Allt efni · Kynjapólitík
Efnisorð:

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics