Fórnarlambsvæðingin firrir konur ábyrgð. Það er ekki bara ósanngjarnt að fólk sæti minni ábyrgð í skjóli kynferðis síns heldur er það líka til þess fallið að viðhalda veikari stöðu kvenna á sumum sviðum.
Ríkjandi er tilhneiging til þess að líta á afbrotakonur og konur sem eru í óreglu sem veikgeðja fórnarlömb sem hafi „leiðst út í“ slæmt líferni. Oft eru geðsjúkdómar, óregla og önnur félagsleg vandamál kvenna skýrð sem afleiðingar af ofbeldi karlmanna. Karlar sem lenda á stofnunum vegna vímuefnavanda, geðveiki og afbrota eiga mun frekar á hættu að vera afgreiddir sem slæmir karakterar. Konur eru líka síður kærðar og fá vægari dóma en karlar.
Feministar viðhalda þessari tilhneigingu og gera illt verra með því að kenna öllu öðru en konunum sjálfum um atkvæðaleysi kvenna. Mælst er til þess að gengið sé á eftir konum til þess að þær taki að sér ábyrgðarhlutverk. Kynjahallinn í fjölmiðlum er skýrður með kvenfyrirlitningu. Ef konur sækja síður um styrki en karlar þá er það skýrt með því að karlar hafa svo lengi verið vondir við konur að þær hafa bara enga trú á sjálfum sér.
Stuttar færslur um 33 ástæður til að uppræta femnisma verða birtir jafnt og þétt í sumar. Þessir eru þegar komnir í loftið:
33 ástæður til að uppræta feminisma
1. Við þurfum ekki feminisma til að tryggja jafnrétti
2. Grundvöllur feminismans er lygi
3. Feminismi notar lygar í áróðursskyni
4. Feminisminn lítur á karlmenn sem illmenni
5. Feminisminn lítur á konur sem fórnarlömb
6. Feminismi firrir konur ábyrgð
7. Feminisminn er í stöðugri mótsögn við sjálfan sig
8. Feminismi skaðar konur í kynlífsiðnaði
9. Feministar takmarka sjálfsákvörðunarrétt kvenna
10. Feminisk áhrif veikja réttaröryggi sakborninga
11. Feministar nota háskóla til að breiða út gervivísindi
12. Feminismi er ríkisstyrkt valdanet
13. Feministar vilja fá að stunda trúboð í skólum
14. Feminismi leggur kynhlutverk að jöfnu við kvennakúgun
15. Feminismi er kvennamenningu fjandsamlegur
16. Feminismi er nýhreintrúarstefna
17. Feministar vilja ákveða normin í kynferðismálum
18. Feminismi er að festa sig í sessi sem kennivald
19. Feminismi vinnur gegn kvenréttindum
20. Feminismi er dólgapólitík
21. Feminismi er hugsjónastríð
22. Feministar sinna þjónustu sem ætti að vera í höndum fagfólks
23. Feminismi er fasísk hugmyndafræði
24. Feministar hafa ranghugmyndir um norm samfélagsins
25. Feminismi einkennist af pólitískum rétttrúnaði
26. Feministar rangtúlka listaverk í áróðursskyni
27. Feministar eru með klám á heilanum
28. Feministar vilja ráða því hvað skuli teljast valdeflandi
29. Feministar ýkja tölur um kynbundinn launamun
30 Feministar styðja kynbundna mismunun
31 Feminismi vinnur gegn lýðheilsumarkmiðum
32 Feminismi nærir sorpblaðamennsku
33 Feministar hafa eyðilagt hugtakið feminismi