Föstudagur 31.05.2013 - 09:00 - FB ummæli ()

2. Grundvöllur feminismans er lygi

Önnur ástæða til að uppræta feminisma er sú að feminismi er hugmyndafræði sem grundvallast beinlínis á lygi. Lyginni um feðraveldið. Og nei, feministar taka ekki bara svona til orða, þeir boða í alvöru þá ranghugmynd að lítill munur sé á aðstæðum kvenna í forhertustu harðstjórnarríkjum og á Íslandi.

Til eru samfélög þar sem alvöru feðraveldi ríkir enn í dag. Þar sem konur hafa engan lagalegan rétt til barna sinna, þar sem framburður konu fyrir rétti gildir aðeins til hálfs á við framburð karls. Þar sem kynfæri stúlkubarna eru skorin af þeim með skítugu glerbroti og þær gefnar í hjónabönd áður en þær ná kynþroska. Þar sem konur eru dæmdar í fangelsi fyrir skírlífisbrot, hýddar, grýttar eða jafnvel drepnar af sinni eigin fjölskyldu án afskipta stjórnvalda. Þar sem nauðganafórnarlömb eru grýtt til bana.

Hvergi í hinum vestræna heimi er kynjamismunun lögleg. Hvergi í veröldinni er staða kvenna eins góð og á Íslandi. Þegar vestrænum samfélögum er líkt við feðraveldi er það ósköp einfaldlega lygi.

Ég er ekki að segja að enginn sannleikur finnist í málflutningi feminista en það eru líka sannleikskorn bæði í Kóraninum og Mein Kampf. Við getum vel notað þann sannleika til góðs þótt við höfnum hugmyndakerfi sem byggir á einhverju rugli.

femugla2

Stuttar færslur um 33 ástæður til að uppræta femnisma verða birtir jafnt og þétt í sumar. Þessir eru þegar komnir í loftið:

33 ástæður til að uppræta feminisma
1. Við þurfum ekki feminisma til að tryggja jafnrétti
2. Grundvöllur feminismans er lygi
3. Feminismi notar lygar í áróðursskyni
4. Feminisminn lítur á karlmenn sem illmenni
5. Feminisminn lítur á konur sem fórnarlömb
6.  Feminismi firrir konur ábyrgð
7.  Feminisminn er í stöðugri mótsögn við sjálfan sig
8. Feminismi skaðar konur í kynlífsiðnaði
9.  Feministar takmarka sjálfsákvörðunarrétt kvenna
10.  Feminisk áhrif veikja réttaröryggi sakborninga
11. Feministar nota háskóla til að breiða út gervivísindi
12. Feminismi er ríkisstyrkt valdanet
13.  Feministar vilja fá að stunda trúboð í skólum
14.  Feminismi leggur kynhlutverk að jöfnu við kvennakúgun
15. Feminismi er kvennamenningu fjandsamlegur
16. Feminismi er nýhreintrúarstefna
17. Feministar vilja ákveða normin í kynferðismálum
18. Feminismi er að festa sig í sessi sem kennivald
19. Feminismi vinnur gegn kvenréttindum
20. Feminismi er dólgapólitík
21. Feminismi er hugsjónastríð
22. Feministar sinna þjónustu sem ætti að vera í höndum fagfólks
23. Feminismi er fasísk hugmyndafræði
24. Feministar hafa ranghugmyndir um norm samfélagsins
25. Feminismi einkennist af pólitískum rétttrúnaði
26. Feministar rangtúlka listaverk í áróðursskyni
27. Feministar eru með klám á heilanum
28. Feministar vilja ráða því hvað skuli teljast valdeflandi
29. Feministar ýkja tölur um kynbundinn launamun
30 Feministar styðja kynbundna mismunun
31 Feminismi vinnur gegn lýðheilsumarkmiðum
32 Feminismi nærir sorpblaðamennsku
33 Feministar hafa eyðilagt hugtakið feminismi

 

Flokkar: Allt efni · Kynjapólitík
Efnisorð: ,

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics