Laugardagur 01.06.2013 - 10:30 - FB ummæli ()

4. Feminisminn lítur á karla sem illmenni

Fjórða ástæðan til að uppræta feminisma er sú að feministar líta á karla sem skúrka sem eru líklegir til að meiða konur og nauðga þeim. Þetta viðhorf nær jafnvel til smábarna. Þess sjást meira að segja merki á Íslandi.

Reyndar viðurkenna feministar ekki þessa afstöðu sína. Í orði kveðnu líta þær svo á að karlar séu frá náttúrunnar hendi jafn dásamlegir og konur. Skoðum t.d. aftur þessa færslu.  Sjáið lið nr. 17:

Vegna þess að við þurfum að breyta ímynd feðraveldisins af karlmanninum sem árásargjörnu dýri sem getur ekki haft stjórn á hvötum sínum.

Vá hvað þetta hljómar vel. Það eru ekki feministar sem breiða út þessa hugmynd heldur „feðraveldið“.  Og hvernig fara svo bjargvættir okkar að því að breyta þessu viðhorfi? Við getum byrjað á því að skoða umrædda færslu. Þarna eru taldar upp 33 ástæður fyrir nauðsyn feminismans, þar af 14 sem snúast beinlínis um það að konum sé nauðgað og ein sem varðar heimilisofbeldi. Restin snýst að mestu um klámvæðingu,  kvenfyrirlitningu og það hvað konur séu í miklu veikari stöðu en karlar. Ég hef ekki gert úttekt á því hversu hátt hlutfall pistla á Knúzinu sýnir karla sem eitthvað annað en ofbeldismenn og kvenhatara en ég fullyrði að það hlutfall er ekki hátt.

 

femugla4

Stuttar færslur um 33 ástæður til að uppræta femnisma verða birtir jafnt og þétt í sumar. Þessir eru þegar komnir í loftið:

33 ástæður til að uppræta feminisma
1. Við þurfum ekki feminisma til að tryggja jafnrétti
2. Grundvöllur feminismans er lygi
3. Feminismi notar lygar í áróðursskyni
4. Feminisminn lítur á karlmenn sem illmenni
5. Feminisminn lítur á konur sem fórnarlömb
6.  Feminismi firrir konur ábyrgð
7.  Feminisminn er í stöðugri mótsögn við sjálfan sig
8. Feminismi skaðar konur í kynlífsiðnaði
9.  Feministar takmarka sjálfsákvörðunarrétt kvenna
10.  Feminisk áhrif veikja réttaröryggi sakborninga
11. Feministar nota háskóla til að breiða út gervivísindi
12. Feminismi er ríkisstyrkt valdanet
13.  Feministar vilja fá að stunda trúboð í skólum
14.  Feminismi leggur kynhlutverk að jöfnu við kvennakúgun
15. Feminismi er kvennamenningu fjandsamlegur
16. Feminismi er nýhreintrúarstefna
17. Feministar vilja ákveða normin í kynferðismálum
18. Feminismi er að festa sig í sessi sem kennivald
19. Feminismi vinnur gegn kvenréttindum
20. Feminismi er dólgapólitík
21. Feminismi er hugsjónastríð
22. Feministar sinna þjónustu sem ætti að vera í höndum fagfólks
23. Feminismi er fasísk hugmyndafræði
24. Feministar hafa ranghugmyndir um norm samfélagsins
25. Feminismi einkennist af pólitískum rétttrúnaði
26. Feministar rangtúlka listaverk í áróðursskyni
27. Feministar eru með klám á heilanum
28. Feministar vilja ráða því hvað skuli teljast valdeflandi
29. Feministar ýkja tölur um kynbundinn launamun
30 Feministar styðja kynbundna mismunun
31 Feminismi vinnur gegn lýðheilsumarkmiðum
32 Feminismi nærir sorpblaðamennsku
33 Feministar hafa eyðilagt hugtakið feminismi

Flokkar: Allt efni · Kynjapólitík
Efnisorð: ,

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics