Í nýlegum pistli sem birtist á Stundinni, „Skynsamleg trú“, fjallaði ég um tiltekna röksemdarfærslu fyrir tilvist Guðs, hin svokölluðu heimsfræðirök. Samkvæmt þeim er sú rökrétta niðurstaða dregin að alheimurinn eigi sér orsök á grundvelli þeirra forsenda að allt sem verði til eigi sér orsök, og að alheimurinn hafi orðið til (þ.e. eigi sér upphaf). Sú […]
Mér er af og til bent á það af mínum guðlausu vinum og kunningjum – bæði í gríni og alvöru – að dusta rykið af þekkingu minni á vísindum (eða verða mér út um einhverja!) í þeirri von að það venji mig af þessum eilífu vangaveltum og skrifum um Guð og Jesú og kristna trú. […]
Nýleg stöðufærsla á facebook-síðu Helga Hrafns Gunnarssonar, þingmanns og pírata, vakti athygli mína. Þar segir Helgi: „Kærleikur og umburðarlyndi eru gildi sem standa á eigin fótum. Það á ekki að þurfa yfirnáttúruleg fyrirbæri, loforð um himnaríki eða hótun um vítisvist til þess að fólk tileinki sér þau.“ Þetta er umhugsunarvert. Nú veit ég ekki að […]
Ég trúi á Guð föður almáttugan, skapara himins og jarðar! Þannig hefst hin kristna trúarjátning. Guð talar og allt verður til! Að alheimurinn og allt sem í honum er fólgið sé skapað af Guði er grundvallandi hluti kristinnar trúar og játningar. Kristin trú er í eðli sínu þakkargjörð frammi fyrir Skaparanum og sköpun hans. Þakklæti, […]
Ein þekktasta – og að mínu mati frumlegasta – röksemdafærslan fyrir tilvist Guðs eru hin svokölluðu verufræðirök ítalska miðaldamunksins og heimspekingsins Anselms frá Aosta (1033–1109). Anselm var munkur, kennari og ábóti í klaustrinu Bec í Normandí, og síðar erkibiskup í Kantaraborg. Hann var samtímamaður fyrstu íslensku biskupana, Ísleifs, Gissurar og Jóns, og annarra nafntogaðra íslendinga […]
„Ég trúi á kristindóminn eins og ég trúi því að sólin hafi risið upp; ekki eingöngu vegna þess að ég sé hana heldur vegna þess að hennar vegna sé ég allt annað.“ Svo sagði trúvarnarmaðurinn C.S. Lewis. Kristin trú er í eðli sínu heimssýn. Hún dregur upp tiltekna mynd af veruleikanum, felur í sér ákveðið […]
Svarið við þeirri spurningu veltur á því hvað átt er við með orðinu „sönnun“. Margir segjast ekki geta trúað á Guð nema fá allt að því áþreifanlegar sannanir fyrir því að hann sé til. Ef átt er við það, ef sönnun merkir „fullvissa“ eða „hafið yfir allan vafa“ eða „óvéfengjanlegt“ þá er að sjálfsögðu ekki hægt […]
Til eru margskonar og ólík rök fyrir tilvist Guðs. Heimsfræðirök eru tiltekin rök þar sem tilvist Guðs er leidd af þeirri einföldu staðreynd að alheimurinn er til. Heimsfræðirökin má útfæra á ólíkan hátt, meðal annars á grundvelli þess að alheimurinn varð til, þ.e. að hann er ekki eilífur. Ef alheimurinn er ekki eilífur þá hefur […]