Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með viðbrögðum stjórnenda Samherja eftir að óvænt innsýn í starfshætti þeirra birtist almenningi í vandaðri umfjöllun Kveiks og Stundarinnar. Fyrstu viðbrögð Samherja komu reyndar fram áður en gögn Kveiks og Stundarinnar birtust, í formi yfirlýsingar frá fyrirtækinu (sem augljóslega vissi hvað var í vændum). Þau voru hvorki stórbrotin né veigamikil. […]
Breski stóreignamaðurinn Jim Ratcliffe á um það bil helmingi fleiri laxveiðijarðir en áður var talið. Þetta kom í ljós við athugum rannsóknarblaðamanna Kveiks á RÚV. Menn vissu auðvitað að Ratcliffe hefur verið atkvæðamikill á norðaustur landi og töldu það að mestu bundið við Vopnafjörð. Nú er sem sagt komið í ljós að hann er kominn […]
Landsbankinn hefur greitt ríkinu 142 milljarða í arð á síðustu 7 árum (sjá hér). Á aðeins 7 árum. Samgöngusáttmálinn fyrir höfuðborgarsvæðið, sem kynntur var í síðasta mánuði, á að kosta 120 milljarða – samanlagt á 15 árum (sjá hér). Ef Landsbankinn hefði áfram svipaðan arð af starfsemi sinni næstu sjö árin myndi samanlagður arður af […]
Hagstofa Íslands hefur birt tölur um launabreytingar á almennum markaði frá síðasta ári fyrri kjarasamnings (desember 2018) og til maí 2019, þ.e. eftir að fyrsta launahækkun lífskjarasamningsins er gengin yfir. Niðurstöðuna má sjá á meðfylgjandi mynd. Hækkunin er mest hjá launalægstu hópunum (5,2% til 5,5%) og fer svo minnkandi þegar litið er til launahærri hópa. […]
Nú virðast stjórnvöld ætla að fjármagna nauðsynlegar vegaframkvæmdir með veggjöldum, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Það er í senn óréttlát og óhagkvæm leið til tekjuöflunar. Veggjöld eru óréttlát vegna þess að þau leggjast með mestum þunga á lágtekjufólk, sem þarf að nota bíl til að sækja vinnu og koma börnum á leikskóla og í frístundastarfsemi. Veggjöld […]
Eftirfarandi er umsögn Eflingar-stéttarfélags um fyrirhugaðar skattkerfisbreytingar stjórnvalda, sem er athyglisverð og sýnir skýra stefnu til framtíðar: „Efling lagði mikla áherslu á umbætur í skattamálum fyrir lágtekjufólk í tengslum við kjarasamningana á síðasta vetri. Meðal annars lét Efling vinna ítarlega úttekt á stöðu og þróun skattbyrðar lágtekjufólks og tillögur um breytingar í átt til […]
Ég held að Frosti Sigurjónsson og félagar hans í Orkunni okkar hafi rétt fyrir sér um orkupakkamál Evrópusambandsins. Þó ímynd Miðflokksmanna sé mjög neikvæð eftir Klausturmálið þá hafa þeir einnig að mestu rétt fyrir sér um orkupakkana. Orkupakkar 1 og 2 fóru í gegn án umræðu, í skjóli sinnuleysis. En þeir voru skaðlegir hagsmunum íslensku […]
Sjálfstæðismenn keyra nú á þeirri stefnu sinni að selja Íslandsbanka að fullu og einnig meirihluta ríkisins í Landsbankanum. Vilja drífa í þessu áður en fólk áttar sig á hvað er að gerast. Sjálfstæðismenn vilja að ríkið verði einungis áhrifalítill minnihlutaeigandi Landsbankans. Þjóðin er á allt annarri skoðun. Í könnum sem nefnd fjármálaráðherra um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið lét […]
Þegar Ögmundur Jónasson var innanríkisráðherra setti hann reglugerð sem takmarkaði heimildir útlendinga til landakaupa hér á landi. Skilyrðið var að viðkomandi landakaupandi gæti sýnt fram á búsetu eða áform um atvinnurekstur hér á landi. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn komst til valda á ný (2013) afnam eftirmaður Ögmundar, Hanna Birna Kristjánsdóttir, reglugerð hans umsvifalaust. Sagði hana hafa verið á […]
Óli Björn Kárason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar æsta grein í Morgunblaðið í dag um það sem hann kallar “tímasprengju” í lífeyrismálum (sjá hér). Þar leggur hann út af þeirri lýðfræðilegu staðreynd að hlutfall eldri borgara muni fara vaxandi á Íslandi á næstu áratugum – líkt og í öðrum nútímalegum samfélögum. Segir hann þjóðina ekki hafa […]
Fyrri pistlar