Þann 9. október, fyrir tveimur mánuðum síðan, lögðu Framsókn og flugvallarvinir fram eftirfarandi fyrirspurn í borgarráði:
“Borgarráðsfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Upplýsinga er óskað um hvaða lóðir eru í eigu Reykjavíkurborgar vestan Elliðaáa, sem eru byggingarhæfar nú, eða á næstu 6 mánuðum, sem ekki hefur verið ráðstafað til byggingaraðila.”, sbr. fundargerð 9. okt. 2014
Þessarri fyrirspurn hefur ekki ennþá verið svarað, en samt hefur nú verið samþykkt í borgarráði viljayfirlýsingar á milli a) borgarinnar og Búseta, (fundargerð 4. des 2014.) b)borgarinnar og Félagsstofunar stúdenta og borgarinnar og c) Byggingarfélagsnámsmanna fundargerð 27. nóv 2014. um úthlutun á ákveðnum lóðum í eigu borgarinnar til þessarra aðila.
Gagnrýnt hefur verið að jafnræðis sé ekki gætt í “velviljuðum” lóðarúthlutunum til eins húsnæðissamvinnufélags umfram önnur, sbr. bókanir Framsóknar og flugallarvina við afgreiðslu viljayfirlýsinganna þann 4. desember 2014.
Ef fleiri húsnæðissamvinnufélög fara þess á leit við borgina, að fá vilyrði fyrir lóðum, hvaða lóðir verða þeim þá boðnar? Miðað við þögnina sem ríkir vegna þessarar fyrirspurnar hlýtur staðan að vera sú að borgin á engar lóðir á þessu svæði til úthlutunar.
Er þetta réttláta samfélagið sem við viljum byggja upp, þegar einu félagi er hyglt á kostnað annarra?
Rita ummæli