Föstudagur 04.01.2013 - 23:12 - FB ummæli ()

Ertu femenisti?

Ég er feministi – EN…

– en ég er samt ekkert að segja að konur séu rosalega kúgaðar.
– en mér finnst framkvæmd VG á röðun kvenna á framboðslistum ekki vera jafnréttisstefna.
– en ég held ekki að rugludallarnir í albúmi Hildar Lilliendahl standi fyrir dæmigerð viðhorf.
– en ég er samt á móti því að glæpvæða kynlífsþjónustu.
– en ég sé ekkert kvenfjandsamlegt við fegrunaraðgerðir.
– en það hallar líka á karlmenn á sumum sviðum.
Og svo framvegis. Og svo framvegis.

Það er einmitt þetta stóra EN sem oft fylgir þegar fólk segist vera feministar sem bendir til þess að viðhorf þess eigi sáralítið skylt við kvenhyggju.

Það er eðlilegt að fólk sem hefur áhuga á kynjapólitík og svíður óréttlæti gegn konum telji sig feminista vegna þess að strategía kvenhyggjusinna hefur falist í því að telja almenningi trú um að feminismi sé jafnréttisstefna.  Sjálf stóð ég árum saman í þeirri trú að mínar skoðanir á kynjamálum féllu undir einhverja sérviskulega grein feminismans. Þótt e.t.v. væri með góðum vilja hægt að troða mér inn í slíka skilgreiningu, skiptir það engu máli, þegar allir feministar sem eitthvað heyrist frá eru mér ósammála í grundvallaratriðum.  Í kynjafræðinni við í Háskóla Íslands er ég skilgreind sem  „kyndilberi andfeminisma á Íslandi“ og það er miklu sannari greining en að kalla mig pro-sex feminista, tilvistarfeminista eða femeitthvað annað. Margir femENistar eiga jafn lítið sammerkt með kvenhyggjusinnum og ég sjálf og ef þú ert í þessum EN-hópi gætir þú komist að óvæntri niðurstöðu með því að bera þínar eigin skoðanir saman við ríkjandi kvenhyggju annarsvegar og viðhorf kyndilbera andfeminismans hinsvegar. 

Útlitsdýrkun

Atvinnulífið

Feðraveldi

Kynbundið ofbeldi

Nauðgunarmenning

 

Að koma í veg fyrir nauðganir

Þetta eru aðeins nokkur dæmi um kynjamál sem voru mikið í umræðunni á síðasta ári. Ef þú hefur lesið þetta í gegn og ert sammála viðhorfi kvenhyggjunnar í flestum atriðum þá ertu feministi. En ef ENin eru svo mörg að þú átt eiginlega meira sameiginlegt með kyndilbera andfeminsmans, hvað ertu þá? Feministi sem er sammála andfeministum? Eða kannski femenisti? Eða ertu kannski bara jafnréttissinni með áhuga á kynjapólitík og alls enginn feministi?

 

Flokkar: Allt efni · Kynjapólitík
Efnisorð: ,

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics