Fimmtudagur 06.06.2013 - 10:18 - FB ummæli ()

Sérstaka skatta á karlmenn?

Hvergi í heiminum hefur dólgafeminismi blómstrað eins vel og í Svíþjóð enda er það Svíþjóð sem Íslendingar líta til í jafnréttismálum. Nú hefur jafnréttisnefnd Umeå lagt til að tekinn verði upp sérstakur jafnréttisskattur sem eingöngu verði lagður á karlmenn. Tilgangurinn er sá að jafna tekjur en meðaltekjur kvenna eru lægri en meðaltekjur karla. Að vísu er vinna konur að jafnaði færri vinnustundir. Ætli hugmyndin sé ekki sú að þær druslist kannski frekar til að taka fullt starf þegar ráðstöfunartekjur heimilanna minnka af því að  makar þeirra þurfa að greiða hærri skatta?

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sænskir dólgafeministar stinga upp á kynbundnum sköttum. Fyrir nokkrum árum var lagt fram frumvarp í sænska þinginu um sérstakan ofbeldisskatt á alla karlmenn.

Flokkar: Allt efni · Kynjapólitík
Efnisorð:

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics