Miðvikudagur 12.06.2013 - 11:26 - FB ummæli ()

12. Feminismi er ríkisstyrkt valdanet

Feministar eru ekki aðeins á launum hjá háskólum við að stunda gervirannsóknir og breiða út pólitíska hugmyndafræði, þeir hafa líka komið sér fyrir hjá ýmsum opinberum stofnunum, nefndum og ráðum.

Margar stofnanir og starfsteymi á vegum ríkis og sveitarfélaga hafa feminísk markmið að leiðarljósi.  Þeim er t.d. ætlað að úthluta kynbundnum styrkjum og tryggja konum önnur forréttindi, vitanlega undir yfirskyni jafnréttisstefnu.  Þetta er fólk sem hefur pólitísk völd.  Fólk sem er á launum hjá hinu opinbera við að dreifa áróðri, styrkja sitt eigið tengslanet, búa til ennþá fleiri launuð verkefni fyrir femnista og auka veg gervivísinda.

Feministahreyfingar reka kvennaathvörf og aðra félagslega þjónustu sem ætti að vera í höndum fagfólks og á ábyrgð hins opinbera.  Slíkar hreyfingar fá opinbera styrki og aðra fyrirgreiðslu enda þótt þær séu augljóslega reknar á grundvelli pólitískrar hugmyndafræði (þeirrar að öll vandamál kvenna megi rekja til ofbeldis karla gagnvart þeim) en ekki faglegrar þekkingar.

Þessi þjónkun hins opinbera við feminismann og feminískar valdaklíkur hefur svo áhrif út í samfélagið. Bankar og önnur fjársterk fyrirtæki telja ímynd sinni best borgið með því að ástunda kynjamismunun, konum í hag, t.d. með sérstökum viðurkenningum og styrkjum til kvenna, enda þótt kynjamismunun sé lögbrot.

 

femugla12

33 ástæður til að uppræta feminisma
1. Við þurfum ekki feminisma til að tryggja jafnrétti
2. Grundvöllur feminismans er lygi
3. Feminismi notar lygar í áróðursskyni
4. Feminisminn lítur á karlmenn sem illmenni
5. Feminisminn lítur á konur sem fórnarlömb
6.  Feminismi firrir konur ábyrgð
7.  Feminisminn er í stöðugri mótsögn við sjálfan sig
8. Feminismi skaðar konur í kynlífsiðnaði
9.  Feministar takmarka sjálfsákvörðunarrétt kvenna
10.  Feminisk áhrif veikja réttaröryggi sakborninga
11. Feministar nota háskóla til að breiða út gervivísindi
12. Feminismi er ríkisstyrkt valdanet
13.  Feministar vilja fá að stunda trúboð í skólum
14.  Feminismi leggur kynhlutverk að jöfnu við kvennakúgun
15. Feminismi er kvennamenningu fjandsamlegur
16. Feminismi er nýhreintrúarstefna
17. Feministar vilja ákveða normin í kynferðismálum
18. Feminismi er að festa sig í sessi sem kennivald
19. Feminismi vinnur gegn kvenréttindum
20. Feminismi er dólgapólitík
21. Feminismi er hugsjónastríð
22. Feministar sinna þjónustu sem ætti að vera í höndum fagfólks
23. Feminismi er fasísk hugmyndafræði
24. Feministar hafa ranghugmyndir um norm samfélagsins
25. Feminismi einkennist af pólitískum rétttrúnaði
26. Feministar rangtúlka listaverk í áróðursskyni
27. Feministar eru með klám á heilanum
28. Feministar vilja ráða því hvað skuli teljast valdeflandi
29. Feministar ýkja tölur um kynbundinn launamun
30 Feministar styðja kynbundna mismunun
31 Feminismi vinnur gegn lýðheilsumarkmiðum
32 Feminismi nærir sorpblaðamennsku
33 Feministar hafa eyðilagt hugtakið feminismi

Flokkar: Allt efni · Kynjapólitík
Efnisorð: ,

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics