Færslur fyrir flokkinn ‘Kynjapólitík’

Laugardagur 15.06 2013 - 09:35

15. Feminismi er kvennamenningu fjandsamlegur

Feminisminn er fullur vandlætingar gagnvart kvennamenningu.  Konur sem hafa áhuga á tísku og útliti eru sívinsælt skotmark. Fjandsamleg viðhorf til kvennamenningar koma jafnvel fram í umræðunni um leikföng.  Það þykir ótækt að bjóða stelpum upp á kaffihús, dýraspítala og snyrtistofur af því að það er „ekki gagnlegt fyrir samfélagið“ eins og það er orðað í […]

Föstudagur 14.06 2013 - 15:15

Eins og hýenan rennur á blóðslóð

Rétt eins og hýenan rennur á blóðslóð, ráðast vinstri sósíalistar af hörku gegn öllum þeim sem andmæla hinni „réttu skoðun“. Þannig kemst Brynjar Níelsson að orði í grein sinni „Nýjar vígstöðvar sósíalismans“  þegar hann lýsir  viðbrögðum umhverfissinna við þeirri skoðun forsætisráðherra að fjöldi umsagna frá náttúruverndarfólki ætti ekki að hafa áhrif á ákvarðanir um stórkostleg náttúruspjöll. […]

Föstudagur 14.06 2013 - 11:30

14. Feminismi leggur kynhlutverk að jöfnu við kvennakúgun

Feminismi gengur út frá því að nánast enginn eðlismunur sé á kynjunum. Feministar líta á kynhlutverk og kynbundin leikföng sem birtingarmynd kvennakúgunar og vilja helst uppræta allan kynjamun. Feministar segjast berjast gegn því að fólk sé fjötrað í hlekki staðalmynda. Það er þarft verk. Allt bendir þó til þess að rétt eins og aðrir prímatar […]

Fimmtudagur 13.06 2013 - 10:07

13. Feministar vilja fá að stunda trúboð í skólum

Feministar vilja fá að boða pólitíska hugmyndafræði sína í barnaskólum. „Jafnréttisfræðsla“ er ekkert annað en kynjafræði fyrir börn. Boðskapurinn er sá sami og „fræðslan“ er byggð á sömu gervivísindunum. Þrátt fyrir að engum dyljist að drengir eiga erfiðara uppdráttar í skólakerfinu en telpur og flosni frekar upp úr námi, er öll  áhersla Kynungabókar á stöðu […]

Miðvikudagur 12.06 2013 - 11:26

12. Feminismi er ríkisstyrkt valdanet

Feministar eru ekki aðeins á launum hjá háskólum við að stunda gervirannsóknir og breiða út pólitíska hugmyndafræði, þeir hafa líka komið sér fyrir hjá ýmsum opinberum stofnunum, nefndum og ráðum. Margar stofnanir og starfsteymi á vegum ríkis og sveitarfélaga hafa feminísk markmið að leiðarljósi.  Þeim er t.d. ætlað að úthluta kynbundnum styrkjum og tryggja konum […]

Þriðjudagur 11.06 2013 - 10:24

11. Feministar nota háskóla til að breiða út gervivísindi

Feministar hafna vísindalegum aðferðum. Þar með er obbinn af öllum feminískum rannsóknum ómarktækur.  Það kemur samt ekkert í veg fyrir að sé vísað til þeirra í umræðunni og þegar sama lygin er sögð nógu oft trúir fólk henni. Ég ætla aðeins að nefna eitt dæmi hér; goðsögnina um að heimilisofbeldi sem „kynbundið“, þ.e. að reglan […]

Mánudagur 10.06 2013 - 10:12

10. Feminísk áhrif veikja réttaröryggi sakborninga

Feminísk áhrif á réttarkerfið hafa víða orðið til þess að sönnunarbyrði í kynferðisbrotamálum hefur færst yfir á sakborning.  Þetta hefur verið stórt vandamál í nágrannalöndum okkar, einkum í Svíþjóð. Svíar eru nú loksins að falla frá þessari stefnu og hefur mörgum dómum verið snúið við í hæstarétti á síðustu árum. Þegar tilhneiging feminista til að […]

Sunnudagur 09.06 2013 - 09:50

9. Feministar takmarka sjálfsákvörðunarrétt kvenna

Femínistar hafa takmarkað rétt kvenna til að ráða yfir eigin líkama og vilja takmarka hann enn frekar. Það er fráleitt að sú stefna að refsa viðskiptavinum kynlífsþjóna feli ekki í sér kúgun gegn þeim konum sem selja þjónustuna. Baráttan gegn kynlífsiðnaði er samt að vissu leyti skiljanleg því sá iðnaður er vissulega eitt af skálkaskjólum […]

Föstudagur 07.06 2013 - 09:52

Ég hef hatað karlmenn

Ég hef hatað karla. Ekki í þeirri merkingu að ég vildi útrýma karlkyninu en ég hef orðið svo sár út í svo marga karlmenn að í mörg ár taldi ég vissara að mæta hverjum þeim manni sem ég hefði hugsanlega getað hrifist af með yfirdrifinni tortryggni og kaldhæðni.  Ég hélt að ef ég reiknaði með […]

Fimmtudagur 06.06 2013 - 10:18

Sérstaka skatta á karlmenn?

Hvergi í heiminum hefur dólgafeminismi blómstrað eins vel og í Svíþjóð enda er það Svíþjóð sem Íslendingar líta til í jafnréttismálum. Nú hefur jafnréttisnefnd Umeå lagt til að tekinn verði upp sérstakur jafnréttisskattur sem eingöngu verði lagður á karlmenn. Tilgangurinn er sá að jafna tekjur en meðaltekjur kvenna eru lægri en meðaltekjur karla. Að vísu […]

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics