Fyrir Alþingi liggur nú nýtt frumvarp til laga um málefni útlendinga. Með tilliti til þess hvernig þessi málaflokkur hefur verið meðhöndlaður í gegnum tíðina teljum við frumvarpið vera stórt skref í rétta átt. Enn frekari úrbóta er þó þörf eins og reifað er í kröfum No Borders. Meðferð flóttamanna á Íslandi Þvert á ákvæði […]
Þann 13. febrúar sl bárust fréttir af því að hersveitir Nató hefðu drepið 10 óbreytta borgara í Afghanistan, þar af 5 börn. Núna í síðustu viku féllu svo tvö smábörn sem voru álitin hryðjuverkamenn. Nató tekur að sjálfsögðu „fulla ábyrgð“ á þessum drápum og ætlar að greiða fjölskyldum barnanna bætur. Þannig tekur maður fulla ábyrð […]
Vigdís Hauksdóttir heldur áfram að opinbera kjánaskap sinn í útvarpsviðtali um afstöðu hennar til flóttamanna. Bullið í henni er efni í heila pistlaröð. Byrjum á þeirri vondu réttlætingu fyrir mannvonsku sem í daglegu tali er kölluð Dyflinnarreglan. Ekki skylda heldur heimild Vigdís staðhæfir að samkvæmt Dyflinnarreglugerð Evrópusambandsins beri Íslendingum að vísa flóttamönnum til annara Evrópulanda. Þetta er ósatt. […]
Fyrir hönd félags áhugafólks um málefni flóttamanna (áður birt í DV) Vigdís Hauksdóttir hefur lagt fram á alþingi fyrirspurn um málefni flóttamanna. Fyrirspurnin lýsir áhyggjum af meintri eftirsókn flóttamanna eftir óverðskulduðu hæli á Íslandi ásamt þeirri hugmynd að flóttamenn séu öðrum glæphneigðari. Þingmaðurinn spyr hvort komi til greina að láta menn sem reyna að flýja […]
Árlega fær lögreglan 175 hleranaheimildir. Það merkir ný hlerunarheimild næstum því annan hvern dag. Heimildir hafa gilt í allt að 110 daga. Hversu lengi ætli hleranaheimildir gildi að meðaltali? Hversu margir hlerunardagar eru þetta samanlagt? Ekkert eftirlit Enn veit almenningur ekkert hvort eftirlit með hlerunum er yfirhöfuð viðhaft. Ríkissaksóknari getur engu svarað og vísar á […]
Ég á vin sem langaði að verða kvikmyndagerðarmaður. Þegar hann var ungur var kvikmyndagerð ekki kennd á Íslandi. Hann átti lítil börn en enga peninga og var ekki áhættusækinn. Hann vissi að líkurnar á því að hann slægi í gegn voru takmarkaðar og komst að þeirri niðurstöðu að það þjónaði hagsmunum fjölskyldunnar betur að hann […]
Þann 30. 01.2012 birti ég pistil sem ég finn mig knúna til að endurbirta í tilefni frétta af nýjustu árás dólgafeminista á kvenfrelsi. Staðgöngumæðrun, heilaspuni og rannsóknir Enda þótt konur lifi að jafnaði lengur en karlar, lendi síður í slysum og séu líklegri til að leita aðstoðar ef þær lenda í aðstæðum sem […]
Ég játa. Mér varð það á að hlæja þegar ég sá þetta. En þetta er ekki fyndið og glottið breyttist í grettu þegar ég hugsaði um það hverskonar upplýsingar þeir sem ekki kunna á facebook gætu óvart sett á opinn vegg. Ég get hlegið að þessu af því að þarna kom ekkert fram sem hefði […]
Gamalmennisraus hins fallna konungs hefði sennilega litla athygli fengið nema vegna þess að karlinn var dónalegur við konu. Karlana í röðum Vg og gamla Alþýðubandalagsins kallar ritstjórinn klókindamenn, gullkistuvörð, dráttarklár, leyniskjalaverði, samsærisbræður, og vísar til gamalla orða formannsins um Davíð sjálfan sem gungu og druslu. Hann kallar forseta lýðveldisins að vísu ekki Óla grís […]
Mér hefur löngum þótt það fyndinn gjörningur hjá Framsóknarflokknum að koma Vigdísi Hauksdóttur á þing. En nú er þetta hætt að vera fyndið. Ég er of reið til að skrifa um þetta í augnablikinu án þess að hætta á að segja eitthvað sem ég gæti séð eftir. Það hlýtur að koma að því að adrenalínflæðið […]