Ríkisútvarpið hefur staðið fyrir herferð gegn forsætisráðherra undanfarna viku og þar hafa allar reglur um hlutlægni látið undan. Hér eru nokkur dæmi: Í Kastljósi lék lausum hala Jón Ólafsson, sem stjórnaði innra umbótastarfi Samfylkingarinnar eftir hrun og hefur verið óspar á neikvæðu lýsingarorðin um Sigmund Davíð síðan sá síðarnefndi tók af honum formennsku í siðanefnd […]
Egill Helgason hefur áhyggjur af stöðu ferðamála og spyr hvar margauglýst Stjórnstöð ferðamála sé. Mér skilst að hún hafi komið þrisvar saman til fundar. Sá síðasti var fyrir örfáum dögum. Á meðan stefnir í algjört öngþveiti á ferðamannastöðum Ástandið í fyrra verður eins og fallegur draumur miðað við það sem framundan er. Athafnaleysið í málaflokknum […]
Undirritaður hefur ákveðið að leggja fram allt að tíu mál í þingi á næstu mánuðum, sem öll tengjast baráttunni gegn kennitöluflakki. Um er að ræða lagafrumvörp og þingsályktunartillögur. Nokkrir þingmenn hafa bent á að kennitöluflakk verði ekki stöðvað með frumvarpinu sem lagt var fram í síðustu viku. Það er rétt, enda var það hugsað sem […]
Ríkisskattstjóri hefur áætlað að skattaundanskot, m.a. vegna kennitöluflakks, geti numið um 80 milljörðum króna á ári. Þetta er ámóta upphæð nemur kostnaði við byggingu nýs Landspítala – og það á hverju ári. Þingmenn og ráðherrar hafa haft stór orð um þá meinsemd sem kennitöluflakk er – það hefur þó verið minna um athafnir hjá þeim. […]
Bankar og önnur fjármálafyrirtæki rukka almenning um tugi milljarða í formi alls kyns þjónustugjalda, sem sífellt fara hækkandi. Það er ljóst að það þarf bæði frjótt ímyndunarafl og sterkan vilja til að finna upp öll þau gjöld sem fyrir hendi eru. Gjörið svo vel, hér er listi með um 30 aðferðum til að ná peningum […]
Á maður að trúa því að árið 2016 séu enn til stjórnmálamenn sem vilja ekki stokka upp íslenskt fjármálakerfi, þannig að hagsmunir almennings verði hafðir að leiðarljósi? Á maður að trúa því að enn séu til stjórnmálamenn sem eru tilbúnir til að láta almenning borga brúsann, fari svo að fjármálakerfið hrynji öðru sinni? Svo virðist […]
Kröfur eru innan Samfylkingar um að bregðast við fylgistapi með því að skipta um formann. Slíkt á þá væntanlega að hleypa krafti í flokksstarfið og auka fylgið. Maðurinn í brúnni er vissulega mikilvægur. Þegar knattspyruliðum gengur illa er þjálfarinn yfirleitt rekinn. Stundum virkar það – oft ekki. Það hefur ekki virkað hjá Bjartri framtíð. Fylgi […]
Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Fram til þessa hefur ríkt samstaða um það að stjórnmálasamtök stundi ekki pólitískan áróður gegn börnum í gegnum stofnanir ríkisins. Það er einfaldlega svo að börn hafa oft ekki þroska eða getu til þess að mynda sér sjálfstæðar skoðanir og enn síður til að meta það samhengi […]
Þingmenn Samfylkingar, Vinstri grænna og Pírata hafa síðustu daga kynnt sig sem sérstaka baráttumenn fyrir bættum kjörum aldraðra. Þessir flokkar fara með stjórn stærsta sveitarfélagsins, Reykjavíkur, og þar hafa verkin verið látin tala. Fyrir skömmu var skert heimaþjónusta til aldraðra í nokkrum hverfum borgarinnar. Heimaþjónustan snýst ekki bara um aðstoð heima við, heldur hefur félagsskapurinn […]
Þegar rætt er um kjör aldraðra og öryrkja mætti helst halda að það séu tóm illmenni á Alþingi. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar, og ítreka hana hér, að ég tel að lágmarksgreiðslur til aldraðra og öryrkja eigi að að ná 300 þúsund krónum á næstu þremur árum. Ég hefur oftar en einu sinni skýrt […]