Nú er Casey Kasem fallinn frá. Það var bandamönnum okkar og vinum í herstöðinni á Miðnesheiði að þakka að það var hægt að hlusta á topp 40 vinsældarlistaþátt hans í útvarpinu. Þátturinn var hugmynd Casey sjálfs og er mér ógleymanlegur. Casey hafði þýða og uppörvandi rödd og endaði þátt sinn á einkunnarorðunum: „Keep your feet on the ground and keep reaching for the stars“.
Vinsældarlistinn hóf göngu sína 1970 en 8 árum síðar bætti hann liðnum „Long distance dedication“ við. Hlustendur sendu honum bréf með kveðju til fjarlægra ástvina eða ættingja og ósk um lag. Það hljómar enn í huga mér Casey segja: „Debbie, here is your long distance dedication.“ Og svo kom lagið. Yndislegt.
Útvarpsþáttur Casey Kasem var það sem andstæðingar fjölmiðlareksturs varnarliðsins kölluðu „innrás í menningarhelgina“. Uss hvað þetta fólk var úti að aka. Jæja.
Blessuð sé minning Casey Kasem.
Hér má hlusta á AT40 með þessum einstaka útvarpsmanni.