Baráttan fyrir frelsi einstaklingsins til að bera ábyrgð á sjálfum sér hefur löngum verið á brattann á Íslandi. Ekki síst vegna þess að sumir Íslendingar hafa talið sér trú um að þeir viti best hvað öðrum fullorðnum einstaklingum er fyrir bestu (þótt þeir kunni vart sínum eigin fótum forráð). Þessi frétt í DV 30. janúar 1980 var lítill bautasteinn í baráttunni. […]
Maður sem býr í útlöndum heimsótti Ísland nýlega. Hann var staddur í boði í heimahúsi síðla kvölds þegar einn gestanna bjóst til brottfarar og símaði á leigubíl. „Ég ætla að panta leigubíl í Flyðrufold 70, takk,“ sagði gesturinn. Maðurinn veitti þessu athygli og fannst hann vera horfinn á vit fyrri tíðar. Ástæðan fyrir því að honum þótti þetta […]
Þegar rentukóngur hefur komið sér þægilega fyrir á markaði með vöruna sína tekur við lögmál sem kalla mætti Amish-áhrifin. Amish-áhrifin lýsa sér í því að vöruþróun hægir á sér eða stöðvar alveg, fjölbreytni minnkar, nýir aðilar geta ekki reynt fyrir sér, öldungaráð eða nefnd ákveður verð og ný lönd eru ekki numin. Það verður að taka skýrt fram […]
Einn helsti styrkur rentukóngsins er að hann kemur festu á hlutina. Innanlandsflugið fyrir 1952 er gott dæmi. Þar sem áður var opinn, ógnvænlegur, spennandi og krefjandi markaður var nú komin ein föst stærð með einum sællegum rentukóngi. Sama á við um mjólkurvörumarkaðinn. Þar er svo mikil festa á hlutunum að næstum hver einasta vara í mjólkurkælinum […]
Michael Lewis sem svo eftirminnilega var dreginn á asnaeyrunum í Íslandsheimsókn sinni skömmu eftir hrunið er hálfgerður seppi þeirra sem sáu þetta sama hrun fyrir. Svo mikill að hann skrifaði heila bók um þá, The Bigh Short. Efniviður bókarinnar var síðar notaður í samnefnda kvikmynd sem naut mikilla vinsælda. Ef Michael Lewis hefði verið sagt í heimsókn […]
Búvörusamningarnir sem undirritaðir voru í vetur sýna að vöxtur og viðgangur rentukóngsins er í góðu meðallagi á Íslandi. Það er einkar ánægjulegt vegna þess að rentukóngurinn er eins og lúpínan og framræsluskurðirnir, ómissandi hluti af landslaginu. Rentukóngurinn á það sameiginlegt með beitukónginum að beygjast eins. Að öðru leyti eru þeir býsna ólíkir. En þótt rentukónginn sé […]
Andstæðingar Davíðs Oddssonar mega eiga það að þeir komu einni ranghugmynd á legg sem reynst hefur langlíf. Hún er sú að hann hafi nánast verið einræðisherra á Íslandi. Af því draga margir þá ályktun að fyrst hann var svona voldugur þá hljóti a) bankahrunið á Íslandi að vera honum að kenna og b) hinum vestræna heimi líka. […]
Eins og öllum ætti að vera orðið ljóst studdi Guðni Th. Jóhannesson forsetaframbjóðandi fyrsta Icesave-samninginn sem hinn alóreyndi samningamaður Svavar Gestsson gerði sumarið 2009, en hann var langversti samningurinn af þeim sem gerðir voru. Með honum hefðu níðþungar byrðar verið lagðar á Íslendinga, ekki síst vegna vondra vaxtakjara á „láni“ sem Bretar og Hollendingar tóku upp […]
Hver kannast ekki við að hafa verið í þeim sporum að hafa varað sterklega við einhverju en enginn hlustað? Þú ert ekki einn. Þú ert í góðum félagsskap Kassöndru hinnar grísku sem sá framtíðina fyrir en enginn lagði trúnað á forspár hennar eða viðvaranir. Og þú ert í góðum félagsskap Davíðs Oddssonar sem varaði margoft við útþenslu […]
Ég get tæplega kosið Guðna Th Jóhannesson, þótt hann sé eflaust hinn mætasti maður, því hann stóð ekki með Íslandi Icesave-deilunni. Ummæli hans í myndbandinu eru af sömu rót runnin, hann lítur að því er virðist niður á sína eigin þjóð. Er ekki nauðsynlegt að forsetinn haldi með Íslandi?