Föstudagur 16.08.2013 - 17:00 - FB ummæli ()

26. Feministar rangtúlka listaverk í áróðursskyni

Femínísk túlkun á listum gengur ýmist út á það að breiða út lygar um kvenhatur og kvennakúgun eða finna feminiskan boðskap sem alls ekki er til staðar.

Feministar taka sakleysilegustu verk eins og t.d. barnaleikrit Thorbjorns Egner og vinsæla jólasöngva og leita sérstaklega að kvenhatri. Með hugmyndafræði að vopni er auðvitað hægt að finna hvaða rugl sem er í hverju sem er. Markmiðið er að sýna fram á að menningin sé gegnsýrð af kvenhatri og til að renna stoðum undir þá klikkuðu skoðun er allt er lagt út á versta hugsanlega máta.  Ballaða Billy Joel „Always a Woman“ sem lýsir því sem karl sættir sig við í fari konu þótt það særi hann, er  kvenhatur.  Texti sem Tammy Wynette gerði frægan, „Stand by Your Man“ og lýsir því sem kona sættir sig við í fari tillitslauss karls, er ekki dæmi um karlhatur heldur afhjúpun kvennakúgunar. (Nánar hér.)

Annað undarlegt afbrigði af feminsikri listtúlkun er það að sjá feminiskar hugmyndir þar sem þær eru alls ekki til staðar. Dæmi um það er þessi túlkun á Lolitu eftir Nabokov. Greinin er afskaplega vel skrifuð og sannfærandi fyrir þá sem ekkert hafa velt verkinu fyrir sér. Sú hugmynd að Nabokov sé með verkinu að svipta hulunni af ógeðslegu eðli barnanauðgara er þó gjörsamlega út í hött. Nabovkov gekk það fyrst og fremst til að draga upp mannlega mynd af karli sem verður ástfanginn af unglingi og skyggnast inn í hugarheim hans, án þess að réttlæta gjörðir hans og án þess að dæma hann. Í meðförum feminista verður sagan ýmist hluti af nauðgunarmenningunni eða feminískt verk. Annað dæmi benti sagnfræðingurinn Lára Magnúsardóttir mér á. Það er sagan „The Scarlet Letter“ eftir Nathaniel Hawthorne. Hún segir frá konu sem er útskúfað úr samfélagi sínu vegna saurlífisbrota. Í meðförum femnista verður hún að fórnarlambi kynferðislegar misnotkunar af hálfu prestsins enda þótt augljósa túlkunin og sú sem var viðurkennd í 150 ár, sé ádeila á trúarstefnur og menningu sem gerir ást og kynlíf að glæp.

femugla26

33 ástæður til að uppræta feminisma
1. Við þurfum ekki feminisma til að tryggja jafnrétti
2. Grundvöllur feminismans er lygi
3. Feminismi notar lygar í áróðursskyni
4. Feminisminn lítur á karlmenn sem illmenni
5. Feminisminn lítur á konur sem fórnarlömb
6.  Feminismi firrir konur ábyrgð
7.  Feminisminn er í stöðugri mótsögn við sjálfan sig
8. Feminismi skaðar konur í kynlífsiðnaði
9.  Feministar takmarka sjálfsákvörðunarrétt kvenna
10.  Feminisk áhrif veikja réttaröryggi sakborninga
11. Feministar nota háskóla til að breiða út gervivísindi
12. Feminismi er ríkisstyrkt valdanet
13.  Feministar vilja fá að stunda trúboð í skólum
14.  Feminismi leggur kynhlutverk að jöfnu við kvennakúgun
15. Feminismi er kvennamenningu fjandsamlegur
16. Feminismi er nýhreintrúarstefna
17. Feministar vilja ákveða normin í kynferðismálum
18. Feminismi er að festa sig í sessi sem kennivald
19. Feminismi vinnur gegn kvenréttindum
20. Feminismi er dólgapólitík
21. Feminismi er hugsjónastríð
22. Feministar sinna þjónustu sem ætti að vera í höndum fagfólks
23. Feminismi er fasísk hugmyndafræði
24. Feministar hafa ranghugmyndir um norm samfélagsins
25. Feminismi einkennist af pólitískum rétttrúnaði
26. Feministar rangtúlka listaverk í áróðursskyni
27. Feministar eru með klám á heilanum
28. Feministar vilja ráða því hvað skuli teljast valdeflandi
29. Feministar ýkja tölur um kynbundinn launamun
30 Feministar styðja kynbundna mismunun
31 Feminismi vinnur gegn lýðheilsumarkmiðum
32 Feminismi nærir sorpblaðamennsku
33 Feministar hafa eyðilagt hugtakið feminismi

Flokkar: Allt efni · Kynjapólitík
Efnisorð: , ,

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics