Mánudagur 31.03.2014 - 10:30 - FB ummæli ()

30. Feministar styðja kynbundna mismunun

Kynjakvótar eru ekki aðeins til þess fallnir að gera lítið úr konum heldur eru þeir beinlínis dæmi um mismunun á grundvelli kynferðis.

En feminísk kynjamismunun birtist ekki aðeins í kynjakvótum. Hún birtist einnig í kröfu um kynbundnar kröfur. Nú orðið þurfa konur oft að uppfylla önnur skilyrði en karlar til þess að eiga möguleika á sömu störfum. En hvað er það annað en mismunun á grundvelli kynferðis ef smávaxinn karlmaður á ekki sama möguleika á starfi og kona sem er honum jöfn, og í sumum tilvikum minni að líkamsburðum?

Kynjamismunun birtist einnig í sérstökum styrkjum og annarri fyrirgreiðslu til kvenna í námi og atvinnulífi.

Slíkir styrkir eru ekki veittir á þeirri forsendu að þær konur sem þá þiggja þurfi meira á stuðningi að halda en karlar, enda ekkert sem styður þá hugmynd að konur eigi neitt erfiðara en karlar með að komast í nám eða stofna fyrirtæki. Kynbundnir styrkir eru veittir á þeirri forsendu að fjölga þurfi konum í tilteknum greinum. Fyrir því eru engin rök önnur en þau að jöfn kynjahlutföll séu æskileg í sjálfu sér, sem er auðvitað ekkert annað en pólitísk skoðun.  Þetta merkir að vegna einhverra ímyndaðra heildarhagsmuna, og vegna þeirrar fölsku hugmyndar að karlar séu fæddir til forréttinda, á einstaklingurinn Jón, minni möguleika á fyrirgreiðslu en einstaklingurinn Gunna.

Og það, börnin mín góð, er kynbundin mismunun.

femugla30

33 ástæður til að uppræta feminisma
1. Við þurfum ekki feminisma til að tryggja jafnrétti
2. Grundvöllur feminismans er lygi
3. Feminismi notar lygar í áróðursskyni
4. Feminisminn lítur á karlmenn sem illmenni
5. Feminisminn lítur á konur sem fórnarlömb
6.  Feminismi firrir konur ábyrgð
7.  Feminisminn er í stöðugri mótsögn við sjálfan sig
8. Feminismi skaðar konur í kynlífsiðnaði
9.  Feministar takmarka sjálfsákvörðunarrétt kvenna
10.  Feminisk áhrif veikja réttaröryggi sakborninga
11. Feministar nota háskóla til að breiða út gervivísindi
12. Feminismi er ríkisstyrkt valdanet
13.  Feministar vilja fá að stunda trúboð í skólum
14.  Feminismi leggur kynhlutverk að jöfnu við kvennakúgun
15. Feminismi er kvennamenningu fjandsamlegur
16. Feminismi er nýhreintrúarstefna
17. Feministar vilja ákveða normin í kynferðismálum
18. Feminismi er að festa sig í sessi sem kennivald
19. Feminismi vinnur gegn kvenréttindum
20. Feminismi er dólgapólitík
21. Feminismi er hugsjónastríð
22. Feministar sinna þjónustu sem ætti að vera í höndum fagfólks
23. Feminismi er fasísk hugmyndafræði
24. Feministar hafa ranghugmyndir um norm samfélagsins
25. Feminismi einkennist af pólitískum rétttrúnaði
26. Feministar rangtúlka listaverk í áróðursskyni
27. Feministar eru með klám á heilanum
28. Feministar vilja ráða því hvað skuli teljast valdeflandi
29. Feministar ýkja tölur um kynbundinn launamun
30 Feministar styðja kynbundna mismunun
31 Feminismi vinnur gegn lýðheilsumarkmiðum
32 Feminismi nærir sorpblaðamennsku
33 Feministar hafa eyðilagt hugtakið feminismi

Flokkar: Allt efni · Kynjapólitík
Efnisorð: , ,

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics