Laugardagur 10.08.2013 - 11:00 - FB ummæli ()

22. Feministar sinna þjónustu sem ætti að vera í höndum fagfólks

Þennan átti ég eftir að birta.

Stór hluti af þjónustu við konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi og þurfa á sálfræðiþjónustu að halda er í höndum feminsta en ekki fagfólks. Fólk er ráðið í slík störf á pólitískum forsendum fremur en faglegum.

Erlendis eru dæmi um kvennaathvörf séu nokkurskonar heilaþvottarstöðvar. Þetta má t.d. sjá í hinni ágætu heimildamynd Könskriget sem sjá má með íslenskum texta hér. Í umfjöllun fjölmiðla um kvennaathvörf afhjúpast einnig sú hugmynd að þær konur sem þar dvelja séu einhverskonar fangar. Þannig er t.d. talað um að konur sem afþakka afmellunarmeðferð Kristínarhúss og fara sína leið hafi „strokið“.  Stundum eru konur sem enn eru í sárum svo dregnar í fjölmiðla og notaðar til að auglýsa starfssemi feministasamtaka. Reyndar ganga fjölmiðlar erinda kvennaathvarfa algerlega gagnrýnislaust og taka þannig þátt í lyginni.

Á Íslandi eru nokkur hræðileg dæmi um að fúskarar hafi tekið að sér þjónustu sem á að vera í höndum fagfólks. Þetta á alls ekkert bara við um feministasamtök. Trúarhópar hafa t.d. tekið að sér áfengismeðferð og ég reikna t.d. með að flestir muni eftir Byrgismálinu. Við skulum vera meðvituð um að Stígamót og Kristínarhús byggja sömuleiðis á mjög svo vafasamri hugmyndafræði og meðferðin er í höndum kynjafræðinga en ekki fagfólks.

Það er óþolandi að ríki og sveitarfélög skuli láta fúskara um þjónustu við fólk sem hefur beðið skipbrot, hvort sem um er að ræða vímuefnavanda, ofbeldi eða eitthvað annað. Hið opinbera ætti að bjóða upp á faglega þjónustu við fólk sem þarf á meðferð lækna og sálfræðinga að halda og ekki styðja á nokkrun hátt við starfsemi feminista og annarra fúskara.

femugla22

33 ástæður til að uppræta feminisma
1. Við þurfum ekki feminisma til að tryggja jafnrétti
2. Grundvöllur feminismans er lygi
3. Feminismi notar lygar í áróðursskyni
4. Feminisminn lítur á karlmenn sem illmenni
5. Feminisminn lítur á konur sem fórnarlömb
6.  Feminismi firrir konur ábyrgð
7.  Feminisminn er í stöðugri mótsögn við sjálfan sig
8. Feminismi skaðar konur í kynlífsiðnaði
9.  Feministar takmarka sjálfsákvörðunarrétt kvenna
10.  Feminisk áhrif veikja réttaröryggi sakborninga
11. Feministar nota háskóla til að breiða út gervivísindi
12. Feminismi er ríkisstyrkt valdanet
13.  Feministar vilja fá að stunda trúboð í skólum
14.  Feminismi leggur kynhlutverk að jöfnu við kvennakúgun
15. Feminismi er kvennamenningu fjandsamlegur
16. Feminismi er nýhreintrúarstefna
17. Feministar vilja ákveða normin í kynferðismálum
18. Feminismi er að festa sig í sessi sem kennivald
19. Feminismi vinnur gegn kvenréttindum
20. Feminismi er dólgapólitík
21. Feminismi er hugsjónastríð
22. Feministar sinna þjónustu sem ætti að vera í höndum fagfólks
23. Feminismi er fasísk hugmyndafræði
24. Feministar hafa ranghugmyndir um norm samfélagsins
25. Feminismi einkennist af pólitískum rétttrúnaði
26. Feministar rangtúlka listaverk í áróðursskyni
27. Feministar eru með klám á heilanum
28. Feministar vilja ráða því hvað skuli teljast valdeflandi
29. Feministar ýkja tölur um kynbundinn launamun
30 Feministar styðja kynbundna mismunun
31 Feminismi vinnur gegn lýðheilsumarkmiðum
32 Feminismi nærir sorpblaðamennsku
33 Feministar hafa eyðilagt hugtakið feminismi

Flokkar: Allt efni · Kynjapólitík
Efnisorð: , , ,

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics