Áður birt í Kvennablaðinu Flestir foreldrar halda alls konar hræðsluáróðri að börnum sínum og það á ekkert bara við um forvarnir gegn dópi. Oftast er bullinu ætlað að vernda börnin en stundum þjónar það þeim tilgangi að fá börn til að tileinka sér kurteisisvenjur og hreinlæti. Oft er heldur ekki um vísvitandi ósannindi að ræða […]
Á hverjum einasta degi flytja íslenskir fjölmiðar feministafréttir sem eiga mismikið erindi við almenning. Enda þótt kynferðisglæpum fækki er ekkert lát á umfjöllun um kynferðisofbeldi. Áratugagamlar nauðgunarsögur eru rifjaðar upp. Fréttir af kynferðisglæpum í fjarlægum heimshlutum enda þótt engar aðrar fréttir séu sagðar frá sömu slóðum. Og ef engin nauðgunarfrétt er í boði bjóða fjölmiðlar […]
Áður birt í Kvennablaðinu Ég var 13 ára og stóð nakin í sturtuklefa þegar bekkjarsystir mín taldi viðeigandi að vekja athygli hinna stelpnanna á útliti kynfæra minna. Ekki svo að skilja að það kæmi mér á óvart. Ég hafði lengi haft af því töluverðar áhyggjur að dýrðin á mér væri að taka á sig mynd einhvers […]
Feminsmi boðar þá hættulegu hugmynd að offita sé ekkert vandamál og jafnvel eitthvað fínt. Það er í sjálfu sér gott mál að vinna gegn fordómum og benda á að feitt fólk verður fyrir mismunun og vondri framkomu og það er rétt hjá feministum að megrunarbransinn hefur gert allt of mikið úr sambandi líkamsþyngdar og heilsubrests. En hér sem annarsstaðar […]
Ég er á ferðalagi með stopulan aðgang að lélegri nettengingu og sá ekki fyrstu útgáfuna af þessari frétt. Sá fréttina reyndar ekkert fyrr en í dag en svo virðist sem pistill minn um ritskoðunarkröfur hafi valdið misskilningi. Það þykir mér leitt og ég vildi að ég hefði vandað mig betur. Ritstjórn Kvennablaðsins hefur ekki á […]
Internetið hefur þann kost að allir geta tjáð sig. En því fylgir sá ókostur að asnar eiga auðvelt með að halda uppi vondri umræðu og eyðileggja góða umræðu. Ef þú ert asni og vilt líta vel út á netinu í augum annarra asna, þá skaltu nota eftirfarandi trix. Beittu ritskoðun. Ekki með því að sía […]
Kynjakvótar eru ekki aðeins til þess fallnir að gera lítið úr konum heldur eru þeir beinlínis dæmi um mismunun á grundvelli kynferðis. En feminísk kynjamismunun birtist ekki aðeins í kynjakvótum. Hún birtist einnig í kröfu um kynbundnar kröfur. Nú orðið þurfa konur oft að uppfylla önnur skilyrði en karlar til þess að eiga möguleika á […]
Síðasta vor var ég svo lánsöm að fá tækifæri til þess að ferðast til Úganda. Einn af mörgum eftirminnilegum atburðum var heimsókn í barnaskóla í Masindi, sem er 45.000 manna bær í nágrenni Kampala. Í Úganda er börnum á aldrinum 7-14 ára boðið upp á skólagöngu, foreldrum að kostnaðarlausu, en foreldrum er ekki skylt að […]
„Konur þéna 75 kr á móti hverjum 100 kr sem karlar þéna.“ Þetta er ein af möntrum feminismans. Sannleikurinn er sá að launamunur kynjanna á sér að mestu leyti eðlilegar skýringar. Aðeins 6-10% launamunur hefur ekki verið skýrður. Femninstar hafa auðvitað fína skýringu á þessum óútskýrða launamuni; það er auðvitað einlægur vilji karlveldisins til þess […]
Af og til verð ég alveg ofboðslega leið á feminisma. Svo gerist eitthvað sem verður til þess að ég finn mig knúna til að leggja orð í belg. Um þetta leyti í fyrra sauð upp úr hjá mér þegar einhver taldi mig á að líta á óvenju vonda umfjöllun á Knúzinu. Ég byrjaði þá á […]