Föstudagur 04.04.2014 - 10:30 - FB ummæli ()

32. Feminismi nærir sorpblaðamennsku

Á hverjum einasta degi flytja íslenskir fjölmiðar feministafréttir sem eiga mismikið erindi við almenning.

Enda þótt kynferðisglæpum fækki er ekkert lát á umfjöllun um kynferðisofbeldi. Áratugagamlar nauðgunarsögur eru rifjaðar upp. Fréttir af kynferðisglæpum í fjarlægum heimshlutum enda þótt engar aðrar fréttir séu sagðar frá sömu slóðum. Og ef engin nauðgunarfrétt er í boði bjóða fjölmiðlar í staðinn upp á umfjöllun um kvenhatur sem verið sé að smygla inn á okkur í formi auglýsinga, barnaleikfanga, tísku… allra hugsanlega fyrirbæra undir sólinni. Miðað við magn frétta af þessu tagi væri raunhæft bæði fyrir DV og Vísi að stofna sérstakar klámfréttadeildir. Reyndar væri það vel til fundið því ef femninstarunkið væri sérmerkt eins og lífsstílssíðurnar og slúðursíðurnar, væri auðveldara að sniðganga það.

Auðvitað er ofbeldi gegn konum alvarlegt mál sem þarf að ræða en þindarlaus skrif um klámvæðingu og kynbundið ofbeldi ber oft meiri keim af lágkúrulegri slúðurblaðamennsku en vandaðri umfjöllun. Lágkúran selst vel. Fjölmiðlar klæmast á hverju einasta hneyksli, blóðmjólka það. Auglýsendur draga upp veskið og smelludólgarnir brosa hringinn. Og gvöð hjálpi þeim sem bendir á þessa lágkúru. Sá hinn sami er ekki að afhjúpa goðsögnina um þöggun, heldur að hæðast að þolendum og/eða beita þöggun. „Þöggun“ er eitt hljómfegursta orð sem feministar kunna. Það má nota sem svar við allri gagnrýni á klikkaðar hugmyndir þeirra og viðbjóðslegar áróðursaðferðir.

Ótrúleg eftirspurn eftir slíkum fréttum tekur athygli bæði fréttamanna og lesenda frá öðrum hlutum sem við þurfum líka að vera meðvituð um. Og á endanum snýst öll þessi umfjöllun gegn upphaflega markmiðinu. Boðskapur feminista er orðinn síbylja og það skapar hættu á því að vönduð umfjöllun um mál sem snerta kynjapólitík fari fyrir ofan garð og neðan.

 

femugla32

 

33 ástæður til að uppræta feminisma
1. Við þurfum ekki feminisma til að tryggja jafnrétti
2. Grundvöllur feminismans er lygi
3. Feminismi notar lygar í áróðursskyni
4. Feminisminn lítur á karlmenn sem illmenni
5. Feminisminn lítur á konur sem fórnarlömb
6.  Feminismi firrir konur ábyrgð
7.  Feminisminn er í stöðugri mótsögn við sjálfan sig
8. Feminismi skaðar konur í kynlífsiðnaði
9.  Feministar takmarka sjálfsákvörðunarrétt kvenna
10.  Feminisk áhrif veikja réttaröryggi sakborninga
11. Feministar nota háskóla til að breiða út gervivísindi
12. Feminismi er ríkisstyrkt valdanet
13.  Feministar vilja fá að stunda trúboð í skólum
14.  Feminismi leggur kynhlutverk að jöfnu við kvennakúgun
15. Feminismi er kvennamenningu fjandsamlegur
16. Feminismi er nýhreintrúarstefna
17. Feministar vilja ákveða normin í kynferðismálum
18. Feminismi er að festa sig í sessi sem kennivald
19. Feminismi vinnur gegn kvenréttindum
20. Feminismi er dólgapólitík
21. Feminismi er hugsjónastríð
22. Feministar sinna þjónustu sem ætti að vera í höndum fagfólks
23. Feminismi er fasísk hugmyndafræði
24. Feministar hafa ranghugmyndir um norm samfélagsins
25. Feminismi einkennist af pólitískum rétttrúnaði
26. Feministar rangtúlka listaverk í áróðursskyni
27. Feministar eru með klám á heilanum
28. Feministar vilja ráða því hvað skuli teljast valdeflandi
29. Feministar ýkja tölur um kynbundinn launamun
30 Feministar styðja kynbundna mismunun
31 Feminismi vinnur gegn lýðheilsumarkmiðum
32 Feminismi nærir sorpblaðamennsku
33 Feministar hafa eyðilagt hugtakið feminismi

 

 

Flokkar: Allt efni · Fjölmiðlar · Kynjapólitík
Efnisorð: , ,

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics