Í 89. gr. stjórnarskrárfrumvarps stjórnlagaráðs segir: Ráðherrar mæla fyrir frumvörpum og tillögum frá ríkisstjórn, svara fyrirspurnum og taka þátt í umræðum á Alþingi eftir því sem þeir eru til kvaddir, en gæta verða þeir þingskapa. Ráðherrar hafa ekki atkvæðisrétt á Alþingi. Sé alþingismaður skipaður ráðherra víkur hann úr þingsæti á meðan hann gegnir embættinu og tekur […]
Öfugt við ríkisstjórn – sem stjórnarskráin nefnir hvergi því nafni, eins og áður er vikið að – er víða í stjórnarskránni vikið að störfum, réttarstöðu og hlutverki ráðherra; 18 sinnum raunar. Í 88. gr. stjórnarskrárfrumvarps stjórnlagaráðs er hins vegar nýmæli um skilyrði þess að þeir teljist hæfir ráðherrar – en þar segir: Ráðherra er óheimilt að […]
Í 87. gr. stjórnarskrárfrumvarps stjórnlagaráðs er fjallað um ríkisstjórn – sem er eiginlega nýmæli í stjórnarskrá! Þar segir: Ráðherrar sitja í ríkisstjórn. Forsætisráðherra boðar til ríkisstjórnarfunda, stýrir þeim og hefur yfirumsjón með störfum ráðherra. Ríkisstjórnarfundi skal halda um frumvörp og tillögur til Alþingis, önnur mikilvæg stjórnarmálefni og til samráðs um störf og stefnumál ríkisstjórnarinnar. Þá skal […]
Í 86. gr. stjórnarskrárfrumvarps stjórnlagaráðs segir: Ráðherrar eru æðstu handhafar framkvæmdarvalds hver á sínu sviði. Þeir bera hver fyrir sig ábyrgð á málefnum ráðuneyta og stjórnsýslu sem undir þá heyrir. Geti ráðherra ekki fjallað um mál vegna vanhæfis, fjarveru eða annarra ástæðna felur forsætisráðherra það öðrum ráðherra. Enginn getur gegnt sama ráðherraembætti lengur en átta ár. […]
Í 85. gr. stjórnarskrárfrumvarps stjórnlagaráðs segir: Forseti Íslands getur náðað menn og veitt almenna uppgjöf saka að tillögu ráðherra. Ráðherra getur hann þó ekki leyst undan refsingu, sem dómstólar hafa dæmt vegna ráðherraábyrgðar, nema með samþykki Alþingis. Niðurfelling saksóknar afnumin sem forsetavald Í gildandi stjórnarskrá segir um þetta að forsetinn geti ákveðið að saksókn fyrir afbrot skuli […]
Í 84. gr. stjórnarskrárfrumvarps stjórnlagaráðs er fjallað um ábyrgð forseta Íslands – en algengur misskilningur er að forseti beri enga ábyrgð á embættisgjörðum sínum en þá ætti fyrirsögn greinarinnar jú að vera Ábyrgðarleysi – en ákvæðið hljóðar svo: Forseti verður ekki sóttur til refsingar nema með samþykki Alþingis. Forseta má leysa frá embætti áður en kjörtímabili […]
Í 83. gr. stjórnarskrárfrumvarps stjórnlagaráðs segir: Falli forseti frá eða láti af störfum áður en kjörtímabili er lokið skal kjósa nýjan forseta til 31. júlí á fjórða ári frá kosningu hans. Í gildandi stjórnarskrá segir um þetta efnislega hið sama. Um það er því lítið annað að segja en segir í einni stystu skýringu með ákvæðum frumvarpsins: […]
Í 82. gr. stjórnarskrárfrumvarps stjórnlagaráðs segir: Geti forseti Íslands ekki gegnt störfum um sinn vegna heilsufars eða af öðrum ástæðum fer forseti Alþingis með forsetavald á meðan. Einföldun… Í gildandi stjórnarskrá segir um þetta að ef sæti forseta lýðveldisins verði laust eða ef hann geti ekki gegnt störfum sínum vegna dvalar erlendis, sjúkleika eða af öðrum ástæðum […]
Í 81. gr. stjórnarskrárfrumvarps stjórnlagaráðs segir: Forseta Íslands er óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf á meðan hann gegnir embætti. Sama gildir um störf í þágu einkafyrirtækja og opinberra stofnana þótt ólaunuð séu. Ákveða skal með lögum greiðslur af ríkisfé til forseta. Óheimilt er að lækka greiðslur þessar til forseta á meðan kjörtímabil hans […]
Í 80. gr. stjórnarskrárfrumvarps stjórnlagaráðs segir: Forseti Íslands undirritar eiðstaf að stjórnarskránni þegar hann tekur við störfum. Eiðstafur í stað eiðs eða drengskaparheits Í gildandi stjórnarskrá segir um þetta að forsetinn vinni „eið eða drengskaparheit“ að stjórnarskránni, er hann tekur við störfum. Helst er um þetta ákvæði að segja að umræður sköpuðust um hvort eiður vísaði til […]