Gamalt máltæki kveður á um að byrgja skuli brunninn áður en barnið er dottið ofan í. Síðdegis í dag birtist frétt um að Dönum þætti ekki fært út frá sinni stjórnskipan að banna starfsemi félagasamtakanna Hells Angels. Ég óttast að lögfræðingar hérlendis dragi sömu ályktun um íslensk lög og aðstæður að því er varðar íslenskt samfélag; ég er m.ö.o. hræddur um […]
Á þessum viðurkennda alþjóðabaráttudegi fyrir réttindum kvenna er umfjöllunarefni þessarar greinar í The Economist áhyggjuefni – jafnt fyrir konur og aðra sem bera hag þeirra fyrir brjósti. Yfir 20% fleiri drengir en stúlkur Eigum við aðeins að huga að þeim konum sem lifa – eða einnig að hugsa um ófædd stúlkubörn og samfélagið allt? […]
Finnst þér allt í lagi hvernig íslenskt samfélag er og hefur verið – eða vilt þú breyta einhverju? Eftir hálfan annan sólahring göngum við, íslenska þjóðin, til atkvæðagreiðslu – fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslunnar í fullvalda og sjálfstæðu ríki, í heilan mannsaldur. Um leið og ég hvet alla atkvæðisbæra borgara til þess að mæta og greiða atkvæði – með, á […]
Fullveldi er stjórnskipulegt, lögfræðilegt hugtak. Sjálfstæði er pólitískt fyrirbæri. Ég veit að þetta er ekki vinsæl skoðun nú þegar Icesave-deilan stendur enn yfir – en ég hef lengi haft þessa skoðun: Afsölum okkur aðeins meira fullveldi – í því skyni að fá mun meira sjálfstæði. Við höfum verið auka-aðilar að Evrópusambandinu (ESB) í 15 ár; […]
Ég geng ósár frá leik. Eftir innanflokksprófkjör Framsóknarflokksins hér í Kópavogi um helgina á ég fleiri vini og samherja en áður – og enga óvini svo ég viti. Auk þess er ég reynslunni ríkari. Ég þakka ykkur kærlega fyrir mig – bæði vinum, frábæru stuðningsfólki, góðum ráðgjöfum, fjölmörgum kjósendum og ýmsum öðrum. Drengileg barátta Ég vona […]
Í morgun hitti ég óflokksbundinn Kópavogsbúa í hverfisbakaríinu. Kom hann að máli við mig og sagði að ekkert væri talað um aðalmálið – fjármálin; allir væru að tala um gæluverkefni sem þeir hefðu áhuga á eða teldu að myndu höfða til kjósenda. Enginn hefði áhuga á að setja fjárhagsstöðu bæjarins á oddinn – eins og þyrfti. […]
Í nýlegum pistli gagnrýndi ég hagsmunaárekstra í Kópavogi – en benti á lausnir – og nefndi sem dæmi að háttsettir stjórnendur hjá bænum sætu í bæjarstjórn og væru þannig í vinnu hjá sjálfum sér. Í gær lagði ég svo til hámark á setu í bæjarstjórn – annað hvort með lögum eða sjálfskipað. En ef sumir eiga […]
Í sinni frægustu af mörgum frábærum ræðum, Gettysburg-ávarpinu þegar borgarastyrjöldin bandaríska stóð sem hæst 1863, mælti Abraham Lincoln forseti þau fleygu orð að stjórnvöld ættu að vera of the people, by the people, for the people Það þýðir væntanlega í stuttu og einfölduðu máli að handhafar opinbers valds séu úr hópi borgaranna en ekki úr sérstökum stéttum (fulltrúalýðræði), að fulltrúar […]
Eftir ræðu mína á frambjóðendafundi Framsóknarfélaganna í Kópavogi sl. fimmtudag komu nokkrar spurningar til okkar. Ein þeirra varð mér tilefni til þess að minna á aðstöðumun ríkis og sveitarfélaga þegar kemur að því að flytja verkefni til sveitarfélaga og ákveða tekjustofna til þess að sinna þeim. Um leið benti ég á að ég hefði um […]
Við Kópavogsbúar kunnum víst að kjósa; við höfum aðeins gleymt bestu leiðinni við að velja á lista – sem þó gafst vel fyrir margt löngu. Ég ætla að minna á hana – til samanburðar við hinar þrjár helstu sem reyndar hafa verið eða kynntar. Prófkjörsleiðin Sumir benda á að ofsmölun, misnotkun félagalista og margskráning í fleiri […]