Nýafstaðinn þjóðfundur 2010 um stjórnarskrá virðist hafa tekist afar vel – og skilað jákvæðri niðurstöðu, öfugt við ótímabær fundarslit á Þjóðfundinum 1851. Stjórnlagaþing og allt starfsfólk og sjálboðaliðar hafa greinilega undirbúið þjóðfund um stjórnarskrá mjög vel – og unnið hratt og gegnsætt úr fyrstu niðurstöðum. Því getur þjóðin (við frambjóðendur til stjórnlagaþings þar með talin) strax […]
Á morgun er í fyrsta skipti í tæp 160 ár haldinn þjóðfundur; þeim síðasta var slitið af fulltrúa stjórnvalda áður en ætlunarverki fulltrúa þjóðarinnar var lokið en þessi er upptaktur að fyrsta stjórnlagaþinginu okkar – sem vonandi hlýtur ekki sambærileg örlög. Athyglisvert er að eina málið sem Þjóðfundurinn 1851 lauk áður en honum var slitið […]
Fyrirsögnin er auðvitað grín; stjórnarskrá virðist mér í fljótu bragði ekkert hafa með snjó að gera. Stjórnarskráin er hins vegar ekkert grín – og leysir ekki hvers manns vanda. Stjórnarskrá fjallar fyrst og fremst um tvennt eins og ég hef áður bent á: Skipan og völd æðstu handhafa ríkisvalds (löggjafarvalds, dómsvalds og framkvæmdarvalds), val á […]
Í gær voru kosningar til fulltrúadeildar þings Bandaríkja Norður-Ameríku (BNA) og þriðjungs öldungadeildar auk fylkisstjóra. Er því ekki úr vegi að minna á helstu kosti stjórnskipulags BNA – enda þótt ýmsir gallar séu vitaskuld þar á stjórnmálum og stjórnarfyrirkomulagi eins og víðar (en þeir eru ekki endilega stjórnskipulegir að mínu mati). „Checks and balances“ Einn […]
Ég býð mig vitaskuld ekki bara fram til stjórnlagaþings þar eð ég hef fjallað um gildandi stjórnarskrá í 20 ár eða af því að ég tel þann vettvang, sem ég lagði til strax eftir hrun, henta vel til stjórnlagaumbóta. Ástæðan er sú að ég tel að ýmsu megi – og þurfi jafnvel að – breyta í […]
Í þessum mánuði eru liðin 2 ár frá því að ég nefndi fyrst á fundi hugmynd um stjórnlagaþing – og reifaði hana svo fyrst á opnum fundi um miðjan desember 2009. Hér má lesa um mína upphaflegu uppskrift. Í lok þessa mánaðar verður kjörið til stjórnlagaþings – og ég hef boðið mig fram; lesa má […]
Hún er frumleg – og, að ég held, vel meint – tillaga Hreyfingarinnar, um „neyðarstjórn“ eða þingkosningar – en gengur hún upp? Ég vil ekki gera lítið úr tilefninu eða góðum hug þingmannanna – og sat raunar um kvöldið áhugaverðan opinn fund um tillöguna. Hér vil ég hins vegar skýra nokkrar reglur sem þessu tengjast og […]
Í tilefni af heimsókn í Friðarhús í gærkvöldi, þar sem mánaðarlega er haldinn fjáröflunarkvöldverður í þágu starfsemi Samtaka hernaðarandstæðinga, datt mér í hug að fjalla hér um hvað er – og hvað ekki – að finna í stjórnarskrá um stríð og frið – eða öllu heldur utanríkismál. Síðan ætla ég að vanda að leggja til […]
Hef fengið þetta auðkenni: 3249. Sjá hér (og víðar): http://is.wikipedia.org/wiki/Frambjóðendur_til_stjórnlagaþings_á_Íslandi_2010
Í tilefni af því að ég gef kost á mér til stjórnlagaþings – í ykkar umboði – vil ég minna á afstöðu Sókratesar, sem sagði: Ég veit aðeins það, að ég veit ekkert. Það hefur líklega mótað mig töluvert að hafa lært í menntaskóla að Sókrates taldi atgervi, gáfur, hæfileika og þekkingu ekki ráða úrslitum […]