Færslur fyrir flokkinn ‘Óflokkað’

Fimmtudagur 27.05 2010 - 07:00

Lögmál eða landslög?

Bresk lagahefð er mörgum fyrirmynd – að mínu mati með nokkrum rétti; þar er rætt um Rule of law. Í slíkri stjórnskipan er málum skipað með lögum – en hvorki með tilskipunum forseta (eins og t.d. í Rússlandi lengi vel), geðþótta stjórnmálaforingja (svo sem í ónefndum einræðisríkjum nær og fjær, fyrr og síðar) eða trúarsetningum æðstupresta […]

Sunnudagur 23.05 2010 - 20:55

Sammála Birnu bankastjóra – eða þannig

Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt – eins og að vera sammála bankastjóra. Í fréttum hljóðvarps RÚV í dag var birt viðtal við einn slíkan og samkvæmt fréttavef RÚV var þetta megininntakið: Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir að verði niðurstaða hæstaréttar [sic!] um lögmæti myntkörfulána ólík eftir því hvaða eignaleigufyrirtæki eigi í hlut, […]

Sunnudagur 16.05 2010 - 07:00

Óþarfa farsi um skiptingu Stjórnarráðs

Margir hafa orðið til þess að tjá sig um viðbrögð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við spurningum um endurskipulagningu ráðuneyta – nú síðast, menntamálaráðherra og varaformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs – í skemmtilegu og fróðlegu viðtali. Flestir, sem ég hef heyrt tjá sig um fækkun ráðuneyta og sameiningu málefna atvinnuveganna í eitt ráðuneyti, virðast hlynntir slíku. Ég hef […]

Fimmtudagur 13.05 2010 - 21:40

Ólíklegt að 9-menningar verði dæmdir

Verða 9-menningarnir dæmdir til refsingar fyrir árás á Alþingi? Ég ætla að reyna að spá fyrir um það, fyrst og fremst með lagarökum. Þessi umfjöllun felur því engan veginn í sér afstöðu í þeirri pólitísku deilu sem nú ríkir milli borgaralega sinnaðs fólks um nauðsyn þess að halda uppi lögum og reglu annars vegar og […]

Sunnudagur 09.05 2010 - 22:38

Verðtrygging á sakabekknum

Nú í fyrramálið verð ég auk Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, og fulltrúum frá Hagsmunasamtökum heimilanna í yfirheyrslu hjá viðskiptanefnd Alþingis; við erum þó ekki á sakamannabekknum – heldur er það sjálf verðtryggingin. Þið getið horft á þetta á beinni útsendingu hér (www.althingi.is) kl. 9:30 í fyrramálið. Sjá nánar hér: http://www.talsmadur.is/Pages/55?NewsID=1240 *** Hér er dagskráin á […]

Fimmtudagur 06.05 2010 - 07:00

Ráðum aðeins þá sem við þekkjum

Til hvers er verið að auglýsa störf? Af hverju eru ekki strax ráðnir þeir hæfustu, t.d. það fólk sem ráðafólk þekkir, hefur unnið með og treystir? Undanfarið hefur að gefnu tilefni verið rætt um ráðningar – bæði í tíð fyrri ríkisstjórnar og núverandi. Koma þar bæði til áfellisdómar löglegra dómstóla og gagnrýni fjölmiðla – og […]

Þriðjudagur 04.05 2010 - 07:00

Kjarakerfi embættismanna

Ekki ræði ég að sinni launalækkun/launalækkun og ósamræmi í lagatexta sem RÚV hefur bent á – en í stjórnarskránni segir: Í lögum skal kveða á um rétt manna til að semja um starfskjör sín og önnur réttindi tengd vinnu. Ég þekki vel gildandi lög – einkum úr fyrra starfi hjá BHM – og tel mig […]

Sunnudagur 02.05 2010 - 22:00

J’accuse!

Eitt meginatriði er ég – eftir mikla umhugsun og lestur á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis – ósammála nefndinni um. Ég tel að þáverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, beri meiri ábyrgð en þar er talið og sé fremur sek um vanrækslu en þáverandi viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson – sem um leið var ráðherra neytendamála. Hann sýndi […]

Þriðjudagur 27.04 2010 - 21:53

Glerþak og fallhleri: fyrir konur

Að gefnu tilefni má ég til að endurbirta grein mína frá júlí 2003: „Fallhlerinn [Útdráttur mbl.]  STUNDUM er rætt um „glerþakið“ sem konur rekast í þegar þær vilja komast til (frekari) áhrifa á vinnustöðum; það er ósýnilegt í þeim skilningi að ekki er einhlítt hver orsökin er fyrir því að konur ná sjaldnar á toppinn.   […]

Sunnudagur 25.04 2010 - 07:00

Dómaradómur – fyrir almenning?

Mér rennur blóðið til skyldunnar að greina fyrir þá, sem ekki eru lögfræðingar, nýlegan dóm í máli umsækjanda um stöðu héraðsdómara gegn ríkinu og settum dómsmálaráðherra, Árna Mathiesen. Dómurinn er að mati fjölmiðla nokkuð merkilegur – en að mati löglærðra væntanlega augljós hvað varðar niðurstöðu. Stutta útgáfan er þessi: Dómurinn er ótvíræður og ótvírætt réttur […]

Höfundur

Gísli Tryggvason
Sat í stjórnlagaráði 2011 og er í framkvæmdaráði umbótaflokksins Dögunar, stjórnmálasamtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði. Löglærður (hdl.) og með meistaragráðu (MBA) í mannauðsstjórnun. Hef sótt og varið hagsmuni og réttindi neytenda og launafólks í 15 ár.

GSM 897 33 14; gt@vestnord.is
RSS straumur: RSS straumur