Ég velti fyrir mér í gær hvort ekki myndu allir vinna við að sett yrði á fót á Keflavíkurflugvelli alþjóðleg rannsóknarmiðstöð fyrir flugöryggi: Flugneytendur fengju flugöryggi; flugrekendur myndu fá aukið rekstraröryggi; Besser-wisserar gætu sagt: „þetta hef ég alltaf sagt;“ flugfélögin yrðu himinlifandi; fréttamenn myndu áfram fá nóg að gera; Íslendingar fengju nýsköpun; stjórnmálamenn gætu verið […]
Ræða mín á Austurvelli síðdegis í gær, að beiðni Alþingis götunnar. Við munum öll ræðuna sem þáverandi forsætisráðherra hélt fyrir hálfu öðru ári. Áður en hann bað Guð að blessa Ísland líkti hann tilefni neyðarlaganna, sem sett voru í flýti 6. október 2008, við efnahagslegar hamfarir. En voru viðbrögðin í kjölfarið í samræmi við viðbrögð […]
Er hlustað er á frábæran lestur leikara Borgarleikhússins á ítarlegri skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vaknar fremur ásökun en spurning hvort lögfræðingar og lykilaðilar Stjórnarráðsins og stofnana ríkisins þekki ekki 2. málslið 60. gr. stjórnarskrárinnar Þó getur enginn, sem um þau leitar úrskurðar, komið sér hjá að hlýða yfirvaldsboði í bráð með því að skjóta málinu til […]
Þegar ég var táningur heillaðist ég af ljósmyndun og gerði lítið annað í nokkur ár en að sinna henni – í svarthvítu; ætlaði ég reyndar alla tíð að vera óháður öllum flokkum og öflum í því skyni að geta farið um heiminn og sýnt hið sanna og breytt heiminum til hins betra. Hápunkturinn var verðlaun […]
Í gær, 10. apríl 2010, var merkisdagur í stjórnskipunarsögu Íslands – ekki síður en morgundagurinn getur orðið það. Í gær voru rétt 70 ár liðin frá því að íslenskt þjóðhöfðingjavald var fært í íslenskar hendur fyrsta sinni – fyrst í hendur ríkisstjórnar 1940, svo í hendur ríkisstjóra 1941 og frá 1944 hefur þjóðhöfðingjavald verið í […]
Almannasamtökin Wikileaks og ríkisstofnunin RÚV sönnuðu tilvistarrétt sinn enn frekar rækilega í kvöld. Þau birtu ekki aðeins hrátt myndband úr árásarþyrlu bandaríska hersins þar sem sjá mátti morð á fjölda íraskra borgara 2007 heldur fylgdi vel undirbúin þýðing, félagslegt samhengi og tæknileg útskýring – auk stærðar og almenns áhorfs sjónvarpsskjásins. Nú er komið að okkur. […]
Í fyrri viku var í Kastljósi rætt við konu sem var ásamt manni sínum stödd á árshátíð í Fljótshlíð um gosnóttina. Höfðu þau neytt áfengis og töldu sig ekki eiga neinn annan kost en að aka ölvuð af stað þegar rýma þurfti svæðið. Það endaði svo með árekstri á brúarstólpa eins og málinu er lýst á […]
Unfanfarin ár hef ég leyft mér að kalla sjálfan mig feminista – nokkuð sem ég er sífellt sannfærðari um í ljósi þeirrar skilgreiningar að sá sé feministi sem viðurkennir að jafnrétti sé ekki náð og vilji gera eitthvað í því. Ekki er ég viss um að konurnar í mínu lífi viðurkenni það allar – en […]
Ég frétti af eldgosinu við Eyjafjallajökul í nótt um kl. 00:50 á sjónvarpsskjá Ríkisútvarpsins rétt áður en ég ætlaði að slökkva. Það sýnir mér að almannavarnarhlutverk RÚV er ekki hjóm eitt eins og stundum er talið. Áhugavert er þó að fara yfir hvernig fréttastreymi var af gosinu. Það, sem virðist standa upp úr, er að hið […]
Þegar ég var kominn langleiðina með að ljúka laganámi við Háskóla Íslands fyrir um fimmtán árum kom gestakennari frá Bandaríkjum Norður-Ameríku sem kenndi valnámskeið við lagadeildina sem mig minnir að hafi heitið feminískar lagakenningar. Ég sat að vísu ekki námskeiðið en hafði nokkra hugmynd um inntak þess – þ.e. feminískur sjónarhóll á hefðbundnar greinar á […]