Það er skortur á húsnæði, það vantar minni íbúðir og húsnæðisverð er of hátt. Kannanir sýna að fólk á leigumarkaði vill kaupa en á ekki fyrir útborgun og nær ekki að leggja til hliðar. Nauðsynlegt er að styðja við óhagnaðardrifin leigufélög. Það þarf að auka fjölbreytni í húsnæðisvali og auka framboð húsnæðis. Vísbendingar eru um að breytt samsetning heimila muni ýta undir skort á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum. Deilihúsnæði gæti verið hluti af lausninni.
Á fundi borgarstjórnar 21. nóvember 2017 lagði ég fram tillögu að kannaðir yrði möguleikar og grundvöllur á því að úthluta lóðum í Reykjavík fyrir deilihúsnæði. Tillagan var samþykkt og vísað til frekari vinnslu í starfshóp um ódýrari íbúðir, ungt fólk og fyrstu kaupendur.
Tillaga:
„Lagt er til að borgarstjórn samþykki að stofna stýrihóp sem kannar möguleika og grundvöll á því að úthluta lóðum í Reykjavík sem ætluð eru fyrir deilihúsnæði.“
Greinargerð:
„Lagt er til að borgarstjórn samþykki að stofna stýrihóp sem kannar möguleika og grundvöll á því að skipuleggja og úhluta lóðum í Reykjavík sem ætluð eru fyrir deilihúsnæði (house-sharing) til að auka fjölbreytni í húsnæðisvali og auka framboð. Kannað verði m.a. hvernig eignaform gæti verið mögulegt á slíku húsnæði t.d. hvort slíkt húsnæði gæti verið í eigu almennra leigufélaga, leigufélaga sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða eða að eignarhald slíks húsnæðis væri í sameign þeirra sem þar búa. Hvort breyta þurfi lögum til að gera slíkt húsnæði mögulegt á Íslandi svo sem þeim reglum sem gilda um stofnframlög. Hvaða hópar kæmu til greina við búsetu í slíku húsnæði svo sem hvort eingöngu yrði miðað við ungt fólk eða fólk á öllum aldri, hvort um félagslegt eða almennt húsnæði væri að ræða o.s.frv. Til hliðsjónar er hægt að horfa til Old Oak byggingarinnar í London sem opnaði vorið 2016 sem vakið hefur athygli víða en þar er á ferðinni líklega eitt stærsta deilihúsnæði (house-share) sem vitað er um. Þar býðst hundruðum ungra Lundúnabúa sem hafa orðið undir í húsnæðiskreppunni að leigja herbergi og fá aðgang að töluverðri þjónustu. Þá er jafnframt hægt að líta til þekkingar Félagsstofnunar stúdenta við byggingu húsnæðis þar sem sameiginleg aðstaða er fyrir hendi fyrir þá sem leigja herbergi.“