Í Vikulokunum segir Dagur B. Eggertsson að reglur frá ríkinu geri það að verkum að það hafi tekið um 3 ár að skipuleggja um 450 íbúðir í Úlfarsárdal. Það er ekki rétt. Það er ekkert í reglum sem gerir það að verkum að þetta ferli taki 3 ár. Hér er ferillinn sem þetta tók ef farið er yfir fundargerðir borgarinnar:
- Borgarráð 20.08.2015 tillaga mín um að deiliskipulag Úlfarsárdals verði endurskoðað, sjá lið 19
https://reykjavik.is/fundargerd/fundur-nr-5370
- Borgarráð 15.10.2015 samþykkt að endurskoða deiliskipulagið sjá lið 21
https://reykjavik.is/fundargerd/fundur-nr-5378
- Borgarráð 9.06.2016 samþykkt lýsing vegna uppbyggingar og stækkunar Úlfarsárdalshverfis sem kallar á heildarendurskoðun á deiliskipulagi hverfisins, liður 14
https://reykjavik.is/fundargerd/fundur-nr-5410
- Borgarráð 11.05.2017, samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulaginu, sjá lið 9
https://reykjavik.is/fundargerd/fundur-nr-5452
- Borgarráð 5.10.2017, deiliskipulagið samþykkt (fjölgun um ca 450 íbúðir) sjá lið 19
https://reykjavik.is/fundargerdir/fundur-nr-5469
- Borgarráð 12.10.2017 lóðavilyrði til Bjargs og Búseta, sjá liði 37 og 38
https://reykjavik.is/fundargerdir/fundur-nr-5470
- Borgarráð 1.03.18 lagðir fram útboðsskilmálar v/Úlfarsársdals, frestað, liður 36
https://reykjavik.is/fundargerdir/fundur-nr-5493
- Borgarráð 8.03.2018, samþykkt úthlutun lóða til Bjargs og Búseta, útboðsskilmálar samþ, sjá liði 34-36
https://reykjavik.is/fundargerdir/fundur-nr-5494
- Borgarráð 15.03.18, liður 30, átakið íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur, lóðir m.a. í Úlfarsárdal (frestað), samþykkt í borgarráði 12.04.18, liður 25
https://reykjavik.is/fundargerdir/fundur-nr-5495
https://reykjavik.is/fundargerdir/fundur-nr-5498
- Lóðir í Úlfarsárdal auglýstar til sölu í byrjun apríl 2018
https://reykjavik.is/lodir-i-ulfarsardal
Það er einhver hluti lóðanna ekki byggingarhæfar alveg strax.